Fjárlög 1995

58. fundur
Miðvikudaginn 14. desember 1994, kl. 13:39:51 (2724)


[13:39]
     Jóna Valgerður Kristjánsdóttir :
    Virðulegi forseti. Hér er um það að ræða að setja á fót stöðu prófessors við Háskóla Íslands sem er ekki liður í sérstökum beiðnum frá háskólanum. Ég tel að á meðan ekki er búið að afgreiða málefni háskólans og því er frestað formlega til 3. umr., þá sé ekki rétt að taka afstöðu til einhverra einstakra prófessorsstaða, sem háskólinn hefur ekki beðið um. Þess vegna munum við kvennalistakonur sitja hjá.