[18:29]
Jón Helgason :
Hæstv. forseti. Það er mikið alvörumál sem hv. 4. þm. Vesturl. hreyfði. Það hefur verið rætt oft áður hvernig hagsmunum íslenskrar garðyrkju var fórnað af hæstv. núv. utanrrh. í þessum samningum eins og hæstv. landbrh. lýsti. Það er ekki tími til að fjalla ítarlega um þetta mál en virst hefði eðlilegra fyrir hv. fyrirspyrjanda að beina máli sínu til yfirlandbúnaðarráðherrans, hæstv. utanrrh., sem lagði á ráðin um þessa samninga og gekk frá þeim. Reyndar hefur komið fram fyrr í dag að það virðist vera orðinn ruglingur milli hlutverka ráðherra eins og þegar hæstv. forsrh. var eingöngu spurður um samgöngumál.