Ábyrgð á láni til Silfurlax hf.

69. fundur
Miðvikudaginn 28. desember 1994, kl. 13:17:55 (3321)



     Forseti (Salome Þorkelsdóttir) :
    Varðandi fyrirspurn sem hv. 8. þm. Reykn. beindi til forseta þá getur forseti svarað því að það er ekkert sem bannar að þingmaður dragi nafn sitt út af brtt. þegar það hefur komist þangað vegna misskilnings og þingskjalið prentað upp sem iðulega gerist eins og hv. þingmenn vita. Þingskjöl eru prentuð upp ef það þarf að leiðrétta einhver atriði.