Framleiðsla og sala á búvörum

52. fundur
Fimmtudaginn 08. desember 1994, kl. 11:41:09 (2392)


[11:41]
     Steingrímur J. Sigfússon (um fundarstjórn) :
    Hæstv. forseti. Ég vil einfaldlega fá að vita það hvort þessar brtt. verða bornar upp til atkvæða eða ekki. Sá maður sem kallaði þær aftur verður þá annaðhvort að falla frá þeirri ákvörðun sinni að kalla tillögurnar aftur eða einhver annar þingmaður að gera tillögurnar að sínum. Ég get út af fyrir sig orðið til þess ef það er tæknilegt vandamál hér að enginn vilji taka upp tillögurnar á nýjan leik, þá má það vera í mínu nafni, en ég óska eftir því að hv. formaður landbn. geri grein fyrir því hver staða málsins er. Heldur hann við ákvörðun sína um að kalla tillögurnar aftur eða ekki?