Ferill 25. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.



1994. – 1064 ár frá stofnun Alþingis.
118. löggjafarþing. – 25 . mál.


25. Tillaga til þingsályktunar



um afnám tvísköttunar af lífeyrisgreiðslum.

Flm.: Guðmundur Hallvarðsson, Sólveig Pétursdóttir, Vilhjálmur Egilsson.



    Alþingi ályktar að fela fjármálaráðherra að leggja fyrir Alþingi frumvarp til laga um breytingu á lögum nr. 75/1981, um tekjuskatt og eignarskatt, sem leiði til afnáms tvísköttunar af lífeyrisgreiðslum og jafnræðis í skattalegri meðferð vaxtahluta lífeyrisins.

Greinargerð.


    Þegar staðgreiðslu skatta var komið á var um leið tekin upp tvísköttun lífeyrisgreiðslna. Þær höfðu áður verið undanþegnar tekjuskatti. Eftir breytinguna var tekjuskattur lagður á þær tekjur sem launþegi greiddi sem iðgjald í lífeyrissjóð (4%) og síðan er lífeyririnn skatt­lagður á nýjan leik þegar hann er greiddur út. Eins kom upp skattaleg mismunun hvað varðar ávöxtun launþegahluta lífeyrisiðgjaldsins þar sem tekinn er tekjuskattur af lífeyrisgreiðslun­um á sama tíma og ávöxtun annars sparifjár er skattfrjáls. Hér er um óviðunandi ástand að ræða. Tvísköttun tekna af þessu tagi er óþolandi og sömuleiðis mismunun í skattlagningu fjármagnstekna með þeim hætti sem hér er bent á.
    Það skal áréttað að hér er eingöngu farið fram á breytta skattalega meðferð iðgjaldshluta launþega í lífeyrissjóði.
    Á 113. löggjafarþingi var samþykkt tillaga frá Guðmundi H. Garðarssyni svohljóðandi:
    „Alþingi ályktar að fela fjármálaráðherra að gera könnun á skattalegri meðferð lífeyris­sparnaðar og undirbúa nauðsynlegar lagabreytingar til að slíkur sparnaður njóti ekki lakari kjara en annar sparnaður í landinu.“
    Í greinargerð með þingsályktunartillögu Guðmundar H. Garðarssonar er vakin athygli á margsköttun iðgjalda sjóðfélaga til lífeyrissjóðanna. Iðgjaldið er skattlagt sem tekjur þegar launþeginn vinnur til þeirra, í annað skiptið þegar lífeyrir er greiddur til sjóðfélaga og síðan má segja að þessar tekjur séu skattlagðar í þriðja sinn þegar þær valda skerðingu á tekju­tryggingu frá Tryggingastofnun ríkisins.