Forseti (Salome Þorkelsdóttir)
:
Forseti vill benda á að það er í ,,allt að hálftíma`` sem gert er ráð fyrir að umræður standi. Þegar búið er að semja milli þingflokka um ræðutíma þá treystir forseti sér ekki til að gera upp á milli þingmanna. Það voru þrír aðrir þingmenn sem höfðu óskað eftir að taka til máls en féllu frá því þegar þeir sáu hvernig samið var. Þess vegna neitaði forseti að bæta við öðrum þingmanni frá einum þingflokki umfram aðra. Þetta var gert til að reyna að vera sanngjarn gagnvart öllum en það er stundum erfitt fyrir forseta að heppnast slíkt.