Ferill 54. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.
1994. – 1064 ár frá stofnun Alþingis.
118. löggjafarþing. – 54 . mál.
54. Tillaga til þingsályktunar
um greiðsluaðlögun húsnæðislána.
Flm.: Svavar Gestsson, Kristinn H. Gunnarsson.
Alþingi ályktar að fela ríkisstjórninni að grípa tafarlaust til ráðstafana til að létta greiðslubyrði þeirra húsbyggjenda sem lent hafa í verulegum erfiðleikum með afborganir af fasteignaveðlánum húsbréfadeildar stafi greiðsluerfiðleikarnir af verulegri lækkun tekna vegna minnkandi atvinnu, veikinda eða af öðrum óviðráðanlegum ástæðum. Í því sambandi leggur Alþingi áherslu á eftirfarandi:
a. að ríkisstjórnin hefji strax viðræður við lífeyrissjóðina um endurfjármögnun fasteignaveðlána og lægri vexti þannig að unnt verði að létta greiðslubyrði fólks verulega frá því sem nú er;
b. að fjölgað verði í starfsliði Húsnæðisstofnunar svo að unnt verði að afgreiða fyrirliggjandi umsóknir um skuldbreytingar vegna greiðsluerfiðleika;
c. að undirbúin verði lagafrumvörp þar sem meðal annars verði kveðið á um þak á greiðslubyrði miðað við laun, greiðsluaðlögun og annað sem nauðsynlegt verður talið til að framkvæma vilja Alþingis samkvæmt þessari þingsályktun.
Alþingi felur fjármálaráðherra og félagsmálaráðherra að undirbúa þau lagafrumvörp sem nauðsynleg eru þannig að Húsnæðisstofnun geti frá áramótum hafið skuldbreytingar samkvæmt breyttum lagaforsendum.
Greinargerð.
Fyrir tveimur árum fluttu flutningsmenn þessarar tillögu frumvarp til laga um greiðslufrest á fasteignalánum vegna fjárhagserfiðleika. Þetta frumvarp gerði ráð fyrir því að Byggingarsjóður ríkisins, húsbréfadeild Byggingarsjóðs ríkisins og Byggingarsjóður verkamanna fengju heimild til að fresta greiðslum af lánum sem þessir aðilar hafa veitt. Gert var ráð fyrir að þær greiðslur, sem frestað yrði, yrðu færðar á sérstakan jöfnunarreikning sem teldist til höfuðstóls lánsins. Með þessum hætti töldu flutningsmenn eðlilegast að leysa þann vanda sem blasir nú við fólki vegna minnkandi tekna á undanförnum árum. Skemmst er frá því að segja að ríkisstjórnin fékkst ekki til að hlusta á þær ráðleggingar sem komu fram í frumvarpinu sem birtist sem fylgiskjal með þessu þingmáli. Þess vegna er nú flutt þingsályktunartillaga sem setur málið á dagskrá Alþingis og felur ríkisstjórninni með þeim aðferðum sem hún kýs að taka á þessum hrikalegu vandamálum sem nú blasa við þúsundum heimila sem skulda sjóðum Húsnæðisstofnunar ríkisins.
Hér er því flutt tillaga um að Alþingi feli fjármálaráðherra og félagsmálaráðherra að hefja undirbúning að breytingum á löggjöf svo að unnt verði að lengja fasteignaveðlán þegar fólk er að lenda í eða hefur lent í verulegum vanskilum með húsnæðislán. Telja flutningsmenn að verulega skorti á lagaheimildir til þess að unnt sé á hverjum tíma að laga greiðslubyrði af húsnæðislánum að greiðslugetu launafólks. Hér er því lagt til að Alþingi feli ríkisstjórninni að undirbúa þegar í stað frumvarp til laga um greiðsluaðlögun.
Í annan stað er lagt til að fleira fólk verði ráðið til Húsnæðisstofnunar þannig að biðlistar eftir þjónustu við þá sem eiga í greiðsluerfiðleikum styttist og hverfi. Í þriðja lagi er lagt til að samin verði lagafrumvörp um þessi mál þannig að greiðslubyrði af húsnæðislánum taki framvegis mið af launum viðkomandi. Þess vegna geti lánstími orðið mismunandi eftir tekjum; þeim mun meiri tekjur, þeim mun styttri lánstími og öfugt. Tilgangurinn með tillögunni er að koma þessu máli tafarlaust á dagskrá Alþingis því að þúsundir einstaklinga búa nú við algjörlega óviðunandi ástand í húsnæðismálum þar sem greiðslugeta hrekkur ekki fyrir afborgunum af lánum.
