Ferill 88. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: Word Perfect.
1994. – 1064 ár frá stofnun Alþingis.
118. löggjafarþing. – 88 . mál.
88. Frumvarp til laga
um samningsveð.
(Lagt fyrir Alþingi á 118. löggjafarþingi 1994.)
I. KAFLI
Almenn ákvæði.
1. gr.
Skilgreiningar.
1. Með veðrétti er í lögum þessum átt við forgangsrétt til þess að leita fullnustu fyrir kröfu (veðkröfu) í tilteknu fjárverðmæti eða fjárverðmætum (veðinu).
2. Með sjálfsvörsluveði er í lögum þessum átt við veðrétt þar sem veðsali heldur umráðum hins veðsetta þrátt fyrir veðsetninguna.
3. Með handveði er í lögum þessum átt við veðrétt þar sem veðsali er sviptur umráðum hins veðsetta.
2. gr.
Gildissvið.
1. Víkja má frá ákvæðum laga þessara með samningi nema annað sé tekið fram eða megi leiða af atvikum.
2. Með samningi verður veðréttur einungis stofnaður þannig að gildi hafi að lögum að slík veðstofnun sé heimiluð í lögum þessum eða öðrum lögum.
3. Ákvæði laga þessara víkja fyrir sérákvæðum um samningsveðsetningar í öðrum lögum.
3. gr.
Heimild til veðsetningar. Sérgreining hins veðsetta.
1. Veðréttur verður eigi stofnaður í einu lagi þannig að gildi hafi að lögum í öllu því sem veðsali á eða eignast kann.
2. Þegar réttindi eru háð þeim takmörkunum að þau eru ekki framseljanleg, eða einungis framseljanleg með vissum skilyrðum, gilda sömu takmarkanir hvað varðar heimild til þess að veðsetja réttindin.
3. Umfram það sem lög þessi eða önnur lög leyfa er eigi heimilt að setja að sjálfsvörslu
4. gr.
Tilgreining veðkröfunnar.
1. Þegar samningsveð öðlast réttarvernd við þinglýsingu er það skilyrði réttarverndar að fjárhæð veðkröfu eða hámark þeirrar kröfu, sem veðið skal tryggja, sé tilgreint í skjali því sem stofnar til veðréttarins.
2. Fjárhæð veðkröfu skv. 1. mgr. skal tilgreind í íslenskum krónum, erlendri mynt eða reiknieiningu sem hefur skráð gengi í íslenskum bönkum og sparisjóðum eða reiknieiningu sem tekur mið af skráðu gengi erlendra gjaldmiðla.
3. Heimilt er í veðbréfi að binda fjárhæðir við hækkun samkvæmt vísitölu eða gengi, enda sé það tilgreint í bréfinu sjálfu og þar komi fram tegund og grunntala verðtryggingar.
5. gr.
Sérreglur um kröfur varðandi kostnað, vexti o.fl.
Eftirtaldar kröfur eru tryggðar með aðalkröfunni nema annað leiði af samningi þeim sem til veðréttarins stofnaði:
a. kostnaður sem veðhafi hefur af innheimtu veðkröfu,
b. vextir af skuld sem fallið hafa í gjalddaga á einu ári áður en beiðni um nauðungarsölu veðsettrar eignar var sett fram,
c. krafa sem er þannig til komin að veðhafi hefur samkvæmt heimild í veðbréfi greitt iðgjöld brunatryggingar eða annarrar skaðatryggingar af hinni veðsettu eign og um er að ræða iðgjald sem fallið hefur í gjalddaga á því tímamarki sem um ræðir í b- lið hér að framan.
6. gr.
Um töku arðs af veði.
1. Þegar um sjálfsvörsluveð er að ræða á veðsali rétt til þess að hirða arð af veðinu.
2. Sá sem á veðrétt í viðskiptabréfum, innlausnarbréfum eða almennum fjárkröfum getur krafið um og móttekið vexti, arð og afborganir sem falla til á gildistíma veðsetningarinnar. Fjárhæðum þeim, sem veðhafi þannig veitir viðtöku, getur hann ráðstafað til fullnustu gjald
7. gr.
Afnotaréttur, viðhalds- og vátryggingarskylda.
1. Þegar um sjálfsvörsluveð er að ræða hefur veðsali heimild til þess að hagnýta sér veðið með venjubundnum hætti nema um annað hafi verið samið, aðfararreglur leiði til annarrar niðurstöðu eða takmarkanir séu á því gerðar í öðrum lögum.
2. Sjálfsvörsluveðhafi er skyldur til þess að annast um veðið og halda því við á þann hátt að tryggingarréttindi veðhafa skerðist ekki.
3. Ef handveðsett lausafé er afhent veðhafa er hann skyldur til þess að annast um veðið og hafa eftirlit með því á þann hátt sem nauðsyn krefur hverju sinni. Hann hefur ekki heimild til þess að hagnýta sér veðið í eigin þágu nema um slík afnot hafi verið samið sérstaklega eða slík afnot eru heimil á öðrum grundvelli.
4. Þegar um er að ræða samningsveð í fasteignum, skipum og loftförum, rekstrartækjum eða vörubirgðum er veðsali skyldur til að vátryggja veðið vegna brunatjóns og annars skaða á þann hátt sem lög áskilja eða venja er til.
8. gr.
Áhætta og ábyrgð vegna tjóns á hinu veðsetta.
1. Ef veðið eyðileggst eða skemmist af tilviljun ber eigandinn sitt tjón og veðtrygging veðhafa skerðist að sama skapi.
2. Eigandi og veðhafi eru skaðabótaskyldir hvor gagnvart öðrum samkvæmt almennum skaðabótareglum eða á sérstökum grundvelli.
9. gr.
Um eindögun veðkröfu.
1. Þótt eigi sé kominn gjalddagi kröfu getur veðhafi krafist eindögunar kröfu sinnar í eft
a. þegar skylda til greiðslu vaxta og afborgana hefur verið vanefnd verulega,
b. þegar ákveðin hefur verið nauðungarsala á hinu veðsetta,
c. þegar bú skuldara eða eiganda veðs er tekið til gjaldþrotaskipta,
d. þegar eigandi eða veðsali misnotar í verulegum atriðum umráðarétt sinn yfir veðinu eða vanefnir með öðrum hætti verulega skyldur sínar skv. 7. gr. laga þessara,
e. þegar veðið eyðileggst eða skemmist af tilviljun og það leiðir til þess að veðtryggingin skerðist verulega,
f. þegar veðið er selt, enda hafi veðhafi áskilið sér heimild til eindögunar í veðbréfi.
