Lánsfjárlög 1995

68. fundur
Miðvikudaginn 28. desember 1994, kl. 01:05:39 (3252)


[01:05]
     Jóhannes Geir Sigurgeirsson (andsvar) :
    Virðulegur forseti. Nú hrundi spilaborgin öll því að ég hef verið að velta þessu fyrir mér eftir að við fengum þessar upplýsingar í nefndinni í kvöld og mín niðurstaða hefur verið sú að að óbreyttri umferð um völlinn og öðrum aðstæðum gerðist þetta ekki öðruvísi en svo að þetta kæmi við ríkissjóð. Ég held að við verðum að horfast í augu við þá staðreynd því að okkur er sagt að leigugjöldin séu of há, flugvallarskatturinn sé of hár. Það sé ekki hægt að sækja auknar tekjur þangað. Það er talað um að ná þeim af tekjum fríhafnarverslunarinnar, hugsanlega að einhverju leyti af flugvallargjöldum sem allt eru tekjustofnar sem er ráðstafað með fjárlögum. Ég verð því að biðja hæstv. utanrrh. að útskýra þetta nánar. Það líkist svolítið kanínukúnstum hæstv. forsrh. fyrr í kvöld hvernig á að ná þessu fram án þess að það hafi áhrif á afkomu ríkissjóðs.