Ferill 39. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.



1994. – 1064 ár frá stofnun Alþingis.
118. löggjafarþing. – 39 . mál.


39. Tillaga til þingsályktunar



um foreldrafræðslu.

Flm.: Kristín Ástgeirsdóttir, Anna Ólafsdóttir Björnsson,


Kristín Einarsdóttir, Jóna Valgerður Kristjánsdóttir,


Guðrún J. Halldórsdóttir.



    Alþingi ályktar að fela menntamálaráðherra að beita sér fyrir því að markviss foreldra­fræðsla verði stóraukin í skólum landsins, í fjölmiðlum og í samvinnu við heilbrigðisráðherra á heilsugæslustöðvum. Skipaður verði vinnuhópur sem komi með tillögur um æskilegt inntak, form og umfang foreldrafræðslu á fyrrgreindum stöðum.

Greinargerð.


    Nær samhljóða tillaga var flutt á 113., 116. og 117. löggjafarþingi.
    Skipan uppeldismála samkvæmt gildandi lögum er sú að foreldrar eru ábyrgir fyrir upp­eldi barna sinna. Ríkinu ber þó að grípa inn í og aðstoða foreldra á tilteknum sviðum, t.d. varðandi grunnmenntun, sbr. ákvæði um skólaskyldu, og ef foreldrar eru ófærir um að sinna ábyrgð sinni eða skyldum, sbr. t.d. ákvæði laga um barnavernd. Í lýðræðisríkjum er þessi skipan mála yfirleitt talin sjálfsögð, enda litið á fjölskylduna sem einn af hornsteinum þjóð­félagsins. Þetta fyrirkomulag byggir á því að foreldrar hafi sjálfir aðstöðu til að sinna þessari ábyrgð eða hafi möguleika á uppeldisaðstoð sem þeir geta haft áhrif á og samræmist þeirra lífsviðhorfum.
    Þessi skipan uppeldismála er nú miklum erfiðleikum bundin. Mikil atvinnuþátttaka beggja foreldra og sá langi vinnudagur sem hér tíðkast dregur úr möguleikum foreldra til að hafa áhrif á uppeldi barna sinna. Til að koma í veg fyrir uppeldislega vanrækslu heillar kynslóðar íslenskrar æsku er ekki aðeins nauðsynlegt að stórefla samfélagslega þjónustu á sviði upp­eldis- og skólamála heldur þarf einnig að styrkja foreldrana ef núverandi skipan uppeldis á ekki að vera merkingarlaus. Löggjafinn hefur eðlilega gert ráð fyrir að foreldrar hafi áhrif á starf skóla og leikskóla, en því miður virðist samstarf foreldra og uppeldisstofnana eiga erfitt uppdráttar. Hér er lagt til að foreldrar verði styrktir til að takast á við hlutverk sitt, ekki síst barnanna vegna. Það skiptir afar miklu máli að börn fái góða aðhlynningu og örvun í uppeldinu til að þau verði heilsteyptir einstaklingar og þar gegna foreldrar, eða aðrir sem standa barninu næst tilfinningalega, lykilhlutverki. Foreldraábyrgð er því mikilvæg og í lýð­ræðisþjóðfélagi, sem hefur lögfest jafnrétti kynja, þurfa báðir foreldrar að geta sinnt henni sem best. Til að svo geti orðið þarf að styrkja foreldra í hlutverki sínu og um leið þau grund­vallarmannréttindi foreldra og barna sem hér eru í húfi.
    Sú leið, sem hér er mælt með, er að taka upp almenna foreldrafræðslu. Markmið hennar væri að gefa foreldrum kost á að fræðast um ýmis atriði er snerta foreldrahlutverkið og mik­ilvægi þess. Auk framangreindra ástæðna fyrir fræðslu af þessu tagi má benda á eftirfarandi rök:
     1.      Engin fræðsla um foreldrahlutverkið og barnauppeldi er í boði fyrir alla í skólakerfinu eða annars staðar í þjóðfélaginu.
