Forseti (Salome Þorkelsdóttir) :
Forseti vill tilkynna að gert er ráð fyrir utandagskrárumræðu síðar í dag kl. 17.30. Málshefjandi er Kristín Ástgeirsdóttir, hv. 15. þm. Reykv., og verður dómsmrh. til andsvara. Efni umræðunnar er aðgerðir til að sporna við ofbeldi í Reykjavík. Þetta verður hálftímaumræða.