Ferill 9. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: Word Perfect.
1994. – 1064 ár frá stofnun Alþingis.
118. löggjafarþing. – 9 . mál.
9. Frumvarp til laga
um sérstakan héraðsdóm í skatta- og bókhaldsmálum.
Flm.: Jóhanna Sigurðardóttir.
1. gr.
Opinber mál vegna brota á lögum um tekjuskatt og eignarskatt, virðisaukaskatt, staðgreiðslu opinberra gjalda, tryggingagjald og lögum um bókhald, með síðari breytingum, sem og vegna brota á reglugerðum og öðrum stjórnvaldsákvörðunum settum samkvæmt þeim, skulu rekin og dæmd fyrir sérstökum héraðsdómi í skatta- og bókhaldsmálum.
2. gr.
Héraðsdómur í skatta- og bókhaldsmálum hefur aðsetur í Reykjavík. Heimilt er þó að halda dómþing hvar sem er á landinu.
3. gr.
Dómarar í héraðsdómi í skatta- og bókhaldsmálum skulu vera þrír. Um skipan og störf dómsins skal farið að ákvæðum 5.–8. gr. a laga nr. 92/1989, um aðskilnað dómsvalds og umboðsvalds í héraði, með síðari breytingum. Við skipun dómara skal auk almennra skilyrða þess sérstaklega gætt að þeir hafi sérþekkingu á skattskilum og reikningshaldi.
4. gr.
Ákvæði II.–XXIII. kafla laga um meðferð opinberra mála, nr. 19/1991, með áorðnum breytingum, skulu gilda um meðferð mála fyrir dóminum.
5. gr.
Mál, sem rannsókn sæta af hálfu skattrannsóknarstjóra ríkisins, skulu rekin fyrir dóminum, nema mál sæti refsimeðferð af hálfu yfirskattanefndar. Að lokinni rannsókn máls hjá skattrannsóknarstjóra ríkisins skal mál sent ríkissaksóknara til ákvörðunar.
6. gr.
Nú þykir við rannsókn skattsvikamála eða mála vegna bókhaldsbrota vera þörf á aðgerðum sem um getur í X. og XI. kafla um meðferð opinberra mála og getur þá rannsóknaraðili snúið sér til héraðsdóms í skatta- og bókhaldsmálum með beiðni um aðgerðir.
7. gr.
Ef fram kemur í máli, sem er til meðferðar fyrir héraðsdómi í skatta- og bókhaldsmálum, að ætla megi að sökunautur hafi gerst sekur um aðra refsiverða háttsemi getur ríkissaksóknari ákveðið að meðferð skatta- og bókhaldsbrotanna skuli fram haldið fyrir almennum héraðsdómstóli ásamt öðrum ákæruatriðum. Í þeim tilfellum skulu fyrri athafnir héraðsdóms í skatta- og bókhaldsbrotum halda gildi sínu.
8. gr.
Ráðherra er heimilt að setja reglugerð þar sem nánar er kveðið á um starfshætti héraðsdómstóls í skatta- og bókhaldsmálum.
9. gr.
Lög þessi öðlast þegar gildi.
Ákvæði til bráðabirgða.
Mál, sem þingfest hafa verið fyrir almennum héraðsdómstólum fyrir gildistöku laga þessara, skulu rekin þar áfram.
Greinargerð.
