[14:37]
Kristinn H. Gunnarsson (andsvar) :
Virðulegi forseti. Það er greinilegt að það vefst dálítið fyrir hæstv. umhvrh. að útskýra tilgang laganna. Ef hann er til þess að takmarka umferð ferðamanna eða vernda æðarvarp, þá vil ég benda ráðherranum á að það á við um nærfellt allt landið og hann yrði þá að setja lög um vernd Íslands.