2. Áður en eindögunar verður krafist skv. d-lið 1. mgr. skal veðhafi með hæfilegum fresti gera eiganda eða veðsala viðvart og gefa þeim kost á að efna skyldur sínar réttilega, nema því aðeins að frestur geti leitt til tjóns.
3. Ef ákvæði í veðsamningi heimilar eindögun veðskuldar í öðrum tilvikum en þeim sem greind eru í 1. mgr. er heimilt að víkja slíku ákvæði til hliðar í heild eða að hluta eða breyta því ef það yrði talið ósanngjarnt eða andstætt góðri viðskiptavenju að bera það fyrir sig.
10. gr.
Framsal og veðsetning á veðrétti.
1. Gagnvart eiganda (veðsala) getur veðhafi framselt veðrétt sinn og sett hann að veði, framveðsett, nema um annað hafi verið samið eða slíkar takmarkanir megi leiða af atvikum.
2. Ef krafa sú, sem tryggja skal, verður ekki framseld gildir hið sama um veðréttinn til tryggingar kröfunni.
3. Framsalshafi eða framveðhafi öðlast ekki meiri rétt gagnvart veðsala en veðhafi sjálfur átti nema annað leiði af traustfangsreglum.
11. gr.
Framsal á veðinu.
1. Veðréttur er því eigi til fyrirstöðu að hinu veðsetta (veðandlaginu) sé afsalað nema annað leiði af samningi eða ákvæðum laga. Sérstakt afsal á hlutum veðandlagsins eða á fylgifé þess er aðeins heimilt með samþykki veðhafa nema slíkt afsal skerði ekki tryggingar
2. Ákvæði 1. mgr. eiga einnig við um aðrar ráðstafanir með löggerningi en afsal.
12. gr.
Sameiginlegt veð.
1. Þegar tvö eða fleiri sjálfstæð fjárverðmæti í eigu sama eiganda eða fleiri eigenda standa til fullnustu sömu veðkröfu á veðhafi rétt til þess að leita fullnustu í því veðandlagi eða þeim veðandlögum, sem hann sjálfur kýs, til fullnustu allrar kröfunnar nema um annað hafi verið samið eða takmarkanir séu á því gerðar í lögum.
2. Ef veðhafi hefur fengið fullnustu í einu veðandlaginu fyrir stærri hluta veðkröfunnar en þeim sem samkvæmt réttarsambandinu milli aðila skyldi falla á það veðandlag eiga aðrir veðhafar í því veðandlagi, og eftir atvikum eigandinn sjálfur, rétt til þess að ganga inn í veð
13. gr.
Um sambandið milli fleiri veðrétta.
Þegar tveir eða fleiri eiga veðrétt í sama fjárverðmæti gengur eldri réttur fyrir yngri rétti nema annað leiði af samningi eða reglum er áskilja tilteknar tryggingaráðstafanir til verndar rétti.
14. gr.
Útlausn.
1. Þegar veðhafi hefur sett fram beiðni um nauðungarsölu geta aðrir veðhafar krafist þess að fá að leysa til sín veðrétt hans gegn greiðslu veðkröfunnar allrar í reiðufé.
2. Ef fleiri veðhafar en einn vilja neyta útlausnarréttar gengur sá fyrir sem fremstur er í forgangsröð. Síðari veðhafi getur ekki krafist þess að fá að leysa til sín veðrétt fyrri veðhafa ef fyrri veðhafi vill beita útlausnarrétti gagnvart síðari veðhafa.
II. KAFLI
Um samningsveð í fasteignum.
15. gr.
Það sem veðsett verður.
1. Eignarréttur yfir fasteign, sérstök réttindi yfir fasteign og eignarhlutdeild í fasteign verða veðsett eftir reglum þessa kafla.
2. Nú er skipting fasteignar háð samþykki tiltekins stjórnvalds og verður afmarkaður hluti fasteignarinnar þá ekki veðsettur sérstaklega fyrr en viðkomandi stjórnvald hefur veitt sam
16. gr.
Afmörkun veðréttar í fasteign.
1. Ef annað leiðir ekki af samningi nær veðréttur í fasteign til:
a. lands eða lóðar,
b. húsa og annarra bygginga og mannvirkja sem reist hafa verið eða verða á landi eða lóð,
c. lausafjár sem við kaup og sölu telst venjulegt fylgifé þeirrar fasteignar sem veðsetningin nær til og
d. sameignarréttinda, afnotaréttinda, félagsréttinda og annarra réttinda sem heyra til hinni veðsettu eign.
2. Um veðsetningu rekstrartækja ásamt fasteign í atvinnurekstri gilda ákvæði III. kafla laga þessara.
17. gr.
Afmörkun veðréttar í varanlegum
afnotarétti lands og húsa o.fl. sem á landi eru.
1. Veðsetning á varanlegum afnotarétti til lands og húsa o.fl., sem á landinu eru, nær til allra þeirra réttinda sem veðsali nýtur samkvæmt afnotasamningi.
2. Reglur b- og c-liða 1. mgr. 16. gr. og 2. mgr. 16. gr. eiga hér einnig við.
18. gr.
Veðsetning aðgreindra eignarhluta.
1. Veðréttur í eignarhluta í fjölbýlishúsi nær til:
a. þeirrar einingar sem veðsali á eignarrétt að, þ.e. séreignar hans, og
b. tilheyrandi hlutdeildar í sameign, þar með talin eignarlóð eða leigulóðarréttindi.
2. Ákvæði 1. mgr. eiga einnig við um annað húsnæði en íbúðarhúsnæði, svo sem atvinnu- og verslunarhúsnæði, eftir því sem við getur átt.
19. gr.
Réttarvernd.
Veðréttur samkvæmt kafla þessum öðlast réttarvernd við þinglýsingu í fasteignabók í samræmi við ákvæði þinglýsingalaga. Hið veðsetta verður áfram í umráðum veðsala nema um annað hafi verið samið.
20. gr.
Yfirtaka veðskuldar.
1. Nú tekur kaupandi fasteignar í samningi við seljanda að sér greiðslu veðskuldar sem hvílir á hinni seldu eign. Verður kaupandi þá við þinglýsingu afsals skuldbundinn gagnvart veðhafa og seljandi þá jafnframt laus undan skuldbindingu sinni ef ákvæði er þess efnis í veðbréfinu að skuldin gjaldfalli ekki þrátt fyrir eigendaskipti að veðinu. Þó er veðhafa heim
2. Í öðrum tilvikum en þeim sem greinir í 1. mgr. verða skuldaraskipti því aðeins skuld
III. KAFLI
Um samningsveð í lausafé.
A. Almenn ákvæði.
21. gr.
Meginregla um réttarvernd.
