[13:01]
Vilhjálmur Egilsson (andsvar) :
Virðulegi forseti. Það eru margir sem hafa orðið fyrir því að hafa fengið votta Jehóva í heimsókn og þeir komu nokkrum sinnum og voru með það fyrir nokkrum árum að þeir væru búnir að spá fyrir um heimsendi og var tiltekin dagsetning þar höfð í huga. Síðan leið sá dagur og heimsendir varð ekki. Þá finna þeir einhverjar skýringar á þessu og það sama hefur verið að gerast með þennan blessaða Rómarklúbb, að þær hamfaralýsingar sem komu fram í þessari fyrstu skýrslu klúbbsins rættust ekki og af þeim ástæðum m.a. sem ég hef verið að lýsa.
Eitt af því sem er jákvætt við þennan samning og kannski það merkilegasta við hann, er það að það eru gerðar skýrari alþjóðlegar leikreglur í viðskiptum og betra kerfi til þess að leysa úr deilumálum. Það er held ég sama hvernig við snúum því máli, það hlýtur alltaf að vera í hag þeim þjóðum sem eru fáar og smáar og eiga lítið undir sér, að það séu til staðar skýrar leikreglur, það séu til staðar möguleikar til þess að leysa úr deilumálum með óháðum hætti. Þess vegna er GATT-samningurinn sérstakt fagnaðarefni einmitt fyrir þjóð eins og okkur Íslendinga.
Í annan stað er það mjög merkilegt að þingmaðurinn skuli ímynda sér að það geti verið í þágu hagsmuna okkar Íslendinga að standa fyrir utan þennan samning þegar nánast allar þjóðir heims eru ýmist að gerast stofnaðilar að GATT eða hafa í hyggju að gerast aðilar að þessum samningi. Og hvað er það eiginlega sem þingmaðurinn vill þá að Ísland geri? Hvaða kostur er það sem hann hefur á móti því að gerast aðili að þessum samningi?