Ferill 53. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.



1994. – 1064 ár frá stofnun Alþingis.
118. löggjafarþing. – 53 . mál.


53. Tillaga til þingsályktunar



um nýtingu og markaðssetningu rekaviðar.

Flm.: Jóna Valgerður Kristjánsdóttir, Sigurður Hlöðvesson, Stefán Guðmundsson.



    Alþingi ályktar að beina því til ríkisstjórnarinnar að koma á fót starfshóp á vegum land­búnaðarráðuneytis til að gera tillögur um nýtingu rekaviðar og markaðssetningu afurða frá rekaviðarvinnslu. Starfshópurinn sé skipaður jafnt konum sem körlum. Þar eigi sæti m.a. fulltrúar frá bændasamtökunum og búnaðarráðunautar, sérfræðingar í markaðsmálum og aðilar frá samtökum iðnaðarins. Starfshópurinn skili niðurstöðum og tillögum fyrir 1. mars 1995.

Greinargerð.


    Mikil þörf er á því að leita allra leiða til nýrrar atvinnusköpunar ekki síst í sveitum landsins. Víða um land er nokkur viðarreki og er nýting hans í lágmarki nema á örfáum stöðum. Fyrr á árum var mikil nýting viðarreka á sumum jörðum bæði á Ströndum og á Skaga við að framleiða girðingarstaura til sölu, auk þess sem viðurinn nýttist bændum til allra hluta sem timburs þurfti við. Með þeim samdrætti sem orðið hefur í hefðbundnum greinum landbúnaðar, svo sem mjólkurframleiðslu og sauðfjárrækt, og minnkandi ræktun graslendis í framhaldi af því hefur sala girðingarstaura dregist mikið saman. Vegagerðin er þó ein af fáum stofnunum sem enn kaupir talsvert magn af girðingarstaurum. Á síðari árum hafa einstakir bændur hafið að nýta rekaviðinn til húsasmíða í meira mæli en áður. Rannsóknir sýna að rekaviður er vel til þess fallinn að nota í utanhússklæðningar þar sem hann er af náttúrunnar hendi fúavarinn með seltu sjávar.
    Nokkrir bændur eru að leita nýrra leiða til að nýta þessa auðlind sem rekaviðurinn er en hafa naumast bolmagn við núverandi aðstæður til að fjármagna stofnkostnað og/eða markaðssetja afurðirnar.
    Ótal möguleikar eru fyrir hendi í nýtingu rekaviðar. Fyrir utan framleiðslu á timbri til húsasmíða og í girðingarstaura má nefna að rætur trjánna eru oft hin sérstæðustu listaverk og eftirsótt til skreytinga í görðum. Ýmsar smáspýtur sem finna má á rekaströndum eru til­valdar sem undirstaða í veggmyndir af ýmum gerðum, bæði einar sér eða með öðru efni, auk þess sem allt úrgangstimbur er orkugjafi til upphitunar húsa.
    Viðarreki er vannýtt auðlind að miklu leyti og þar eru möguleikar fyrir þá bændur sem aðgang hafa að henni að auka tekjur sínar með nýrri framleiðslu. Brynjólfur Sæmundsson, búnaðarráðunautur á Hólmavík, hefur skrifað ítarlega grein um viðarreka á Ströndum og nýtingu hans. Greinin birtist árið 1993 í „Flóanum“ sem er héraðsfréttablað á Húnaflóasvæðinu. Þar er að finna gagnmerkar upplýsingar um viðarreka á Ströndum frá fyrri tíð og til þessa dags og nýtingu hans. Hluti greinarinnar er birtur sem fylgiskjal með tillögu þess­ari.
    Tillaga þessi var áður flutt á 117. löggjafarþingi en hlaut ekki afgreiðslu.


Fylgiskjal.


Úr grein Brynjólfs Sæmundssonar um viðarreka á Ströndum og nýtingu hans.


(Flóinn, héraðsfréttablað.)



    Viðarreki hefur löngum verið talinn meðal gagnsömustu hlunninda á Ströndum. Hefur svo verið frá upphafi byggðar. Þá hafa og fundist eldri ummerki þess að mikill trjáreki hef­ur borist að ströndinni og ekki gott að segja hvað þær minjar eru mörg þúsund ára gamlar. Þorvaldur Thoroddsen getur þess að hann hafi á ferðum sínum víða séð tré standa út úr moldarbörðum og í lækjarfarvegum nálægt sjó. Þegar Ásgeir Einarsson bjó í Kollafjarðar­nesi um og eftir miðja síðustu öld ætlaði hann að upp úr túninu hefði komið rekaviður sem svaraði til farms á áttæring. Og í mýrinni fyrir neðan bæinn varð vart við rekavið og var ekki meira en skóflustungu niður á hann.