Um stofnun og réttarvernd samningsveðs í lausafé fer eftir ákvæðum laga þessara og eftir því sem ákveðið er í öðrum lögum.
22. gr.
Handveð.
1. Heimilt er að stofna til handveðréttar í lausafé.
2. Handveðréttur öðlast réttarvernd við afhendingu veðsins til veðhafa eða aðila sem tek
3. Ef veðið er í umráðum annars en eiganda á gildistíma veðsetningarinnar öðlast handveðréttur einnig réttarvernd þegar umráðamaður hefur fengið tilkynningu um veðsetninguna og um það að eigandinn ráði ekki yfir veðinu. Ef umráðamaður neitar að hafa umráð hins veðsetta fyrir veðhafa öðlast veðrétturinn ekki réttarvernd við tilkynninguna.
4. Veðsetning á handveðrétti öðlast réttarvernd við það að hið veðsetta lausafé er afhent framveðhafa. Reglur 2. og 3. mgr. eiga hér einnig við.
23. gr.
Sjálfsvörsluveð í lausafé.
1. Heimilt er að stofna til sjálfsvörsluveðréttar í einstökum lausafjármunum.
2. Um stofnun sjálfsvörsluveðréttar í lausafé skal gera bréflegan gerning. Um réttarvernd slíks veðréttar gilda ákvæði þinglýsingalaga um réttarvernd sjálfsvörsluveðs í lausafé.
3. Reglur 20. gr. um yfirtöku veðskuldar eiga við með sama hætti þegar skráningarskyldu lausafé er afsalað.
B. Veð í rekstrartækjum, rekstrarveð.
24. gr.
Afmörkun veðréttarins.
1. Þegar rekstraraðili veðsetur fasteign sem er varanlega útbúin með þarfir tiltekins at
2. Með rekstrartækjum er átt við vélar, tæki, áhöld, innréttingar, innbú og annan útbúnað.
3. Veðréttur í rekstrartækjum, sem á hvílir söluveð, nær til þess réttar sem veðsali á hverju sinni í viðkomandi hlut.
4. Veðréttur í rekstrartækjum samkvæmt þessari grein nær hvorki til skráningarskylds lausafjár né heldur þeirra verðmæta sem verða veðsett samkvæmt ákvæðum 28., 29., 30., 31. og 32. gr.
5. Veðrétturinn nær til rekstrartækjanna í heild eins og þau eru á hverjum tíma. Ef rekstur veðsala skiptist í fleiri einingar sem rekstrarlega séð eru aðskildar og þar sem atvinnurekst
6. Eftir að fasteign hefur verið veðsett með rekstrartækjum verður ekki stofnað til veðrétt
25. gr.
Rekstraraðili.
Með rekstraraðila er átt við:
a. sérhvern þann aðila sem hefur með höndum einhvers konar atvinnurekstur, svo sem hlutafélag, samvinnufélag, sameignarfélag, samlagsfélag eða firma einstaks manns,
b. aðra aðila sem hafa atvinnurekstur með höndum þótt eigi sé reksturinn í hagnaðarskyni, svo sem sjúkrahús, barnaheimili, skóla, söfn, íþrótta- og afþreyingarstofnanir, félags
26. gr.
Réttarvernd.
Rekstrarveð öðlast réttarvernd þegar réttinum er þinglýst ásamt veðrétti í viðkomandi fasteign eða fasteignum.
27. gr.
Framsal veðsettra rekstrartækja.
1. Veðsali getur skipt út eða framselt veðsett rekstrartæki svo lengi sem slíkt er í sam
2. Eftir að veðhafi hefur komið fram greiðsluáskorun til undirbúnings fullnustugerðar til innheimtu veðkröfu hefur veðsali ekki lengur rétt til þess að skipta út eða framselja rekstrar
3. Þegar rekstrartæki hafa verið seld í samræmi við ákvæði 1. og 2. mgr. þessarar greinar og seljandinn hefur ekki lengur umráð þeirra fellur veðrétturinn í tækjunum brott.
4. Ef eigandi veðsettra rekstrartækja hefur umfram þá heimild, sem greinir í 1. og 2. mgr., framselt öðrum hið veðsetta öðlast veðhafinn veðrétt, sams konar og hann átti í veðandlag
5. Um fjárnám í fasteign og rekstrartækjum skv. 24. gr. laga þessara gilda ákvæði 42. gr. laga um aðför, nr. 90/1989.
C. Veð í færanlegum vélbúnaði í verktakastarfsemi.
28. gr.
1. Rekstraraðila, sem stundar verktakastarfsemi, er heimilt að setja að sjálfsvörsluveði einu nafni færanlegan vélbúnað sem heyrir atvinnurekstri hans til og ekki er skráningarskyld
2. Veðréttur í vélbúnaði skv. 1. mgr. öðlast réttarvernd með þinglýsingu á blað eiganda í lausafjárbók í samræmi við ákvæði þinglýsingalaga.
3. Ákvæði 3. og 5. mgr. 24. gr., 25. gr., 26. gr. og ákvæði 1.–4. mgr. 27. gr. um framsal eiga hér við, eftir því sem við getur átt.
D. Veð í rekstrartækjum landbúnaðar, búfé og afurðum.
29. gr.
Rekstrartæki og greiðslumark.
1. Við veðsetningu jarðar er heimilt að semja svo um að jörðinni skuli fylgja rekstrartæki þau sem notuð eru við atvinnurekstur í landbúnaði. Veðsetning rekstrartækjanna gerist þá samtímis veðsetningu jarðarinnar.
2. Með rekstrartækjum samkvæmt framansögðu er átt við áhöld, vélar og tæki, önnur en ökutæki sem skráningarskyld eru samkvæmt umferðarlögum.
3. Veðréttur í rekstrartækjum landbúnaðar öðlast réttarvernd þegar réttinum er þinglýst ásamt veðrétti í viðkomandi jörð.
4. Þegar jörð er sett að veði er heimilt að semja í veðbréfi að veðrétturinn nái einnig til greiðslumarks jarðar.
5. Ákvæði 3., 5. og 6. mgr. 24. gr. og 1.–5. mgr. 27. gr. eiga hér við með sama hætti þegar veðsett eru rekstrartæki landbúnaðar.
30. gr.
Bústofn, rekstrarvörur, afurðir og uppskera.
1. Þeim sem stunda atvinnurekstur í landbúnaði er heimilt að setja að sjálfsvörsluveði einu nafni tiltekna flokka bústofns síns. Með bústofni í þessu sambandi er t.d. átt við sauðfé, hross og nautgripi; alifugla, svín og loðdýr; seiði, eldisfisk og hafbeitarfisk.
