Ferill 18. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: Word Perfect.
1994. – 1064 ár frá stofnun Alþingis.
118. löggjafarþing. – 18 . mál.
18. Frumvarp til laga
um breytingu á lögum nr. 93/1993, um atvinnuleysistryggingar, með síðari breytingum.
Flm.: Tómas Ingi Olrich, Valgerður Sverrisdóttir.
1. gr.
Við 18. gr. laganna bætist ný málsgrein, 3. mgr., svohljóðandi:
Stjórn Atvinnuleysistryggingasjóðs getur heimilað einstaklingum, sem verið hafa án atvinnu og á atvinnuleysisbótum í a.m.k. eitt ár, að stunda nám á bótum í allt að átta mánuði í senn í því skyni að bæta með varanlegu móti atvinnumöguleika sína með formlegri menntun, enda liggi fyrir rökstutt einstaklingsbundið mat og meðmæli þess efnis frá stjórn vinnumiðlunarskrifstofu í heimasveit.
2. gr.
Lög þessi öðlast þegar gildi.
Greinargerð.
Samkvæmt 18. gr. laga nr. 93/1993 er einstaklingi heimilt að stunda lengst átta vikna nám á atvinnuleysisbótum. Slík námskeið eru gagnleg en breyta í reynd litlu um forsendur til atvinnuleitar fyrir þann hóp atvinnulausra sem hafa ófullkomna grunnmenntun og hafa því orðið harðast úti. Með þeirri takmörkuðu og einstaklingsbundnu heimild, sem hér er lagt til að verði lögfest, er leitast við að opna leið til að nýta Atvinnuleysistryggingasjóð til þess að breyta verulega vinnuhorfum einstaklinga þar sem þessi leið þykir vænleg til árangurs.
Ljóst er að sú skipan, sem hér er gerð tillaga um, getur ekki orðið að almennri reglu, en heimild talin vera til bóta.
Frumvarp þetta var lagt fram á 117. löggjafarþingi og er nú endurflutt óbreytt.