     2.      Vísindaleg þekking á þroska og uppeldi barna hefur stóraukist á liðnum áratugum án þess að skila sér til foreldra almennt. Ætla má að það dragi úr öryggi foreldra í sam­skiptum við sérmenntað fólk á uppeldisstofnunum.
     3.      Þó að foreldrar hafi hingað til getað byggt á reynslu fyrri kynslóða eru aðstæður nútímaforeldra og barna, a.m.k. í þéttbýli, mjög breyttar frá því sem foreldrarnir hafa sjálfir þekkt í eigin uppeldi.
     4.      Þegar boðið er upp á foreldrafræðslu eða námskeið um samskipti foreldra og barna, bæði hér og í nágrannalöndunum, hefur eftirspurn af hálfu foreldra verið mikil. Því mið­ur hefur þetta mest verið í formi einkanámskeiða sem ekki ná til allra.
    Hér er mælst til að vinnuhópur komi með tillögur um foreldrafræðslu í skólum landsins, á heilsugæslustöðvum og í fjölmiðlum. Lagt er til að í vinnuhópnum verði auk sérfræðinga á sviði uppeldismála og foreldrafræðslu fulltrúar frá foreldrum eða samtökum þeirra, fjöl­miðlafræðingur varðandi foreldrafræðslu í fjölmiðlum og fulltrúi frá heilbrigðisráðuneyti varðandi aukna fræðslu og ráðgjöf á heilsugæslustöðvum. Markvissar rannsóknir á áhrifum foreldrafræðslu eru til sem geta gefið vísbendingar um æskilegar aðferðir. Algengara er þó að gildi fræðslunnar er ekki rannsakað þar sem trú aðstandenda á gildi hennar hefur dugað. Æskilegt væri að gera ráð fyrir athugun á notkun og gildi þeirrar foreldrafræðslu sem lögð verður til og haga umfangi hennar í samræmi við það.
    Varðandi skólakerfið ber að fagna skýrslu starfshóps um jafna stöðu kynja í skólum sem menntamálaráðuneytið gaf út í desember 1990. Þar er skýrt kveðið á um að íslenska skóla­kerfið eigi að undirbúa bæði stúlkur og drengi undir fjölskyldulíf, m.a. með námi í fjöl­skyldufræðum í grunn- og framhaldsskólum. Í því felst m.a. umfjöllun um heimilisrekstur, barneignir, uppeldi og samskipti kynja sem allt getur tengst foreldrahlutverkinu og jafnri for­eldraábyrgð. Ákvæði af þessu tagi er einnig að finna í aðalnámsskrá grunnskóla og í lögum um grunnskóla, nr. 49/1991 (48. gr.). Mikilvægt er að settar verði fram nákvæmar tillögur um útfærslu foreldrafræðslu, ekki síst fyrir framhaldsskólann sem nú er öllum opinn. For­eldrafræðslu þyrfti einnig að efla í Háskóla Íslands og sem víðast símenntun og endurmennt­un fólks.
    Heilsugæslustöðvar og meðgöngudeildir sjúkrahúsa hafa boðið upp á mismikla fræðslu fyrir verðandi foreldra og foreldra ungbarna. Mælt er með eflingu þess starfs og að bætt verði við uppeldislegri ráðgjöf fyrir þá foreldra og börn að 16 ára aldri sem hennar óska.
    Mikilvægt er að nýta sem flesta fjölmiðla við þá fræðslu sem hér er mælt með. Fræðslu­þættir í útvarpi og sjónvarpi með þátttöku sérfræðinga og foreldra eru hugsanleg dæmi. Möguleg viðfangsefni eru þroskaeinkenni ákveðinna aldurshópa barna, samskipti foreldra og uppeldisstofnana, samhæfing fjölskyldulífs og starfs, málfarslegt uppeldi á heimilum, trú­aruppeldi, afmörkuð uppeldisvandamál eða æskilegar uppeldisaðferðir. Slíkir þættir gætu síðan verið til útláns á myndböndum. Einnig mætti nota dagblöð og tímarit í þessum tilgangi.
    Það er von flutningsmanna að þessi tillaga styrki foreldra, jafnt mæður sem feður, í sínu ábyrgðarmikla hlutverki til góðs fyrir uppvaxandi kynslóðir Íslendinga því að lengi býr að fyrstu gerð.