2. Framleiðendum landbúnaðarvara og öðrum, sem eignast vörur þessar til vinnslu eða endursölu til annarra en neytenda, er heimilt að setja að sjálfsvörsluveði einu nafni rekstrar
3. Við veðsetningu skv. 1. og 2. mgr. skiptir verkunar- eða framleiðslustig ekki máli.
4. Veðréttur í afurðum og bústofni öðlast réttarvernd með þinglýsingu á blað veðsala í lausafjárbók í samræmi við ákvæði þinglýsingalaga.
5. Um framsal á bústofni, rekstrarvörum, afurðum og uppskeru, sem veðsett hefur verið samkvæmt ákvæðum 1. og 2. mgr., gilda einnig, eftir því sem við geta átt, ákvæði 1.–4. mgr. 27. gr. laga þessara.
E. Veð í búnaði skipa, afla, sjávarafurðum og rekstrarvörum sjávarútvegs.
31. gr.
Búnaður skipa og veiðiheimildir.
1. Þeim er veðsetur skip er rétt að semja svo um að skipinu skuli fylgja, auk venjulegs fylgifjár, annað lausafé sem ætlað er til nota á skipinu, svo sem olíubirgðir þær sem í skipinu eru hverju sinni, veiðarfæri, skipsbúnaður og önnur áhöld.
2. Veðsetningin gerist samtímis veðsetningu viðkomandi skips. Veðrétturinn öðlast réttar
3. Þegar skip er sett að veði er heimilt að semja í veðbréfi að veðrétturinn nái einnig til veiðiheimilda skips.
4. Ákvæði 3., 5. og 6. mgr. 24. gr. og 1.–4. mgr. 27. gr. eiga hér við, eftir því sem við getur átt.
32. gr.
Afli, afurðir og rekstrarvörur.
1. Útgerðarmönnum, framleiðendum sjávarafurða og þeim sem eignast vörur þessar til vinnslu eða endursölu til annarra en neytenda er heimilt að setja að sjálfsvörsluveði einu nafni afla, tilgreindar tegundir afurða og rekstrarvörur sem veðsali á eða eignast kann eða hefur til sölumeðferðar.
2. Við veðsetningu skv. 1. mgr. skiptir verkunar- eða framleiðslustig ekki máli.
3. Veðréttur í afla, rekstrarvörum og afurðum öðlast réttarvernd með þinglýsingu á blað réttsala í lausafjárbók í samræmi við ákvæði þinglýsingalaga.
4. Við veðsetningu skv. 1. mgr. gilda um framsal ákvæði 1.–4. mgr. 27. gr. laga þessara.
F. Veð í vörubirgðum.
33. gr.
Afmörkun veðréttarins.
1. Rekstraraðilum er heimilt að setja að sjálfsvörsluveði vörubirgðir atvinnurekstrar síns.
2. Með vörubirgðum er átt við það sem rekstraraðilinn á eða eignast kann af:
a. hráefni, vörum í vinnslu, fullunnum vörum og verslunarvörum,
b. rekstrarvörum og öðrum vörum sem notaðar eru í atvinnurekstrinum,
c. búnað utan um framleiðsluvörur rekstrarins.
3. Veðrétturinn má ná til vörubirgða veðsala í heild eða til nánar tilgreinds hluta birgð
4. Veðréttur í vörubirgðum nær ekki til þeirra verðmæta sem ákvæði 28.–32. gr. taka til.
34. gr.
Réttarvernd.
1. Veðréttur í vörubirgðum skv. 33. gr. öðlast réttarvernd með þinglýsingu á blað veðsala í lausafjárbók í samræmi við ákvæði þinglýsingalaga.
2. Um veðrétt í vörubirgðum gilda ákvæði 1.–4. mgr. 27. gr.
G. Söluveð.
35. gr.
Hverjar kröfur unnt er að tryggja.
Í tengslum við sölu lausafjár er heimilt að semja um veðrétt í hinu selda (söluveð) til tryggingar:
a. kröfu seljanda til endurgjaldsins ásamt vöxtum og kostnaði eða
b. láni sem þriðji maður hefur veitt kaupanda til greiðslu kröfu þeirrar sem nefnd er í staflið a, í heild eða að hluta, enda hafi lánveitandi greitt lánsfjárhæðina beint til seljanda.
36. gr.
Hver verðmæti verða ekki sett að söluveði.
Söluveð verður ekki stofnað í hlutum sem ætlaðir eru til endursölu þótt kaupverðið hafi ekki verið greitt. Þetta tekur þó ekki til þeirra tilvika þar sem heimilt er að selja hlut eftir að á honum hafa verið gerðar endurbætur eða þar sem um er að ræða fylgifé eða hluta aðalhlut
37. gr.
Bann við framsali og veðsetningu.
Hlut, sem á hvílir söluveð, má hvorki selja né veðsetja án samþykkis þess veðhafa sem söluveð á, sbr. þó 36. gr.
38. gr.
Réttarvernd og fullnusta.
1. Það er skilyrði fyrir réttarvernd samnings um söluveð að samningurinn sé gerður skrif
2. Til þess að söluveð í skráningarskyldum lausafjármunum öðlist réttarvernd verður að auki að þinglýsa veðinu á blað veðsala í þinglýsingabók, sbr. ákvæði 2. mgr. 23. gr. laga þessara. Þetta gildir þó ekki um fylgifé slíks lausafjár.
3. Í samningi verður að greina sérstaklega þau verðmæti sem veðrétturinn skal ná til og það kaupverð eða þá lánsfjárhæð sem tryggja skal. Ef fleiri hlutir en einn eru keyptir með söluveði í einu lagi nær veðrétturinn til allra hlutanna til tryggingar allri þeirri fjárhæð sem kaupandinn skuldar.
4. Ef samið er um söluveð bæði til tryggingar kröfu seljanda og til tryggingar láni sem þriðji maður hefur veitt skal líta svo á að veðréttir þessir séu jafnstæðir nema annað leiði af samningi.
5. Þegar vanskil verða á greiðslu krafna þeirra sem greinir í 35. gr. getur veðhafi leitað fullnustu kröfu sinnar með því að krefjast nauðungarsölu, enda hafi hann áskilið sér þá heim
39. gr.
Viðskeyting.
Söluveð fellur brott ef söluhlutur er skeyttur við fasteign eða annan aðalhlut á þann hátt að aðskilnaður mundi leiða til óhóflega mikils kostnaðar eða ósanngjarnrar verðmætisrýrn
40. gr.
Umbætur.
Söluveð fellur brott ef endurbætur eða tilkostnaður hafa í verulegum atriðum breytt eðli söluhlutarins eða verðmæti eftir að hann var afhentur kaupanda.
41. gr.
Fyrning.
