[01:43]
Sigbjörn Gunnarsson :
Virðulegur forseti. Þessa tillögu er óþarft að sækja vegna þess að í heimildargrein í 6. gr. er heimild að semja við orkusölufyrirtæki um aðgerðir til að lækka húshitunarkostnað þar sem hann er dýrastur og greiða allt að 50 millj. kr. í mótframlag úr ríkissjóði umfram það sem þegar hefur verið gert af hálfu stjórnvalda með niðurgreiðslum og yfirtöku skulda orkufyrirtækja. Þannig að þessi heimild er fyrir hendi, ef hún verður samþykkt hér á eftir og óþarft að samþykkja þá tillögu sem hér er lögð fram.