Forseti (Valgerður Sverrisdóttir) :
Þá eru hér tilkynningar um utandagskrárumræður sem fara munu fram í dag. Það er í fyrsta lagi að beiðni hv. þm. Gunnlaugs Stefánssonar og beinir hann máli sínu til hæstv. sjútvrh. Umræðan fer fram samkvæmt 1. mgr. 50. gr. þingskapalaga, sem sagt hálftíma umræða. Umræðuefnið er málefni smábáta á aflamarki.
Þá mun enn fremur fara fram utandagskrárumræða að beiðni hv. þm. Jóhannesar Geirs Sigurgeirssonar og beinir hann máli sínu til hæstv. iðnrh. Umræðan fer fram samkvæmt 1. mgr. 50. gr. þingskapalaga, þ.e. hálftíma umræða. Umræðuefni er: Framtíð Kísiliðjunnar við Mývatn. ( Gripið fram í: Klukkan hvað?) Já, forseta hefur láðst að taka það fram að fyrri umræðan fer fram kl. 12.30 og sú síðari kl. 13 og það er ekki reiknað með að gefa hádegisverðarhlé.
Þá vill forseti enn fremur taka fram að vegna umræðna sem fóru fram í gær utan dagskrár að frumkvæði hæstv. fjmrh., að það hefur orðið um það samkomulag milli hv. 5. þm. Reykv. Inga Björns Albertssonar og forseta, frú Salome Þorkelsdóttur, að sú umræða fari ekki fram í dag heldur síðar.