Tölur um nauðungarsölu, þar sem Húsnæðisstofnun hefur hagsmuna að gæta, segja sína sögu: Árið 1991 þurfti Húsnæðisstofnun 293 sinnum að gæta hagsmuna sinna við nauðungarsölur, 1992 330 sinnum, 1993 464 sinnum og í ár eru horfur á að Húsnæðisstofnun eigi hagsmuna að gæta við nauðungarsölu í 370 skipti, en til loka ágústmánaðar var talan komin í 250. Þetta segir hins vegar ekki allt; á árinu 1994 er gert ráð fyrir að Húsnæðisstofnun þurfi að leysa til sín 110 íbúðir á nauðungarsölum og er það hæsta talan á fimm ára tímabili. Árið 1991 var sambærileg tala 31 íbúð. Þannig er fjöldi þeirra íbúða, sem Húsnæðisstofnun leysir til sín á nauðungarsölum, fjórum sinnum hærri í ár en hann var árið 1991! Í lok ágústmánaðar sl. átti stofnunin 139 íbúðir og höfðu þá bæst við 46 íbúðir á þessu ári. Til samanburðar má geta þess að í lok ársins 1991 átti Húsnæðistofnun 48 íbúðir.
Fjöldi Fjöldi
nauðungar- greiðslu-
sölubeiðna áskorana
1992 2.511 13.460
1993 8.074 24.267
1994, ágúst 6.923 18.574
1994, spá 10.000 27.000
Uppboðsíbúðir Húsnæðisstofnunar skiptast þannig eftir kjördæmum í lok ágúst sl.
Reykjavík 26
Vesturland 6
Vestfirðir 13
Norðurland vestra 8
Norðurland eystra 13
Austurland 15
Suðurland 27
Reykjanes 30
Alls 138
Langflestir þeirra 1000 talsins, sem sækja um greiðsluerfiðleikalán, eru á aldrinum 30–50 ára. Samtals hefur verið farið yfir um 700 beiðnir vegna greiðsluerfiðleika á þessu ári, 1994. Ástæður vandans eru fyrst og fremst atvinnuleysi, 34%, og skertar tekjur, 32%. Helmingur umsækjenda er í Reykjavík en tæp 30% á Reykjanesi, þannig að það eru aðallega þessi tvö kjördæmi sem hér koma við sögu með um 80% þeirra umsókna sem Húsnæðisstofnun hefur fjallað um á þessu ári.
Í Morgunblaðinu 18. september sl. gat að líta frétt undir yfirskriftinni „Fimmta hvert húsbréf í vanskilum“. Þar er bent á að starfsmenn Húsnæðisstofnunar hafa ráðlagt um 30–40% þeirra sem sótt hafa um greiðsluerfiðleikalán að selja íbúðirnar. Þá er vandinn sá að ekkert hefur gengið að selja. Og skuldirnar hlaðast upp. Að lokum kemur að nauðungarsölu. Það er því nánast svo að í dag bíður fólk eftir nauðungarsölu til þess að finna lausn sinna mála. Svo harður er sá heimur sem þessu fólki er boðinn um þessar mundir. Í sama blaði, 29. september sl., er að finna grein þar sem sérstaklega er farið yfir vanskilin í húsbréfakerfinu. Þar kemur fram að um 5.000 af 17.000 lántakendum í húsbréfakerfinu eru með lán sín í vanskilum og um 20% þeirra hafa verið send lögfræðingum til innheimtu. Í ágústmánuði sl. námu vanskil, sem staðið höfðu í 30 daga eða lengur, 1,1 milljarði kr. Í þessari grein Morgunblaðsins segir m.a. frá fjölskyldu sem hóf að byggja sér 130 fermetra hús árið 1988. Þá hafði fjölskyldan ágætar tekjur og á sl. ári voru meðaltekjur hjóna samtals um 240 þús. kr. á mánuði. Nú hafa tekjurnar lækkað í 170 þús. kr. á mánuði. Þar með verður greiðslubyrði lána um 64% af heildartekjum. Dæmið gengur því ekki upp. Að vísu er unnt með skuldbreytingum að koma greiðslubyrðinni niður í 30% af heildartekjum, en Húsnæðisstofnun metur það svo að þessi ár verði fjölskyldunni afar erfið. Kannski sé best að selja. Allar áætlanir þessarar fjölskyldu voru réttar. Hún fór eftir reglum í einu og öllu. Hún hafði allt í skilum þar til yfir lauk og leitað var á náðir Húsnæðisstofnunarinnar. En þegar hún fór í greiðslumat í upphafi var ekki unnt að sjá fyrir þær hrikalegu kjarabreytingar sem orðið hafa síðan:
1. Vaxtabætur hafa verið lækkaðar.
2. Afföllin voru ekki reiknuð með inn í dæmið og afföllin teljast ekki vextir og skila því ekki vaxtabótum.
3. Atvinna hefur dregist saman.
4. Skattar hafa hækkað, sérstaklega hjá því fólki sem hér um ræðir.
Af þessum ástæðum og öðrum er óhjákvæmilegt að gripið verði tafarlaust til ráðstafana til að létta greiðslubyrði þess fólks sem hér um ræðir. Því er þessi tillaga flutt.
Saga húsbyggjenda.
Hér fer á eftir saga ungra hjóna sem hófu byggingu íbúðarhúsnæðis 1988. 29. september það ár keyptu þau lóðina og guldu fyrir hana 950 þús. kr. Skömmu áður höfðu þau sótt um lán í húsnæðiskerfinu eins og það var þá, svokölluðu „86-kerfi“, þar sem um var að ræða bein lán til verulegs hluta kostnaðar á miklu lægri vöxtum en greiddir eru af húsbréfum í dag. Hefðu þau sótt um 20 dögum fyrr hefðu þau örugglega verið inni í gamla kerfinu, en þessir 20 dagar áttu eftir að reynast örlagaríkir sem þó var ómögulegt að sjá fyrir á þessari stundu, í september 1988. 17. mars 1989 fengu þau tilkynningu um að þau væru með gilda umsókn og að svar um afgreiðslutíma láns mundi svo berast einum mánuði áður en fyrsti hluti lánsins kæmi til afgreiðslu. Hjónin byrjuðu þó ekki að byggja fyrr en 17. apríl 1990 og var fokheldisvottorð gefið út 12. nóvember 1990. Þau ætluðu reyndar að byrja á árinu 1989 og fengu einlægt afar jákvæð svör frá Húsnæðisstofnuninni en ekkert annað. Þess vegna sendu þau beiðni til Húsnæðisstofnunar um greiðslumat vegna húsbréfa og svarið við þeirri beiðni kom svo að segja samtímis: Já! En auðvitað vildu þau fyrst og fremst vera inni í 86-kerfinu. Þaðan urðu svörin sífellt tregari. Þau neyddust til að hefja framkvæmdir vegna þess að þau voru að missa leiguhúsnæðið sem þau höfðu haft um nokkurra ára skeið.
Þegar þau fengu ekki peninga frá opinbera kerfinu fengu þau fé úr lífeyrissjóðum, 1,7 millj. kr., og víxla fyrir efni hjá Húsasmiðjunni og BYKO. Svo urðu þau að taka íbúð á leigu í 10 mánuði fyrir 450 þús. kr. auk flutningskostnaðar.
Að lokum gáfust þau upp og tóku húsbréf á húsbréf ofan. Þau misstu 637.760 kr. í afföll af húsbréfunum. Samtals töpuðu þau í húsaleigu, afföll, kostnað og vexti um 1,5 millj. kr. Það munar um minna. Og hvernig stendur dæmið í dag? Húsið er vel að merkja ekki nærri fullbyggt enn.
Þau eru að borga af húsbréfum sem nema 7,3 millj. kr. nú. Afborgunin af þeim er alls um 50 þús. kr. á mánuði. Þau eru með tvö lífeyrissjóðslán að upphæð 1,9 millj. kr. Afborganir af þeim nema um 24 þús. kr. Afborganir nema samtals um 74 þús. kr. af skuldum upp á 9,2 millj. kr. Á árinu verða þau að borga tæplega 900 þús. kr. Til gamans má skjóta því hér inn í söguna að ef þau væru með húsbréf með 5% vöxtum þyrftu þau að borga um 51 þús. kr. minna á ári af húsbréfunum sínum. Það munar um það.