Með frumvarpi þessu er lagt til að komið verði á fót sérstökum dómstóli er einbeiti sér að skatta- og bókhaldsbrotum. Á sl. tæpum 10 árum hafa tvær nefndir skilað áliti sínu um umfang skattsvika hérlendis. Niðurstaða síðari nefndarinnar, sem skilaði áliti sínu 16. september 1993, var sú að umfang skattsvika væri hið sama og var á árinu 1985 og að ríki og sveitarfélög yrðu af 11 milljörðum kr. í sköttum vegna skattsvika. Er niðurstaða þessi þeim mun athyglisverðari fyrir þá sök að á undanförnum árum hefur skattkerfinu verið gjörbylt með upptöku á virðisaukaskatti, staðgreiðslu opinberra gjalda og stórfelldri fækkun frádráttarliða á skattframtali. Í áliti fyrri nefndarinnar var talið nauðsynlegt að einfalda skattkerfið verulega, m.a. með framangreindum skattkerfisbreytingum, og var það talin forsenda þess að minnka skattundandrátt. Að gerðum þeim breytingum væri ástæða til að ætla að skattsvik hefðu minnkað en svo virðist ekki vera raunin. Í áliti síðari nefndarinnar er hvatt til að refsingar verði hertar og sett fram gagnrýni á störf dómstóla.
Taka þarf upp nýjar aðferðir til að takast á við skattsvik. Er því með frumvarpi þessu og frumvörpum til breytinga á lögum um tekjuskatt og eignarskatt og virðisaukaskatt sem flutt eru samhliða, auk tillögu til þingsályktunar um endurskoðun á viðmiðunarreglum um reiknað endurgjald vegna eigin atvinnureksturs eða sjálfstæðrar starfsemi sem einnig er flutt samhliða, lagt til að gripið verði til róttækra aðgerða í því skyni að stemma stigu fyrir skattsvikum. Eiga þær tillögur það sameiginlegt að skattsvikurum verði sýnd aukin harka og að málsmeðferð skattsvikamála verði skilvirkari en verið hefur.
Lagðar eru til eftirfarandi aðgerðir:
— Komið verði á fót sérstökum skattadómstóli.
— Embætti skattrannsóknarstjóra verði gert að rannsaka mál að opinberum hætti.
— Lágmarkssektir við skattsvikum verði a.m.k. þrefaldur undandreginn skattur.
— Unnt verði að krefjast ábyrgða vegna innskattsgreiðslna.
— Endurskoðaðar verði viðmiðunarreglur um reiknað endurgjald vegna eigin atvinnureksturs eða sjálfstæðrar starfsemi.
Skattsvik hafa valdið miklu tjóni hérlendis og lamað siðferðisþrek þjóðarinnar. Sú staðreynd að stór hópur manna kemst upp með skattsvik óáreittur er óásættanlegt ástand sem taka verður á. Skattrannsóknarstjóri ríkisins hefur sagt í blaðaviðtali að með þessu ástandi sé vegið að réttarríkinu. Með frumvarpi þessu er leitast við að koma til móts við þá gagnrýni hans.
Með stofnun skattadómstóls er stigið stórt skref í þá átt að gera meðferð skattsvikamála í sem mestum mæli opinbera en það er forsenda þess að unnt sé að takast á við hið mikla umfang skattsvika. Meðferð skattsvikamála mun ganga greiðlegar fyrir sig hjá sérstökum skattadómstóli en almennum dómstólum sem virðast vera ofhlaðnir störfum. Fá skattsvikamál hafa sætt meðferð dómstóla, enda hefur dómskerfið verið seinvirkt og þar hefur vantað starfskrafta með sérþekkingu á skattskilum og reikningshaldi. Þannig hefur á mörgum undanförnum árum verið valin sú leið að senda flest mál til meðferðar yfirskattanefndar, áður ríkisskattanefndar, en ekki til opinberrar meðferðar dómstóla.