Krafa sú, sem tryggð er með söluveði, fyrnist á fjórum árum frá þeim degi er hún varð gjaldkræf. Óþinglýst söluveð til tryggingar slíkri kröfu fellur úr gildi um leið og krafan fyrn
42. gr.
Um rétt sem jafna má til söluveðs.
1. Ef seljandi eða sá sem veitt hefur lán til kaupa á hlut hefur áskilið sér eignarrétt í hinu selda þar til kaupverðið eða lánið er að fullu greitt eða hann hefur áskilið sér rétt til þess að taka hlutinn við greiðslufall skal með slíkan samning farið sem þar sé um söluveðssamning að ræða.
2. Leigusamninga eða svipaða samninga, sem í raun hafa það að markmiði að tryggja greiðslu endurgjalds, ber að skoða sem samninga um sölu og söluveð ef það er ætlunin að leigjandinn verði eigandi hlutarins eftir að hafa greitt ákveðinn fjölda leigugreiðslna.
3. Þótt eigi sé það ætlunin að leigjandinn verði eigandi eða hafi rétt til þess að verða eig
IV. KAFLI
Samningsveð í viðskiptabréfum, innlausnarbréfum og almennum fjárkröfum.
A. Viðskiptabréf.
43. gr.
Viðskiptabréf má setja að handveði eða sjálfsvörsluveði. Ef viðskiptabréf er sett að hand
B. Innlausnarbréf.
44. gr.
1. Heimilt er að veðsetja kröfur eða réttindi samkvæmt innlausnarbréfi þótt eigi sé það viðskiptabréf.
2. Veðréttur skv. 1. mgr. öðlast réttarvernd í samræmi við reglur um handveð, sbr. ákvæði 2.–4. mgr. 22. gr. Veðsetning veðréttar öðlast réttarvernd með sama hætti.
C. Almennar fjárkröfur.
45. gr.
Hverjar almennar fjárkröfur verða veðsettar.
1. Almenna fjárkröfu, sem maður á á hendur nafngreindum skuldara, er heimilt að veð
2. Með almennri fjárkröfu er átt við fjárkröfu sem hvorki er viðskiptabréfskrafa né krafa samkvæmt innlausnarbréfi.
46. gr.
Réttarvernd.
1. Veðréttur í almennum kröfum öðlast réttarvernd við það að skuldarinn fær tilkynningu um veðsetninguna, annaðhvort frá veðsala eða veðhafa.
2. Veðsetning slíks veðréttar öðlast réttarvernd með sama hætti.
D. Vörureikningsveð.
47. gr.
1. Rekstraraðila er heimilt að veðsetja þær almennu kröfur sem hann á eða fær í rekstri sínum eða aðgreindum hluta rekstrarins. Er þá eigi nauðsynlegt að skuldari sé nafngreindur.
2. Skuldari samkvæmt vörureikningi leysist undan greiðsluskyldu sinni með greiðslu til kröfuhafa ef hann hefur ekki fengið tilkynningu um annan viðtakanda greiðslu.
3. Samningur sá, sem nefndur er í 1. mgr., öðlast réttarvernd gagnvart þriðja manni við þinglýsingu á blað rekstraraðila í lausafjárbók.
4. Ákvæði 25. gr. eiga við um samninga samkvæmt þessari grein. Ákvæði 4. gr. eiga hér ekki við.
V. KAFLI
Um gildistöku, brottfallin lög o.fl.
48. gr.
1. Lög þessi öðlast gildi 1. júlí 1994 og eiga við um þá veðsamninga sem til er stofnað eftir gildistöku laganna.
2. Við gildistöku laga þessara falla úr gildi lög um veð, nr. 18 4. nóvember 1887, lög um forgangsrétt veðhafa fyrir vöxtum, nr. 23 13. september 1901, og lög um veðtryggingu iðn
3. Framkvæmd laga þessara heyrir undir dómsmálaráðherra.
Athugasemdir við lagafrumvarp þetta.
I.
Inngangur.
Frumvarp þetta, sem flutt er af dómsmálaráðherra, var lagt fram á 116. löggjafarþingi en hlaut þá eigi afgreiðslu og er það nú endurflutt óbreytt. Upphafleg drög að frumvarpinu voru samin af Þorgeiri Örlygssyni prófessor. Af hálfu dómsmálaráðuneytisins var leitað umsagnar m.a. eftirtalinna aðila: Lögmannafélags Íslands, sýslumannsins í Reykjavík, sjávarútvegs
Við samningu frumvarpsins var nokkur hliðsjón höfð af þeirri endurskoðun sem Norð
II.
Íslensku veðlögin frá 1887 og breytingar á þeim.
Gildandi íslensk lög um veð eru að stofni til frá árinu 1887, þ.e. lög nr. 18 frá 4. nóvember 1887. Frá setningu veðlaganna hafa verið gerðar ýmsar breytingar á þeim, bæði til þess að svara nýjum þörfum sem til hafa komið á síðustu áratugum vegna breyttra atvinnuhátta og af öðrum ástæðum. Má hér t.d. vísa til þeirra breytinga sem gerðar voru á lögunum 1927, 1929, 1930, 1933, 1953, 1960, 1986 og 1989. Enn fremur hafa eftir gildistöku veðlaganna verið sett sérlög sem mælt hafa fyrir um sérstakar veðsetningarheimildir ákveðnum atvinnu
Flestir, sem til þekkja, munu sammála um að hvorki veðlögin í upphaflegri mynd sinni né heldur framangreindar breytingar, sem gerðar hafa verið á þeim, nægi til þess að svara nú
Frumvarp það til nýrra íslenskra laga um samningsveð, sem hér liggur fyrir, hefur það að meginmarkmiði að bæta úr framangreindum annmörkum með því að laga íslensk veðlög að nútíma atvinnu- og viðskiptaháttum. Þá má og segja að gildistaka nýrra laga um aðför og nauðungarsölu 1. júlí 1992, þ.e. laga nr. 90/1989 og laga nr. 90/1991, kalli á ýmsar breyt
III.
Meginefni veðlaganna frá 1887.
