[15:20]
Anna Ólafsdóttir Björnsson (andsvar) :
Virðulegi forseti. Ég hef óendanlega þolinmæði til þess að útskýra fyrir hæstv. ráðherra ef hann hefur ekki enn skilið hvað ég á við. Ég er ekki að tala um sportveiðiskip þegar ég er að tala um ferðaþjónustu. Gefi hann sér að það sé eina ráðið til þess að gera út einhvers konar báta sem hafa misst kvóta þá erum við ekki á sama máli og það er ekkert athugavert við það. En ég tek enn og aftur fram að það þarf að vera skýrt að það er ekki verið að færa þessum bátum kvóta og þau skilyrði ættu þá að duga þeim mönnum sem hugsa til hreyfings í þessu til þess að taka skynsamlega ákvörðun og fara ekki út í slíkt nema þeir treysti sér til þess að gera út bát á öðrum forsendum. Það hlýtur markaðurinn að segja til um en ekki við hér.
Annað sem ég vil sérstaklega taka fram er það að mér þykir það alveg ótrúlegur tvískinnungur ef það er eitthvað hættulegra að þeir bátar sem eru úreltir fari til nýsköpunar en að verið sé að flytja inn önnur skip. Ég get alveg skilið þau sjónarmið sem hæstv. ráðherra var að koma á framfæri en ég held að það verði að leysa ef þarna er um einhverja mismunun að ræða. Ef einhverjir hafa möguleika á því að fara með betri kjörum í utankvótaveiðar og ýmiss konar nýsköpun þá verður bara hreinlega að leysa það en ekki loka fyrir það. Það er verðmætasóunin sem ég er að tala um og ég ítreka að ég stend við orð mín um að ég tel að ákveðin fækkun þurfi að eiga sér stað í okkar flota á meðan árar eins og gerir nú.