[16:07]
Valgerður Sverrisdóttir (andsvar) :
Hæstv. forseti. Mér finnst það mjög mikilvægt að það hafi komið fram hjá hv. þm. að hæstv. menntmrh. styður ekki frv. og sennilega ekki heldur formaður menntmn. En þá liggur það bara fyrir og það er mjög mikilvægt að það liggi fyrir að hæstv. menntmrh. styður ekki málið og hv. formaður menntmn., sjálfstæðismaður, hv. þm. að nafni Sigríður Anna Þórðardóttir, styður það ekki heldur.