Brunatryggingar

62. fundur
Laugardaginn 17. desember 1994, kl. 13:12:27 (2861)


[13:12]
     Jóna Valgerður Kristjánsdóttir (um fundarstjórn) :
     Virðulegur forseti. Ég tel engan veginn fullnægjandi þó að 3. umr. um þetta mál eigi eftir að fara fram. Það er mikill vinnutími fram undan í þinginu og mörg mál eftir að afgreiða. Ég teldi miklu eðlilegra að tími gæfist til að fara yfir allar brtt. núna áður en til atkvæðagreiðslu kemur. Þar að auki eru eins og ég sagði bæði fyrirvarar á nál. og ýmis ágreiningur í gangi þar um og mér finnst of seint að skoða þau mál við 3. umr.