Fjárlög 1995

66. fundur
Fimmtudaginn 22. desember 1994, kl. 02:18:13 (3159)


[02:18]
     Jóna Valgerður Kristjánsdóttir :
    Virðulegi forseti. Ég held að þetta sé í fyrsta sinn a.m.k. síðan ég kom inn á þing að það hefur ekki verið beðið um nafnakall og söknum við ákveðins þingmanns, Ólafs Þ. Þórðarsonar, eins af þingmönnum Vestfjarða sem nú er í veikindafríi. Þess vegna fannst mér tilvalið að ljúka þessari atkvæðagreiðslu með því að gera svipað og hann hefði líklega gert nokkrum sinnum meðan þessi atkvæðagreiðsla fór fram og það er skýringin á því að ég bað um nafnakall. Ég greiði ekki atkvæði.