Lánsfjárlög 1995

68. fundur
Miðvikudaginn 28. desember 1994, kl. 02:58:35 (3282)


[02:58]
     Sigbjörn Gunnarsson (um fundarstjórn) :
    Virðulegi forseti. Ég vil að það komi fram að ég hef síðustu mínútu reynt að ná sambandi við hæstv. viðskrh. en síma hefur ekki verið svarað. Síðan má aftur velta því fyrir sér hvernig sú ósk er til komin að hæstv. viðskrh. sé við þessa umræðu. Það er vegna umræðna sem hér hafa átt sér stað um viðskipti Landsbankans við einstök fyrirtæki sem í sjálfu sér koma þessu lánsfjárlagafrv. ekki beinlínis við.