[10:43]
Jóna Valgerður Kristjánsdóttir :
Virðulegi forseti. Það er alveg rétt sem hér hefur komið fram að skv. 72. gr. þingskapa hafa formenn þingflokka rétt til þess að koma fram fyrir hönd sinna þingflokka og semja um ræðutíma. Hins vegar kom það fram á fundi formanna þingflokka þegar um þetta var rætt að að sjálfsögðu þyrftu formenn þingflokka að hafa um þetta allt saman samráð við sína þingmenn. Það er því nærtækt að spyrja að því hvort formaður þingflokks Sjálfstfl. hafi látið alla sína þingmenn og þar á meðal hv. þm. Inga Björn Albertsson vita af þessu samkomulagi. En það er alveg skýlaust að þetta er heimild þingflokksformanna að semja um þetta og hv. þm. Ingi Björn Albertsson hefur að mér skilst verið í þingflokki sjálfstæðismanna þannig að hann verður að hlíta þeim samningum sem þingflokksformenn hafa gert um þetta mál ef hann er í þingflokknum. Hins vegar ber einnig að spyrja að því hvort formaður þingflokks sjálfstæðismanna hafi ekki látið sína menn vita um þetta.