Sameining Búnaðarfélags Íslands og Stéttarsambands bænda

52. fundur
Fimmtudaginn 08. desember 1994, kl. 10:44:55 (2363)

[10:44]
     Jóna Valgerður Kristjánsdóttir (andsvar) :
    Virðulegi forseti. Ég býst við að þetta sé mál sem nefndin hefur verið sammála um þar sem hér er verið að leggja til að Búnaðarfélag Íslands og Stéttarsamband bænda séu sameinuð. Um það hafa þessi samtök verið sammála. En það sem mig langar til að spyrja hv. formann nefndarinnar er hvort með þessari breytingu muni nokkuð frekar verða tryggð áhrif kvenna í þessu sambandi en verið hefur.