Vannýtt auðlind.
    Enn í dag eru ómetanleg hlunnindi af rekaviðnum á Ströndum. Þó er víst að unnt væri að ná miklu meiri verðmætum út úr honum ef betur væri að verki staðið um nýtingu hans en raun er á. Í fyrsta lagi verður að segjast að víða er rekinn ákaflega illa hirtur. Honum er ekki bjargað frá sjó og það sem brimið kastar þrátt fyrir það á land liggur á rekanum ósnert árum og jafnvel áratugum saman, fúnar og sekkur að lokum í jörð. Sá viður sem þannig skolast á land er eigendum sínum ekki happafengur. Hann er einskis virði og verra en það því hann er eigendum sínum til hróplegrar skammar á meðan hann sekkur í jörð. Sem betur fer er þessu þó víða mikið betur sinnt og á stöku stað með miklum sóma.
    Mestur hluti þess rekaviðs sem unninn er fer í girðingarstaura, en margir kvarta þó yfir að erfitt sé að markaðssetja þá. Ég held að oft sé ástæðan sú að þegar kaupendur vantar staura eru þeir ekki til og þá kaupa þeir sína staura í næstu verslun. Mér virðist að þeir rekabændur sem eiga tilbúna staura selji þá alltaf fljótlega en þeir sem ekki vilja vinna þá fyrr en pöntun liggur fyrir selja aldrei mikið.
    En besti viðurinn er of góður til að hluta hann niður í girðingarstaura. Hann er mikið þéttari og harðari en sá innflutti viður sem venjulega er á markaði og ætti því að öllu eðli­legu að vera á hærra verði sem gæðaviður. Nokkrir bændur hafa það góðar sagir að þeir geta sagað með þeim planka og jafnvel borðvið og er það eftirsótt af þeim sem hafa komist á bragðið að nota þannig við í glugga og hurðarkarma og jafnvel í útihurðir og til mublu­smíði. Þess eru nokkur dæmi að bændur hafi sagað gólfborð úr „rauðaviði“ í sumarbústaði eða stofur. Það er gamalþekkt að slíkur viður endist margfalt á við annan þar sem mikil hætta er á fúa, t.d. í gluggakörmum. Fyrir utan meiri gæði viðarins er ástæðan sú að viður­inn er fúavarinn með náttúrulegu fúavarnarefni, þar sem sjávarseltan er, þegar sjórinn skil­ar honum á land.

Íbúðarhús án aðkeyptrar spýtu.
    Nefna má nýlegt dæmi um nýtingu rekaviðar sem er til fyrirmyndar. Í Þorpum í Stein­grímsfirði er mikill reki, einkum á Gálmaströnd. Lengi hefur verið góð umhirða um Þorpa­rekann og hann nýttur að fullu. Nú er verið að byggja nýtt íbúðarhús í Þorpum. Er það timburhús á steyptum grunni og ekki frábrugðið öðrum slíkum húsum sem nú eru byggð að öðru leyti en því að engin spýta hefur verið keypt í það. Allir viðir, stórir sem smáir, eru af Þorparekanum og unnir í planka og borðvið af heimamönnum. Húsið er þiljað utan með standandi viðarklæðningu og í ráði er að það verði með viðarklæðningu að innan líka, a.m.k. að hluta til. Þetta dæmi sýnir hvers virði rekinn getur verið sé honum sýndur sá sómi sem vert er.
    Það hefur verið vandamál við nýtingu rekans í annað en girðingarstaura að vöntun hefur verið á nógu nákvæmum sögum sem hentugar eru til að saga í planka og borðvið. Á því hefur nú orðið nokkur breyting. Nú eru fáanlegar nokkrar gerðir af sögum af mismunandi stærð og gerð eftir því sem hentar við hinar ýmsu aðstæður og á viðráðanlegu verði. Má þar nefna kanadíska bandsög sem kostar nálægt 1,6 millj. kr. Hún er færanleg á hjólum með mikinn tæknibúnað og mjög afkastamikil. Gæti hún hentað í stærri verkefni eða til sameignar tveggja eða þriggja samhentra bænda. Einnig væri hægt að hugsa sér verktaka sem sagaði fyrir bændur með slíkri vél í umferðarvinnu og gæti þá ef um semdist fengið vinnulaun greidd með við. Einnig má nefna norska keðjusög, mjög léttbyggða, þannig að hægt er að flytja hana hvert sem er en hægt er þó að fullvinna með henni við í góðum lengdum. Sú sög kostar aðeins um 200 þús. kr. og mundi henta mjög vel á einstökum reka­jörðum og gera mögulegt að fullvinna allan við heima.
    Líklegt er að sjóðir landbúnaðarins, Framleiðnisjóður eða Smáverkefnasjóður, mundu styrkja bændur til kaupa á slíkum tækjum til að auka verðmæti rekaviðarins vegna yfir­standandi samdráttar í hinum hefðbundnu greinum landbúnaðar.

