Sjóður til að styrkja efnilega íþróttamenn

39. fundur
Mánudaginn 21. nóvember 1994, kl. 17:11:58 (1764)


[17:11]
     Viðskiptaráðherra (Sighvatur Björgvinsson) :
    Virðulegi forseti. Út af ummælum þess hv. þm. sem talaði hér síðastur þá hef ég aðeins eina spurningu til hans að gera og hún er þessi: Mun þingmaðurinn þá og hans flokkur, ef þeir komast til áhrifa í landsstjórn Íslands, segja upp þessum vondu samningum sem hann telur svo vera?