Ráðstafanir í ríkisfjármálum 1995

56. fundur
Mánudaginn 12. desember 1994, kl. 16:27:44 (2567)

     Forseti (Salome Þorkelsdóttir) :
    Forseti verður að biðjast velvirðingar á að það láðist að tilkynna, áður en umræðan hófst, að óskað hafði verið eftir tvöföldum ræðutíma og verður að sjálfsögðu orðið við því. Forseti sendi hæstv. forsrh. nótu í ræðustólinn þannig að hann vissi um það meðan hans ræða stóð yfir.