[18:16]
Jóhannes Geir Sigurgeirsson :
Virðulegur forseti. Mikið reiknar hæstv. samgrh. með miklu falli síns flokks í Norðurl. e. ef hann er farinn að gegna kallinu 6. þm. viðkomandi kjördæmis. Virðulegur forseti. Það sem ég ætlaði að gera að umtalsefni hefði kannski alveg eins og betur átt við undir liðnum um fundarstjórn forseta en af því að ég á þetta tækfæri þá geri ég það hér.
Það gerist orðið í hverri viku að þegar hæstv. ráðherrar Sjálfstfl. eru orðnir rökþrota fara þeir að ávarpa þingmenn með starfsheitum sem þeir kunna að gegna samhliða þingmennsku eða áður en þeir komu hér inn. Hæstv. samgrh. fór algerlega út fyrir allar þingskapavenjur og auðvitað hefði hæstv. forseti átt að benda ráðherranum á það þegar hann fór að ávarpa mann hér án nokkurs titils með því starfi sem hann gegnir samhliða þingmennsku. Þetta gerði hæstv. menntmrh. í síðustu viku gagnvart 2. þm. Vestf. og ávarpaði hann sem fræðslustjóra. Auðvitað eru allir menn hér inni sem þingmenn og taka til máls sem slíkir.