Framleiðsla og sala á búvörum

52. fundur
Fimmtudaginn 08. desember 1994, kl. 11:26:16 (2384)


[11:26]
     Jóhannes Geir Sigurgeirsson (andsvar) :
    Virðulegur forseti. Ég bendi á að sameiningarfrv. sem slíkt er ekki orðið að lögum og minni neisti en það hefur oft orðið til þess að hleypa öllu í bál og brand milli stjórnarflokkanna þegar landbúnaðarmál eru annars vegar þannig að ég held að við ættum að ganga í það að afgreiða þessi mál.