Í raun er efni íslensku veðlaganna frá 1887 afar fábrotið, bæði hvað varðar efnisreglur um veðsetningar og reglur um fullnustu veðkrafna. Þegar frá eru talin ákvæði 6.–8. mgr. 4. gr. laganna um heimild til lækkunar þinglestrar- og stimpilgjalda og um undanþágur frá slíkum gjöldum má flokka efni laganna með eftirfarandi hætti:
a. Fyrst er að geta ákvæða laganna um handveð. Er þar annars vegar um að ræða þá réttarfarsreglu 1. gr. laganna sem veitir handveðhafa beina uppboðsheimild, en lagaákvæði þetta féll reyndar úr gildi 1. júlí 1992 við gildistöku laga nr. 90/1991, um nauðungarsölu. Hins vegar er hvað handveð varðar það efnisákvæði 2. gr. að lánardrottinn missi eigi kröfu sína þótt handveð glatist nema vangæslu hans sé um að kenna.
b. Í annan stað hafa veðlögin að geyma reglur um bann við allsherjarveðsetningu, sbr. ákvæði 1. mgr. 4. gr., og reglur um bann við sjálfsvörsluveðsetningu í heildarsafni muna, sbr. 2. mgr. 4. gr.
c. Í þriðja lagi hafa lögin að geyma ýmsar undantekningar frá reglu 2. mgr. 4. gr. um bann við sjálfsvörsluveðsetningu í heildarsafni muna. Er hér annars vegar um að ræða ákvæði 3.–4. mgr. 4. gr. og 9. gr. og hins vegar ákvæði 5. og 6. gr.
Um önnur atriði en þau sem greind eru í a–c-liðum hér að framan fjalla íslensku veðlögin ekki, en rétt er að taka fram að mikilvægar veðsetningarheimildir er að finna í sérlögum, t.d. lögum nr. 47/1972, um veðtryggingu iðnrekstrarlána, og lögum nr. 21/1966, um skrásetningu réttinda í loftförum.
IV.
Um þörfina fyrir endurskoðun gildandi laga.
Auk þeirra almennu atriða, sem nefnd voru í I–III hér að framan, eru það eftirtalin atriði sem einkum gera það aðkallandi að sett verði ný veðlög hér á landi:
Í fyrsta lagi er það svo að ákvæði íslenskrar löggjafar um samningsveð er að finna á víð og dreif í löggjöfinni og eru ákvæði þessi frá ýmsum tímum. Hið elsta þessara ákvæða var lengi opið bréf frá 11. desember 1869 handa Íslandi er nákvæmar kveður á um innheimtu á kröfum með forgangsréttindi hjá þeim mönnum sem hafa látið aðra fá sjálfsvörsluveð í lausa
Í öðru lagi ber að hafa í huga að íslensku veðlögin verða tæpast talin almenn veðlög í eig
Í þriðja lagi er það svo að breytingar þær, sem gerðar hafa verið á veðlögunum frá setn
Þótt lagabreytingar þessar hafi án efa komið þeim atvinnugreinum til góða sem breyting
Í fjórða lagi er það svo að með breyttum atvinnu- og viðskiptaháttum hafa skapast nýjar aðstæður og þarfir sem gildandi lög svara ekki. Þá hafa orðið til réttindi sem höfundar veð
V.
Almenn sjónarmið við endurskoðun veðlaganna.
Eins og rakið er í upphafi almennra athugasemda hefur frumvarp þetta það að markmiði að bæta úr vanköntum þeim sem eru á gildandi íslenskum veðlögum og laga veðreglurnar að breyttum atvinnu- og viðskiptaháttum. Var sú leið farin, eins og frumvarpið ber með sér, að semja frá grunni ný lög í stað þess að semja viðbætur við gildandi lög.
Við þá endurskoðun gildandi veðlaga, sem er grundvöllur frumvarps þessa, hefur verið til margra atriða að líta:
1. Fyrsta atriðið, sem taka þurfti afstöðu til, var það hvert skyldi verða gildissvið nýrra íslenskra veðlaga, þ.e. hvort lögin skyldu fjalla um samningsveð einvörðungu eða um samn
Frumvarp þetta hefur einungis að geyma reglur um samningsveðsetningar, enda þörfin fyrir endurskoðun lagareglna um samningsveðsetningar mun brýnni en setning almennra reglna um lögveð og dómveð. Þá má og benda á að ýmis ákvæði íslensku þinglýsingalaganna og nýju lögin um aðför og nauðungarsölu, sem tóku gildi 1. júlí 1992, draga úr þörf þess að settar verði almennar reglur um aðfararveð og lögveð í íslensk veðlög.
2. Við samningu frumvarpsins hefur verið leitast við að skoða veðréttindi í samhengi við önnur tryggingarréttindi, en einskorða ekki athugunina við þau réttindi ein sem hefðbundið er að kalla veðréttindi. Hefur í þessu samhengi verið hugað að því hvort ekki sé rétt að skipa ýmsum tryggingarréttindum, sem samstöðu eiga með veðréttindum, á borð með þeim. Bera þessa merki t.d. ákvæði III. kafla frumvarpsins um söluveð.
3. Þá verður við endurskoðun sem þessa að taka afstöðu til þess hversu rúmar veðsetning
4. Gagnvart kröfuhöfum er álitaefnið um veðsetningarheimildir fyrst og fremst það, hversu víðtækar heimildir skuldari eigi að hafa til þess að binda eignir sínar til tryggingar skuldum sem hann stendur í við ákveðna kröfuhafa. Er eðlilegt að sú spurning vakni, hvort þeir kröfuhafar, sem ekki hafa aflað sér eða ekki hafa átt þess kost að afla sér sérstakrar tryggingar fyrir kröfum sínum, eigi ekki líka að eiga einhverja möguleika til þess að fá fulln
Hafa í þessu sambandi komið upp vangaveltur um það að e.t.v. sé rétt að takmarka veð
Ýmis vandkvæði eru þessu þó samfara, t.d. þau að þar með er dregið úr verðmæti veðsins sem tryggingar séð frá sjónarhóli veðhafa, en slíkt skerðir að sjálfsögðu möguleika eiganda veðsins til þess að fá lán með tryggingu í veðandlaginu. Hefur sjónarmiðum í þessa átt því yfirleitt verið hafnað, t.d. nú síðast við endurskoðun norsku veðlaganna. (Ot. prp. nr. 39 1977–78, bls. 19.) Hagsmuni þeirra sem ekki eiga þess kost að afla kröfum sínum verndar, t.d. launþega, verður að verja með öðrum hætti. Má í því sambandi benda á lög nr. 52/1992, um ábyrgðasjóð launa vegna gjaldþrota.
VI.
Helstu breytingar sem frumvarpið gerir ráð fyrir.
