[10:38]
Anna Ólafsdóttir Björnsson :
Virðulegi forseti. Svo háttar til að við fulltrúar í allshn. höfðum ákveðið að koma saman í hádegisverðarhléi til stutts en áríðandi fundar. Ég fæ ekki séð að ef hádegisverðarhlé verður fellt niður sé það hægt þannig að ég vil beina þessum góðfúslegu ábendingum til hæstv. forseta og vonast til þess að það verði hægt að ná um þetta einhverri sátt þannig að fulltrúar í allshn. geti bæði sótt þá þingfundi sem þeir þurfa og farið á þennan mikilvæga aukafund.