Nefnd til að kanna útlánatöp innlánsstofnana

34. fundur
Miðvikudaginn 16. nóvember 1994, kl. 14:56:09 (1543)


     Forseti (Salome Þorkelsdóttir) :
    Eins og áður hafði verið tilkynnt er gert ráð fyrir utandagskrárumræðum kl. þrjú.

    Fyrri utandagskrárumræðan sem boðuð hafði verið er um flottroll og karfaveiðar. Málshefjandi er hv. 3. þm. Suðurl. Þetta er hálftímaumræða, þ.e. samkvæmt 1. mgr. 50. gr. þingskapa.