Ef frumvarp þetta verður óbreytt að lögum munu helstu breytingar á íslenskum reglum um samningsveðsetningar verða þessar:
1. Gildi taka almenn lög sem að meginstefnu til ná til allra samningsveðsetninga, en laga
2. Heimildir til veðsetninga í þágu atvinnuveganna verða rýmkaðar til mikilla muna ef frumvarpið verður að lögum. Felast breytingarnar annars vegar í því að heimildin til þess að veðsetja lausafé með fasteignum atvinnurekstrar sem sérstakt fylgifé verður gerð almenn og tekur til allra þeirra sem atvinnurekstur stunda, sbr. ákvæði 24. gr., en nær ekki einungis til tiltekinna rekstraraðila, eins og nú er. Verður með þessu eytt því mikla misræmi, sem nú ríkir í þessum efnum milli einstakra atvinnugreina. Hins vegar felst breytingin í því að fleiri lausafjárverðmæti verða sett að sjálfsvörsluveði sem heildarsöfn muna en gildandi réttarregl
3. Lögfestar verða reglur um stofnun, réttarvernd og framsal handveðréttinda, en skráð efnisákvæði hefur skort í íslenskan rétt um handveð ef frá er talið ákvæði 2. gr. veðlaganna sem áður er getið.
4. Lögfestar verða reglur um ýmis þýðingarmikil almenn atriði sem sett ákvæði skortir um í gildandi rétt. Skal í því sambandi t.d. bent á ákvæði frumvarpsins um töku arðs af veði, afnotarétt, viðhalds- og vátryggingarskyldu, áhættu og ábyrgð vegna tjóns á hinu veðsetta, eindögun veðkröfu, framsal og veðsetningu á veðrétti, framsal veðandlags, sameiginlegt veð, útlausnarrétt og afmörkun veðréttar.
5. Eytt verður óvissu um það, hver er gildandi réttur í dag varðandi ýmis veðréttarleg álitaefni sem gildandi löggjöf lætur ósvarað. Skal í því sambandi t.d. bent á ákvæði 20. gr. frumvarpsins um yfirtöku veðskulda í fasteignakaupum, en í þeim efnum hefur íslensk dóma
6. Lögfestar verða réttarreglur um eignarréttarfyrirvara sem í frumvarpinu er kallaður söluveð, en skráðar réttarreglur skortir hér á landi um þess háttar tryggingarréttindi. Hér er um þýðingarmikil tryggingarréttindi að ræða sem mikið er tíðkað að nota í viðskiptum með ýmsar algengar verslunarvörur og því full þörf á að setja skýrar reglur um. Skipar frumvarp
7. Lögfestar verða almennar reglur um stofnun og réttarvernd samningsveðs í viðskipta
8. Þá gerir frumvarpið ráð fyrir því að lögfestar verði réttarreglur um svokallað „factor
9. Enn má nefna að í gildandi réttarreglur skortir ákvæði um það að hvaða marki veðþola er heimilt að ráðstafa einstökum munum út úr heildarsöfnum sem löglega hafa verið sett að sjálfsvörsluveði. Þar sem frumvarp þetta gerir ráð fyrir auknum heimildum til þess að setja heildarsöfn muna að sjálfsvörsluveði er nauðsynlegt að byggja á samræmdum reglum í þeim efnum. Sér þess stað í ákvæðum 27. gr. frumvarpsins.
10. Loks er þess að geta að í sérstökum kafla frumvarpsins, þ.e. II. kafla, er fjallað um samningsveð í fasteignum. Fasteignir eru án efa það verðmæti sem mesta þýðingu hefur við veðsetningar í dag, en þrátt fyrir það skortir að mestu skráð efnisákvæði um veðsetningar þeirra ef frá eru talin ákvæði þinglýsingalaga um réttarvernd. Er í frumvarpinu tekin afstaða til þess, hver réttindi yfir fasteignum verða veðsett; hvernig afmarka beri veðréttinn; fjallað er um veðsetningu í varanlegum afnotarétti lands og húsa; um veðsetningu aðgreindra eignar
Nánari grein fyrir þeim atriðum, sem hér hafa verið nefnd, er gerð í athugasemdum við einstakar greinar frumvarpsins og vísast til þeirra.
VII.
Um nokkrar meginreglur frumvarpsins.
Hér verður í stuttu máli gerð grein fyrir nokkrum meginreglum og meginsjónarmiðum sem frumvarp þetta byggir á.
1. Formkröfur við ákveðnar veðsetningar.
Eðlilegt er að þeirri spurningu sé varpað fram, hvort ekki sé rétt í nýjum veðlögum að gera það að skilyrði fyrir gildi sjálfsvörsluveðsamninga að þeir skuli jafnan vera skriflegir. Má færa það fram til stuðnings slíkri reglu að hún sé til þess fallin að skapa aukið öryggi í samskiptum veðhafa og veðþola og gagnvart þriðja manni.
Gegn slíkri reglu mæla hins vegar þau rök að það er almennt séð ekki skilyrði fyrir gildi samninga milli aðila að íslenskum rétti að þeir séu skriflegir. Bæði fasteignum, lausafé og ýmiss konar réttindum, eins og t.d. kröfuréttindum, verður afsalað með munnlegum samningi og hægt er að stofna til afnotaréttinda yfir fasteignum og lausafé þótt eigi séu samningar um það efni skriflegir. Eru þá vandséð rök þess að krafan um skriflegan gerning gildi um veð
Þá má og til viðbótar benda á að það að afla veðsamningi réttarverndar er einn mikilvæg
Með framangreind rök í huga byggir frumvarpið á þeirri meginreglu að það sé ekki skil
Í 23. gr. frumvarpsins ræðir um stofnun sjálfsvörsluveðs í lausafé, en um slíkan veðrétt skal gera skriflegan gerning. Um rök fyrir reglunni vísast til athugasemda við 23. gr., en þar er í raun verið að vísa til þeirrar reglu sem fram kemur í 22. gr. þinglýsingalaga, nr. 39/1978, sbr. 5. mgr. 47. gr. sömu laga. Í 1. mgr. 38. gr. frumvarpsins er það og gert að skilyrði fyrir réttarvernd samnings um söluveð að samningurinn sé gerður skriflega, og í síðasta lagi sam
2. Sérgreiningarreglan.
Við setningu veðlaganna árið 1887 var sérstaklega að því stefnt að reisa skorður við mistnotkun á almennri veðsetningu (generalpant) sem svo var kölluð, sbr. ákvæði 1. mgr. 4. gr. laganna. Afleiðing reglunnar er sú að veðréttur verður ekki stofnaður í öllu því sem veð
Þá var að því stefnt við setningu veðlaganna árið 1887 að reisa skorður við sjálfsvörslu
Með ákvæðum 1. og 2. mgr. 4. gr. veðlaganna var lögfest hin svokallaða sérgreiningar
Veðlögin gerðu þó frá upphafi ákveðnar undantekningar frá framangreindri meginreglu um bann við sjálfsvörsluveðsetningu í heildarsafni muna. Annars vegar er heimilt að setja að sjálfsvörsluveði tiltekin heildarsöfn muna sem fylgifé fasteignar, skips eða loftfars sem stofnað er til sjálfsvörsluveðréttar yfir enda þótt ekki sé um fylgifé að ræða samkvæmt al
Óhætt er að segja að sérgreiningarreglan í núverandi mynd sinni þjóni vel tilgangi sínum. Hún getur þó aldrei með öllu komið í veg fyrir að veðsali setji að veði allt það sem hann á. Reglan kemur hins vegar í veg fyrir að slíkt gerist ósundurgreint í einum og sama veðgern
