Fjárlög 1995

66. fundur
Fimmtudaginn 22. desember 1994, kl. 01:16:40 (3133)


[01:16]
     Vilhjálmur Egilsson :
    Virðulegi forseti. Þessi brtt. hefur verið kynnt í efh.- og viðskn. og er hluti ef þeim brtt. sem meiri hluti efh.- og viðskn. gerir við frv. til laga um ráðstafanir í ríkisfjármálum og er nauðsynleg til þess að kjöt sauðfjárafurða sé útflutningshæft frá Íslandi og þess vegna er eðlilegt að samþykkja þessa tillögu.