Ferill 74. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: Word Perfect.
1994. – 1064 ár frá stofnun Alþingis.
118. löggjafarþing. – 74 . mál.
74. Frumvarp til lánsfjáraukalaga
fyrir árið 1994.
(Lagt fyrir Alþingi á 118. löggjafarþingi 1994.)
1. gr.
Eftirfarandi breyting verður á 1. gr. lánsfjárlaga fyrir árið 1994: Í stað „27.750“ kemur: 29.000.
2. gr.
Eftirfarandi breyting verður á 4. tölul. 4. gr. lánsfjárlaga fyrir árið 1994: Í stað „11.500“ kemur: 15.200.
3. gr.
Lög þessi öðlast þegar gildi.
Athugasemdir við lagafrumvarp þetta.
Með frumvarpi þessu er óskað eftir heimild Alþingis til aukinnar lántöku ríkissjóðs og húsbréfadeildar Byggingarsjóðs ríkisins.
Lántökur ríkissjóðs. Gert er ráð fyrir að gjöld umfram tekjur verði um 1.250 m.kr. meiri á árinu en áætlað var í fjárlögum og er óskað eftir heimild Alþingis til viðbótarlántöku sem því nemur. Ítarlega er gerð grein fyrir breytingum á tekjum og gjöldum ríkissjóðs í frumvarpi til fjáraukalaga. Þá er rétt að geta þess að fjármálaráðherra hefur ákveðið að nýta heimild í 5. gr. laga nr. 43/1990, um Lánasýslu ríkisins, og endurlána Húsnæðisstofnun ríkisins alt að 7.000 m.kr. þar sem útboð húsnæðisbréfa hafa ekki gengið eftir.
Húsbréf. Afgreiðsla húsbréfa var áætluð 11.500 m.kr. í lánsfjárlögum fyrir árið 1994. Útgáfan stefnir hins vegar í að verða allt að 15.200 m.kr. á þessu ári og er sótt um heimild Alþingis til viðbótarútgáfu sem því nemur. Ákveðið hefur verið að gera breytingar á húsbréfakerfinu áður en kemur til útgáfu næsta húsbréfaflokks. Í fyrsta lagi hefur reglum um greiðslumat íbúðarkaupenda verið breytt og þær hertar. Í öðru lagi hefur verið ákveðið að endurskoða reglur um veðmat þeirra eigna sem standa sem trygging fyrir fasteignaveðbréfum íbúðarkaupenda. Loks hefur verið ákveðið að hækka núgildandi ábyrgðargjald úr 0,25% í 0,35%, en andvirði gjaldsins rennur óskipt í sérstakan varasjóð sem ætlað er að mæta útlánatöpum í húsbréfakerfinu. Ábyrgðargjaldið er innheimt þannig að vextir á fasteignaveðbréfum eru 0,35% hærri en vextir þeirra húsbréfa sem skipt er fyrir. Þessar breytingar miða að því að auka fjárhagslegt öryggi húsbréfakerfisins en vanskil í því eru nú orðin mjög veruleg eins og nánar er fjallað um í frumvarpi til lánsfjárlaga fyrir árið 1995. Þær aðgerðir ættu einnig að leiða til minni útgáfu húsbréfa þannig að starfsemi húsbréfadeildar verði á næsta ári í samræmi við ákvæði lánsfjárlaga fyrir árið 1995.