[01:46]
Vilhjálmur Egilsson :
Virðulegi forseti. Mér er það algjörlega hulin ráðgáta hvaða máli það skipir fyrir dreifbýlisverslun hvort það er eytt í þetta 800 eða 500 þús. kr. Ég styð tillögu hv. meiri hluta fjárln. í þessu máli og ég held að það sé alveg hægt að gera nógu mikið fyrir 500 þús. kr. í þessu máli.