[14:22]
Guðni Ágústsson (andsvar) :
Hæstv. forseti. Alltaf verð ég nú sannfærðari og sannfærðari um það þegar ég hlusta á þennan einkennilega málflutning þessa góða vinar míns, Árna Johnsens, að það var hárrétt sem Svíarnir sögðu fyrir 10 árum þegar Sjálfstfl. rausnaðist við það í fyrsta sinn að senda hv. þm. á Norðurlandaþing og hann hafði þar kvatt sér hljóðs og haldið eina af sínum skrýtnu ræðum. Þá hnippti einn sænski þingmaðurinn í Eið Guðnason og sagði: Kæri vinur, við eigum marga svona menn heima í Svíþjóð, en okkur hefur aldrei dottið í hug að senda þá til þings.