[16:53]
Viðskiptaráðherra (Sighvatur Björgvinsson) :
Virðulegi forseti. Mér var tjáð að það hefði orðið að ráði að lögð yrðu fram sameiginlega fyrirspurn á þskj. 140 og 141 þar sem um sams konar málefni væri að ræða og því væri það svo að ráðherra þyrfti að svara þeim saman. ( GHelg: Forseti. Má ég þá ekki fara fram á að ég fái --- ég hélt satt að segja mjög stutt mál fyrir hinni ræðunni. Má ég þá bara ekki flytja hana?) Mér er það alveg að meinalausu, virðulegi forseti, ef það er í lagi.
( Forseti (PJ): Forseti verður við því sem er augljóslega til hægðarauka og tekur fyrirspyrjandi, hv. 14. þm. Reykv., nú aftur til máls.)