Á töflum, sem þau hafa látið flutningsmönnum í té, kemur fram að útborguð laun hafa lækkað um 20% frá því að þau gerðu sitt greiðslumat. Skattar hafa auk þess hækkað með því að skattleysismörkin hafa færst niður þannig að þau borga nú um 7.500 kr. meira á mánuði en ella. Barnabæturnar þeirra hafa lækkað, en þau eiga þrjú börn, og vaxtabæturnar hafa lækkað. Þegar upp er staðið og þau hafa borgað 74 þús. kr. á mánuði eiga þau eftir 68 þús. kr. til að lifa af á mánuði. Og þá er farið til Húsnæðisstofnunar og spurt: Hvað eigum við að gera? Og svarið er: Við getum ekkert gert fyrir ykkur fyrr en þið eruð orðin gjaldþrota. Svona svör ganga ekki og þess vegna er þessi tillaga flutt, svo að Húsnæðisstofnun geti lengt lánin verulega með endurfjármögnun þeirra.
Fylgiskjal.
Frumvarp til laga um greiðslufrest á fasteignalánum
vegna fjárhagserfiðleika.
(153. mál 116. löggjafarþings.)
I. KAFLI
Um breytingu á lögum um Húsnæðisstofnun ríkisins,
nr. 86/1988, með síðari breytingum.
1. gr.
Á eftir 127. gr. laganna koma tvær nýjar greinar og orðast svo:
a. (128. gr.)
Húsnæðismálastjórn er heimilt að veita lántakendum frest á greiðslu afborgana, vaxta og verðbóta, að hluta eða að öllu leyti, af lánum veittum til íbúðaöflunar úr Byggingarsjóði ríkisins og Byggingarsjóði verkamanna og fasteignaveðbréfum sem húsbréfadeild Byggingarsjóðs ríkisins hefur tekið við í skiptum fyrir húsbréf.
Frest skv. 1. mgr. er heimilt að veita ef atvinnuleysi, langvarandi veikindi eða aðrar sambærilegar ástæður valda verulegum fjárhagsörðugleikum hjá lánþega eða fjölskyldu hans.
Lánþegi, sem sækir um frest samkvæmt þessari grein, skal leggja fyrir húsnæðismálastjórn ítarlegar upplýsingar um tekjur, eignir, skuldir og önnur atriði er stjórnin telur máli skipta.
Frestur á greiðslum afborgana, vaxta og verðbóta, sem veittur er, getur gilt um öll lán lánþega. Veittur frestur skal hafa afmarkaðan gildistíma, þó aldrei lengri en eitt ár í senn.
Fjárhæðir afborgana, vaxta og verðbóta af lánum, sem greiðslum er frestað á samkvæmt þessari grein, skulu færðar á sérstakan jöfnunarreikning hvers láns og teljast til höfuðstóls lánsins og koma fjárhæðirnar til greiðslu eftir þeim ákvæðum sem eru í 5. gr. laga um greiðslujöfnun fasteignaveðlána til einstaklinga, nr. 63/1985.
b. (129. gr.)
Þrátt fyrir ákvæði 128. gr. skal fé til endurgreiðslu húsbréfa eftir hlutkesti, sbr. 25. gr. laga þessara, ekki skerðast og húsnæðismálastjórn gætir þess í fjárstreymi húsbréfadeildar.
2. gr.
Við ákvæði til bráðabirgða bætist nýtt ákvæði, er verði ákvæði IV, svohljóðandi:
Húsnæðismálastjórn er heimilt að færa vanskil þeirra lána er 128. gr. nær til, eins og þau eru við gildistöku laga þessara, á sérstakan jöfnunarreikning samkvæmt ákvæðum 5. mgr. 128. gr. ef ákvæði greinarinnar eiga við að öðru leyti.
II. KAFLI
Um breytingu á lögum um greiðslujöfnun fasteignaveðlána
til einstaklinga, nr. 63/1985, með síðari breytingum.
3. gr.
Á eftir 2. mgr. 5. gr. laganna kemur ný málsgrein svohljóðandi:
Enn fremur færist á jöfnunarreikning fjárhæð greiðslu sem frestað er samkvæmt ákvæðum 127. og 128. gr. laga um Húsnæðisstofnun ríkisins, nr. 86/1988, með síðari breytingum, og ákvæðis til bráðabirgða IV við sömu lög.
III. KAFLI
Gildistaka.
4. gr.
Lög þessi öðlast þegar gildi.
Greinargerð.
Frumvarp þetta er flutt til þess að draga að einhverju leyti úr þeim alvarlegu afleiðingum sem atvinnuleysi, langvarandi veikindi eða aðrar sambærilegar ástæður hafa fyrir þá sem í slíkri ógæfu lenda. Þessar tilgreindu ástæður, sérstaklega atvinnuleysi, valda fjárhagslegum þrengingum og skapa óöryggi fyrir fjölmargar fjölskyldur, m.a. í húsnæðismálum. Undanfarin missiri hefur atvinnuleysi aukist stórum skrefum og hefur í annan tíma ekki verið meira, auk þess sem allmörg dæmi eru um langvarandi atvinnuleysi. Þá eru spár um atvinnuleysi fyrir næsta ár ekki uppörvandi og gefa til kynna að atvinnuleysi muni fremur aukast en minnka.
