Fjárlög 1995

66. fundur
Fimmtudaginn 22. desember 1994, kl. 01:48:33 (3146)


[01:48]
     Einar K. Guðfinnsson :
    Virðulegi forseti. Á bak við þennan fjárlagalið liggur nefndarstarf á vegum viðskrn. Hámark þeirra nefndarstarfa var frægur fundur í Fljótavík á Ströndum. Mér er kunnugt um það, virðulegi forseti, að ferðakostnaður norður á Strandir fer nú lækkandi og því greiði ég atkvæði með þessari tillögu.