Afbrigði um dagskrármál

62. fundur
Laugardaginn 17. desember 1994, kl. 11:01:01 (2825)


     Forseti (Salome Þorkelsdóttir) :
    Samkvæmt þeirri dagskrá sem útbýtt hefur verið þarf að leita afbrigða um að öll tíu dagskrármálin megi koma á dagskrá og til umræðu, þar sem of skammt er liðið frá síðustu umræðu og/eða útbýtingu nefndarálita, og verður nú þeirra afbrigða leitað.