[11:53]
Forsætisráðherra (Davíð Oddsson) (andsvar) :
Hæstv. forseti. Ég get því miður ekki svarað þessari spurningu á þessu augnabliki. Málið er í höndum hæstv. landbrh. og hæstv. fjmrh. Þeir hafa auðvitað rætt um þetta mál. Ég tel mjög mikilvægt og tek undir með hv. þm. að slík regla liggi fyrir sem fyrst svo að aðilar sem að útflutningi kæmu í þessari grein viti um þá reglu og viti að sú regla sé jafnaðarregla þannig að allir þekki sína hagsmuni í þessum efnum. Ég tek undir með hv. þm. að það er brýnt að þessi niðurstaða fáist sem allra fyrst, en ég get því miður ekki án þess að hafa tækifæri til þess að kanna það sérstaklega svarað því hvort það gerist á þessum 2--3 dögum sem eru til áramóta.