Lánsfjárlög 1995

68. fundur
Miðvikudaginn 28. desember 1994, kl. 04:28:41 (3310)





[04:28]
     Ólafur Ragnar Grímsson (um fundarstjórn) :
    Virðulegi forseti. Það sýnir nú best hve hæpin þessi lýsing hæstv. viðskrh. er að það eru margir mánuðir síðan Sýn hætti að sjónvarpa frá þinginu. Þannig að ef hæstv. ráðherra hefur vaknað upp um miðja nótt og farið að horfa á Sýn þá hefur hann greinilega verið léttruglaður ef það hefði verið tilefni þess að hann kom hingað til þingsins því að þar er ekkert nema stillimynd.
    Orð hæstv. ráðherra hins vegar um tillöguna eru geymd í þingtíðindum og verða auðvitað varðveitt þar sem skýr vitnisburður um afstöðu ráðherrans til þessarar tillögu.