Fyrirvari utandagskrárumræðna

39. fundur
Mánudaginn 21. nóvember 1994, kl. 15:47:32 (1726)

     Forseti (Salome Þorkelsdóttir) :
    Hv. þm. hefur gert grein fyrir því hverjar reglurnar eru. Eins og réttilega kom fram skal þingmaður bera fram ósk um utandagskrárumræðu við forseta eigi síðar en tveimur klukkustundum áður en þingfundur hefst. Það þýðir að enginn möguleiki er á að tilkynna um slíka utandagskrárumræðu sólarhring áður nema með því að breyta þingsköpum. En hins vegar vill forseti láta þess getið að það er ætíð tilkynnt formönnum þingflokka strax og vitað er um utandagskrárumræður. Það er misjafnt hversu stuttur fyrirvarinn er en boðum er ætíð komið til formanna þingflokka strax og vitað er um slíka umræðu þegar hún hefur verið tímasett.