Vöruverð lífsnauðsynja og verðmunur á milli þéttbýlis og dreifbýlis

46. fundur
Miðvikudaginn 30. nóvember 1994, kl. 13:14:03 (2118)


[13:14]
     Flm. (Gunnlaugur Stefánsson) (andsvar) :
    Hæstv. forseti. Hv. þm. Jóhannes Geir Sigurgeirsson lýsti því hér yfir að hann væri reiðubúinn til þess að taka þátt í vinnu til þess að leysa þetta vandamál. Hvernig stendur á því að hv. þm. Jóhannes Geir Sigurgeirsson hefur ekki flutt till. til þál. eða frv. til laga í þinginu um þetta mál og hvernig eigi að koma á móts við þá knýjandi þörf að lækka vöruverð á landsbyggðinni þar sem það er hæst? Síðan kemur fram í þinginu hógvær tillaga um að stíga eitt skref til þess að þessi vinna megi fara af stað þá fjargviðrast hann út í málið og reynir að drepa því á dreif og setja fót fyrir það. Ég undrast svona málflutning, ég verð að segja það. Og segið mér enn og aftur: Er þetta ein skýringin á því að vöruverð á landsbyggðinni kann að vera hærra en það þarf að vera vegna þess að hv. þm. Jóhannes Geir Sigurgeirsson hafi m.a. með slíkum málflutningi í Framsfl. lagt sitt af mörkum til þess að ekkert hafi verið gert í málinu?
    Hv. þm. Jóhannes Geir Sigurgeirsson spurði hvort ég væri að mæla með því að sett verði lög um hámarksverð á lífsnauðsynjum. Það gilda ákveðnar reglur um hámarksverð á ýmsum vörum eins og landbúnaðarvörum, ( JGS: Ég sagði það ekki.) mjólk og fleiri afurðum. Ég vil hafa það áfram þannig. Er hv. þm. Jóhannes Geir Sigurgeirsson að leggja það til að afnema það? Það eru þá tíðindi, alla vega fyrir Framsfl. og fyrir mér líka.