Allan reka á að nýta.
    Þann við sem af ýmsum ástæðum hentar ekki til bygginga eða smíða er áfram hentugast að nota í girðingarstaura. Þó að rafmagnsgirðingar hafi á seinni árum nokkuð rutt sér til rúms verður áfram stöðug þörf fyrir efni í hefðbundnar girðingar, bæði hjá bændum og op­inberum aðilum, svo sem vegagerð, landgræðslu, skógrækt, sauðfjárveikivörnum og hjá bæjarfélögum.
    Til viðbótar þeim rekavið sem vinnanlegur er í byggingar eða girðingarstaura kemur á fjörur geysilegt magn af smærri við. Þennan við er sjálfsagt að nýta og auðveldasti nýt­ingarmöguleikinn er að nota hann til eldiviðar, ásamt öllum úrgangi frá viðarvinnslunni. Í viðarúrganginum er fólgin mikil orka sem ástæðulaust er að kasta á glæ. Nágrannaþjóðir okkar sem búa við mikla skóga gjörnýta allan sinn við og því skyldum við ekki gera það í skóglitlu landi. Síðasta áratuginn hafa margir bændur á Ströndum kynt íbúðarhúsnæði sitt með brennslu á úrgangsvið. Fáanlegir eru sérstakir viðarbrennarar sem henta því hlutverki vel og einnig sérstakir kurlarar sem gera þennan úrgang aðgengilegri til brennslu. Þessi notkun á úrgangsviðnum er bæði hagkvæm og nauðsynleg af umhverfisástæðum.

Markaðsmálum þarf að sinna.
    Þá er eftir að nefna eitt mikilvægasta atriðið sem þarf að vera í lagi til að hægt sé að auka verðmæti rekaviðarins, en það eru markaðsmálin.
    Verslun með afurðir frá rekaviðarvinnslu hefur til þessa að langmestu leyti farið fram sem bein viðskipti milli kaupenda og seljenda. Nokkuð hefur þó verið um það að girðingar­staurar úr rekaviði hafi verið á boðstólum hjá sumum verslunum, en áberandi er hvað hlut­ur framleiðandans í endanlegu verði er tiltölulega lítill. Veldur því m.a. mikill flutnings­kostnaður þar sem flytja þarf timbrið frá framleiðanda til verslunar og e.t.v. sömu leið til baka til neytandans. Æskilegast væri að koma upp kerfi þar sem hægt væri að koma á bein­um samböndum mill kaupenda og seljenda. Það væri hægt með því að fá einhvern aðila, einstakling eða einhver félagasamtök bænda á svæðinu til að skrá í tölvu þá framleiðslu­vöru sem væri á boðstólum hjá hverjum og einum. Síðan væri það hlutverk skráningaraðil­ans að svara fyrirspurnum kaupenda í símanúmeri sem þyrfti að auglýsa vel og leiða saman kaupanda og seljanda. Eftir það ættu þeir með sér milliliðalaus viðskipti og varan færi milli þeirra beinustu leið. Það er mikilvægt ef hægt væri að losna sem mest við milliliðakostnað og að sem mestur hluti endanlegs kostnaðarverðs gæti lent hjá framleiðandanum. Skrán­inguna mætti fjármagna með vægu skráningargjaldi.
    Nokkru fjármagni þyrfti að verja til að auglýsa afurðir frá rekaviðarvinnslu. Þar þyrftu framleiðendur að gera sameiginlegt átak og ekki væri óeðlilegt að Framleiðnisjóður eða Smáverkefnasjóður styrku slíkt átak.
    Æskilegt væri að vekja athygli á þessum vörum með fréttum og myndum í dagblöðum og tímaritum. Áhugavert væri að birta myndir og viðtöl við fólk sem býr í híbýlum sem að miklu leyti eru smíðuð úr rekaviði í einhverju af „glanstímaritunum“, t.d. Húsum og hí­býlum.
    Að lokum örfáir áherslupunktar um nýtingu og sölu rekaviðar:
 —    Allan rekavið á að hirða.
 —    Úr besta viðnum á að framleiða timbur til bygginga og smíða.
 —    Lakari viðinn á að nota í girðingarstaura.
 —    Allan úrgangsvið og úrgang frá timburvinnslu á að nota til kyndingar.
 —    Koma þarf á skipulögðu markaðskerfi á afurðum frá rekaviðarvinnslu.