Ferill 55. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: Word Perfect.
1994. – 1064 ár frá stofnun Alþingis.
118. löggjafarþing. – 55 . mál.
55. Frumvarp til laga
um breyting á áfengislögum, nr. 82 2. júlí 1969, með síðari breytingum.
Flm.: Rannveig Guðmundsdóttir, Petrína Baldursdóttir.
1. gr.
Við 13. gr. laganna bætist ný málsgrein, er verður 2. mgr., og orðast svo:
Áfengis- og tóbaksverslun ríkisins skal að höfðu samráði við landlæknisembættið og Umferðarráð merkja allar umbúðir undir áfengi, sem selt er í útsölum hennar, á áberandi stað með viðvörun, sem skal vera á íslensku og læsileg, þar sem fram kemur að áfengis
2. gr.
Lög þessi öðlast þegar gildi.
Greinargerð.
Frumvarp þetta var flutt á síðasta þingi en varð eigi útrætt.
Íslendingar voru meðal fyrstu þjóða sem lögleiddu að merkimiðar með varnaðarorð
Fósturskaðar af völdum áfengis voru mikið til umræðu fyrir um áratug og hafa síðan stöðugt verið í umfjöllun en eins og kunnugt er hafa með rannsóknum fengist óyggjandi sannanir fyrir skaðsemi þess fyrir fóstur. Erlendar tíðnitölur sýna að eitt af hverjum 750–1.000 fæddum börnum séu alvarlega skemmd af þessum sökum. Tíðnitölur eru ekki þekktar hérlendis en vitað er um nokkur börn sem eru sköðuð.
Í Bandaríkjunum var fyrir fimm árum lögleitt að viðvaranir um skaðsemi áfengis skuli vera á öllum áfengisumbúðum og er þar ekkert undanskilið, hvorki létt vín né áfengur bjór. Viðvörunin á áfengisumbúðum í Bandaríkjunum er svohljóðandi:
„Opinber viðvörun:
1. Að ráði landlæknis ættu barnshafandi konur ekki að neyta áfengis sökum hættu á fósturskaða.
2. Áfengisneysla dregur úr ökuhæfni og hæfileika til að stjórna vélum og kann að valda heilsutjóni.“
Íslenskt áfengi, sem selt er í Bandaríkjunum, er með viðvörunum eins og að ofan greinir. Annars væri sala á því ekki leyfð. Ekki verður séð að neinir tæknilegir örðugleik
Flutningsmenn vilja að lokum geta þess að þó að frumvarp þetta hafa eigi orðið útrætt síðasta vetur hafði framlagning þess samt þau áhrif að ein íslensk ölgerð, Viking Brugg hf., tók að merkja dósir sínar á svohljóðandi hátt: „Viking brugg vill benda á að áfengisneysla barns