Markmið.
Ljóst er að möguleikar þeirra, sem orðið hafa fyrir fjárhagslegum skakkaföllum, atvinnuleysi, langvarandi veikindum eða öðrum sambærilegum áföllum til þess að standa í skilum af lánum sínum, eru hverfandi. Við þessu verður að bregðast og er lagt til með frumvarpinu að heimilt verði að fresta greiðslum af lánum í byggingarsjóðum Húsnæðisstofnunar ríkisins þegar framangreindar ástæður eiga við og þannig komið í veg fyrir að opinberum íbúðalánasjóði sé skylt að knýja fram nauðungarsölu á íbúðum atvinnulauss fólks.
Þá er það ætlan flutningsmanna að jafnhliða þessari stefnubreytingu mundu stjórnvöld beina þeim tilmælum til lífeyrissjóða, banka og annarra lánasjóða að taka með svipuðum hætti tillit til þessara aðstæðna fólks og þannig verði leitast við að tryggja að atvinnulausir geti búið við sæmilegt öryggi hvað varðar íbúðarhúsnæði.
Núgildandi lagaákvæði.
Í núgildandi lögum um Húsnæðisstofnun ríkisins eru fátækleg ákvæði til að fresta greiðslum af lánum. Í 82. gr. laganna er heimild til þess að fresta greiðslum af lánum Byggingarsjóðs verkamanna ef greiðslubyrði afborgana, vaxta og verðbóta fer yfir tiltekið hlutfall af heildartekjum greiðanda. Þessi heimild gefur aðeins rétt til þess að draga greiðslu og á meðan er hún dráttarvaxtareiknuð þar til greiðsla berst.
Þá er heimild fyrir 70 ára eða eldri og fatlaða að fresta afborgunum um óákveðinn tíma ef fjárhag lánþega er þannig varið að sýnt þykir að hann fái ekki staðið undir afborgunum en aðeins af lánum sem veitt voru skv. 5. tölul. 11. gr. laga um Húsnæðisstofnun ríkisins, svonefnd sérstök lán til einstaklinga með sérþarfir.
Frekari heimildir eru ekki fyrir hendi til að fresta greiðslum. Þannig eru t.d. engar heimildir í lögunum til að fresta greiðslum af fasteignaveðlánum húsbréfadeildar Byggingarsjóðs ríkisins og verður sjóðurinn að innheimta gjaldfallnar afborganir án tillits til aðstæðna lántakenda.
Almenn lýsing.
Með frumvarpinu er lagt til að húsnæðismálastjórn verði veitt heimild til þess að fresta greiðslum af lánum, veittum til öflunar íbúðarhúsnæðis, og að sú heimild nái til allra lána sem veitt hafa verið úr Byggingarsjóði verkamanna, Byggingarsjóði ríkisins og húsbréfadeild Byggingarsjóðs ríkisins.
Enn fremur er kveðið á um það í frumvarpinu hvernig fara skuli með þær greiðslur sem frestað er og er lagt til að þær verði færðar á sérstakan jöfnunarreikning sem telst til höfuðstóls lánsins og lántakandi greiði skuld á jöfnunarreikningnum með sama hætti og kveðið er á um í 5. gr. laga um greiðslujöfnun fasteignaveðlána einstaklinga, nr. 63/1985. Í raun er um að ræða sama jöfnunarreikning og myndaður er samkvæmt fyrrgreindum lögum.
Þá er lagt til að húsnæðismálastjórn fái heimild til þess að gera upp vanskil af lánum sem myndast hafa fyrir gildistöku lagaákvæða frumvarpsins ef rekja megi þau vanskil til atvinnuleysis, langvarandi veikinda og annarra sambærilegra ástæðna. Slík vanskil yrðu gerð upp með sama hætti, þ.e. með því að flytja þau á sérstakan jöfnunarreikning hvers láns.
Athugasemdir við einstakar greinar frumvarpsins.
Um 1. gr.
