Fjárlög 1995

57. fundur
Þriðjudaginn 13. desember 1994, kl. 22:02:06 (2666)


[22:02]
     Ingibjörg Pálmadóttir (andsvar) :
    Virðulegi forseti. Það kom greinilega fram í svari hv. þm. að hann telur að embætti héraðslækna sé einskis virði og þess vegna sé best að búta þetta niður og semja um þetta í einhverjum bútum. Og þá er auðvitað búið að gera það sem ég sagði hér í ræðu minni áðan, þá er búið að eyðileggja þessi embætti og þau verða einskis virði. Og það er kannski ástæða til að menn leggi eyrun við það að menn telja þetta ekki vera þess virði að þau sé á vetur setjandi og þá er það bara þannig og hefur komið skýrt fram hjá hv. þm.
    Ég er ánægð að heyra það að hann telur gott og rétt að tryggja fjármuni þannig að það komi að sem mestu gagni og það erum við þó sammála um að þarf að gerast og það hefur svolítið skýrst í umræðunni þó að það sé ekki nákvæmlega skýrt, það sem ég hef verið að spyrja um einfaldlega, ég veit um

viðbótina hjá þessum sjúkrahúsum en ég var einfaldlega að spyrja: Þurfa menn enn þá að draga saman seglin á þeim stofnunum sem fá þessa aukafjárveitingu? Við því hef ég ekki fengið nein svör, en það mun að sjálfsögðu koma í ljós.