Á árunum 1985–1991 voru 16 mál send til opinberrar rannsóknar. Árið 1992 voru send 7 mál og 20 mál árið 1993. Til samanburðar voru á árunum 1985–1991 send 134 mál til ríkisskattanefndar til sektarmeðferðar. Benda má einnig á að óeðlilegt verður að telja að skattrannsóknarstjóri taki ákvörðun um hvort mál séu send yfirskattanefnd, áður ríkisskattanefnd, til meðferðar eða hvort þau séu send til opinberrar meðferðar hjá dómstólum. Eðlilegra er að kveða á um í lögum að meginreglan sé sú að skattsvikamál sæti opinberri rannsókn. Ætla má einnig að miklu fleiri mál en æskilegt hefði verið hafi á umliðnum árum verið send til einfaldrar sektarmeðferðar, en ekki til opinberrar meðferðar dómstóla, vegna seinvirkni dómskerfisins. Algengt er að mál fyrir yfirskattanefnd taki 3–6 mánuði, en algengt er að mál fyrir dómstólum taki 2–3 ár, þótt dæmi finnist um styttri tíma. Dæmi eru einnig til í dómskerfinu um að skattsvikamál séu þar árum saman og tilvik eru um að öll brot séu löngu fyrnd þegar kemur að dómi í skattsvikamáli. Telja má að með stofnun sérstaks héraðsdóms í skattsvikamálum þurfi mál ekki að taka lengri tíma en nú gerist fyrir yfirskattanefnd, en augljóst er að opinber meðferð skattsvikamála veitir miklu meira aðhald og varnaðaráhrif gegn skattsvikum. Með því er lögð áhersla á að með skattsvik eigi að fara eins og hvert annað alvarlegt afbrot.
Athugasemdir við einstakar greinar frumvarpsins.
Um 1. gr.
Hér er lagt til að settur verði á fót sérstakur héraðsdómur í skatta- og bókhaldsmálum sem taka skuli til meðferðar og dæma í öllum opinberum málum vegna brota á lögum um tekjuskatt og eignarskatt, svo og lögum um virðisaukaskatt, staðgreiðslu opinberra gjalda, auk brota á lögum um tryggingagjald og lögum um bókhald, svo og reglugerðum og öðrum stjórnvaldsákvörðunum settum samkvæmt þeim lögum.
Um 2. gr.
Greinin þarfnast ekki skýringa.
Um 3. gr.
Lagt er til vegna umfangs og fjölda skattsvikamála að dómarar í héraðsdómi í skatta- og bókhaldsmálum skuli vera þrír. Auk þess getur komið til að það kunni að vera lögbundin nauðsyn að þrír dómarar dæmi í einstaka málum þegar um mjög alvarleg og flókin skattsvikamál er að ræða. Í þessari grein er einnig kveðið á um að um skipan og störf dómaranna verði farið í samræmi við ákvæði 5.–8. gr. laga um aðskilnað dómsvalds og umboðsvalds í héraði. Auk þess er áskilið að dómarar, sem skipaðir eru við sérstakan héraðsdóm í skatta- og bókhaldsmálum, verði að hafa sérþekkingu á skattskilum og reikningshaldi.
Um 4. gr.
Kveðið er á um að lög um meðferð opinberra mála skuli gilda um meðferð mála fyrir héraðsdómi í skatta- og bókhaldsmálum.
Um 5. gr.
Hér er kveðið á um að öll skattsvikamál skulu rekin fyrir dómnum, nema mál sem sæta refsimeðferð af hálfu yfirskattanefndar. Það skal tekið fram að hugsanlega geta aðrir aðilar eins og sýslumenn sent mál til dómsins.
Um 6. gr.
Kveðið er á um að rannsóknaraðili geti snúið sér beint til héraðsdóms í skattsvikamálum í þeim tilvikum þegar aðgerða er þörf skv. X. og XI. kafla um meðferð opinberra mála sem fjallar um hald á munum og leit.
Um 7. gr.
Kveðið er á um að ríkissaksóknari geti í þeim tilvikum sem ætla má að sökunautur hafi gerst brotlegur um aðra refsiverða háttsemi en lýtur að skattsvikamálum sent málið til framhaldsmeðferðar fyrir almennum héraðsdómi. Athafnir héraðsdóms í skatta- og bókhaldsbrotum, svo sem varðandi þingfestingu, fyrirtekt o.fl., skulu þó engu að síður halda gildi sínu.
Um 8. gr.
Greinin þarfnast ekki skýringa.
Um 9. gr.
Greinin þarfnast ekki skýringa.
Um ákvæði til bráðabirgða.
Ákvæðið þarfnast ekki skýringa.