Í þessari grein er lagt til að bætt verði við tveimur greinum í lög um Húsnæðisstofnun ríkisins, nr. 86/1988, sem gera húsnæðismálastjórn kleift að veita greiðslufrest af lánum til kaupa eða byggingar á íbúð án þess að greiðslufrestunin valdi truflun á endurgreiðslu húsbréfa eftir hlutkesti.
Um 128. gr.
Í 1. mgr. er skilgreint til hvaða lána heimildin nær og í 2. mgr. kveður á um hvaða aðstæður þurfa að vera fyrir hendi. Gert er ráð fyrir að réttur til frestunar á greiðslu afborgana af lánum myndist ekki sjálfkrafa, heldur þurfi lántakandi að sækja um slíkan frest og sýna fram á að hann geti ekki staðið við skuldbindingar sínar gagnvart Húsnæðisstofnun ríkisins vegna fjárhagserfiðleika og að þeir erfiðleikar stafi af atvinnuleysi, langvarandi veikindum eða öðrum sambærilegum aðstæðum. Því er kveðið á um í 3. mgr. að lánþegi þurfi að sækja um frest og leggja fram ítarlegar upplýsingar um fjárhagslega hagi sína. Húsnæðismálastjórn tekur ákvörðun um hvort veita skuli frest, í hve langan tíma og að hve miklu leyti. Þar getur verið um að ræða hluta af greiðslu hvers gjalddaga láns á frestunartíma eða alla upphæð hvers gjalddaga. Þá þarf fresturinn ekki að ná til allra lána lánþega, enda er markmiðið að lækka greiðslubyrði lánþega á frestunartíma niður í það sem hann getur ráðið við en ekki að aflétta greiðslubyrðinni með öllu ef fjárhagsástæður gefa ekki tilefni til þess.
Þá er í 4. mgr. kveðið á um að ákvörðun húsnæðismálastjórnar um greiðslufrest skuli vera tímabundin en nái þó aldrei til lengri tíma en eins árs. Hafi aðstæður lánþega ekki breyst að þeim tíma liðnum er heimilt að taka nýja ákvörðun um greiðslufrest. Með þessu ákvæði er reynt að tryggja að greiðslufrestur sé ekki veittur til lengri tíma en nauðsyn krefur.
Í 5. mgr. eru ákvæði um hvernig fara skuli með þær fjárhæðir sem frestað er og hvenær þær komi til greiðslu. Valin er sú leið að setja fjárhæðirnar inn á sérstakan jöfnunarreikning sem telst til höfuðstóls lánsins. Endurgreiðsla af þeim jöfnunarreikningi fari síðan eftir ákvæðum 5. gr. laga um greiðslujöfnun fasteignaveðlána til einstaklinga, nr. 63/1985. Í 3. gr. frumvarpsins eru sett inn í þau lög ákvæði sem koma eiga í veg fyrir að myndaðir verði tveir jöfnunarreikningar, annar samkvæmt ákvæðum þeirra laga og hinn samkvæmt ákvæðum 1. gr. frumvarpsins. Er ástæðulaust að vera með tvöfalt kerfi á sérstökum jöfnunarreikningi og því lagt til að um sama reikning verði að ræða.
Um 129. gr.
Nauðsynlegt er að setja ákvæði sem kemur í veg fyrir að endurgreiðsla húsbréfa eftir hlutkesti raskist vegna greiðslufrestunar á fasteignaveðbréfum sem húsbréfadeild Byggingarsjóðs ríkisins hefur tekið við í skiptum fyrir húsbréf.
Greiðslufrestun rýrir ekki eiginfjárstöðu húsbréfadeildar en hefur hins vegar áhrif á innstreymi fjár deildarinnar og dreifir því á lengri tíma. Lagt er til að húsnæðismálastjórn gæti þess með því að leggja deildinni til fé í staðinn og geri ráð fyrir því í áætlunum sínum.
Um 2. gr.
Ljóst er að nokkur vanskil hafa myndast á síðustu mánuðum, einkum við húsbréfadeild, vegna vaxandi atvinnuleysis. Þykir því rétt að opna heimild fyrir húsnæðismálastjórn til þess að gera upp vanskil lánþega, eins og þau eru við gildistöku laganna, með sama hætti og 1. gr. kveður á um, enda hafi þau vanskil orðið til af þeim ástæðum sem greinin kveður á um. Lánþegar verða að sækja um slíka greiðslufrestun með sama hætti og tilgreint er í 1. gr. frumvarpsins.
Um 3. gr.
Vísast til skýringa við 1. og 2. gr. frumvarpsins.
Um 4. gr.
Greinin þarfnast ekki skýringa.