3. Tilgreiningarreglan.
Önnur hlið sérgreiningarreglunnar er sú, hvort setja eigi það skilyrði að upphæð veðkröfu þurfi jafnan að koma fram í veðbréfi. Víða erlendis gildir sú regla, a.m.k. hvað varðar veð í fasteignum, að upphæð veðkröfu eða a.m.k. hámark hennar verður að vera ákveðin. Hefur regla þessi í íslenskum fræðiritum ýmist verið nefnd sérgreiningarregla (Ólafur Lárusson, Fyrirlestrar um veðréttindi, bls. 20) eða tilgreiningarregla (Gaukur Jörundsson, Um veðrétt
Í reglu þessari, sem í frumvarpinu er nefnd tilgreiningarregla, sbr. 4. gr. frumvarpsins, felst eins og áður segir að tilgreina verður í veðskjali upphæð veðkröfu. Styðst reglan við þau rök að æskilegt sé að menn geti fengið vissu um það hversu háar veðskuldir hvíli á eign
Tilgreiningarreglan er í sjálfu sér ekki trygging fyrir því að skuldbinding sú, sem veðið á að tryggja, sé í raun og veru til. Þá kemur reglan heldur ekki í veg fyrir að raunveruleg skuld sé lægri en tilgreind veðkrafa. Reglan er þó almennt til þess fallin að stuðla að fastari skipan veðlána og hún spornar að vissu marki við því að lánardrottnum sé ívilnað sviksam
Með þessi rök í huga er í 4. gr. frumvarpsins lagt til að reglan verði tekin upp í veðlög, en regla frumvarpsins er að nokkru sama efnis og 23. gr. þinglýsingalaga. Er í sjálfu sér ekk
Krafan um tilgreiningu fjárhæðar veðkröfu beinist að réttarverndinni, þ.e. um er að ræða skilyrði fyrir réttarvernd. Samningurinn er gildur milli aðila þótt kröfunni sé ekki fullnægt, en hann veitir takmarkaða réttarvernd.
4. Áhættusjónarmið.
Það liggur í eðli veðréttarins sem tryggingarréttar að verðmæti veðsins á því tímamarki, þegar til fullnustu kemur, er það sem skiptir öllu máli fyrir veðhafa. Atvik, sem leiða til þess að verðmæti veðsins rýrnar, geta því haft afdrifaríkar afleiðingar fyrir veðhafa.
Ýmis atvik geta leitt til þess að verðmæti veðsins rýrnar eða verður að engu. Má þar bæði nefna tilviljunarkennda atburði og atvik sem rekja má til hátternis veðþola, veðhafa eða þriðja manns. Þá má og í þessu samhengi nefna það að verðmæti veðsettrar eignar getur rýrnað smátt og smátt við venjubundna notkun eignar.
Sett ákvæði hefur skort í íslenskan rétt um það hver eigi að bera áhættuna af eyðileggingu eða rýrnun veðsins ef frá er talið það ákvæði 2. gr. veðlaganna að eigi missi lánardrottinn kröfu sína þótt handveð glatist nema vangæslu hans sé um að kenna. Nokkur áhöld hafa verið um það hvernig skilja beri ákvæði þetta.
Ólafur Lárusson taldi (Fyrirlestrar um veðréttindi, bls. 48) að ekki yrði hjá því komist að beita reglunni þannig að vangæsla veðhafa á varðveislu veðsins hefði þær afleiðingar að veðkrafan félli niður ef hún leiddi til þess að veðið glataðist. Gaukur Jörundsson telur (Um veðréttindi, bls. 40) að þrátt fyrir orðalag 2. gr. veðlaganna nái ábyrgð veðhafa á skyldu til varðveislu veðsins tæpast lengra en svo að hann verði að bæta það tjón, sem af hefur hlotist, eftir atvikum með því að veðkrafan verði lækkuð sem því nemur.
Talið hefur verið samkvæmt íslenskum rétti að handveðhafa beri að gæta þess að vinna ekki spjöll á veðinu. Skylda hans er þó talin ná lengra þar sem hann verður einnig að gera þær ráðstafanir sem nauðsynlegar eru til varðveislu þess. Að öðrum kosti getur hann bakað sér bótaábyrgð gagnvart veðþola. Þegar um sjálfsvörsluveð í fasteign og lausafé er að ræða verður veðþoli að annast viðhald veðsins. Hann má ekki haga notum sínum þannig að veðið hljóti tjón af eða verði fyrir eyðileggingu eða sliti sem fer fram úr því sem eðlilegt er. Þá má hann heldur ekki rýra verðgildi veðsins. (Gaukur Jörundsson, Um veðréttindi, bls. 42 og bls. 68.) Reglur 2. og 3. mgr. 7. gr. frumvarpsins byggja á sömu sjónarmiðum og hér hafa verið rakin.
Í 8. gr. frumvarpsins er reynt að marka skýrar línur um áhættuna af eyðileggingu eða rýrnun veðandlagsins. Af ákvæðum 1. mgr. 8. gr. leiðir að það er veðtryggingin sem tapast en ekki veðkrafan, sjá nánar skýringar við 8. gr.
Í tengslum við reglur um áhættuskipti hefur 2. mgr. 8. gr. að geyma ákvæði um bótaskyldu veðhafa og veðsala á „grundvelli almennra skaðabótareglna eða á sérstökum grundvelli“. Handveðhafi getur t.d. orðið bótaskyldur gagnvart veðþola ef hann vanrækir varðveislu
5. Framsal og veðsetning á veðrétti.
Framsal veðréttar hefur í för með sér skipti á kröfuhöfum í veðréttarsambandinu. Slík að
6. Sjálfsvörsluveðsetningar í lausafé.
Þess var áður getið að við samningu frumvarps þessa var höfð hliðsjón af þeim breyting
Réttarreglum um samningsveð er misjanlega skipað meðal einstakra þjóða. Stafar það af því að óheft heimild til veðsetninga og ákvörðunar um fyrirkomulag þeirra hefur óhjákvæmilega í för með sér öryggisleysi í fjárhagslegum samskiptum manna. Hefur þetta sjónar
Í íslenskum rétti hefur sú meginregla gilt að sjálfsvörsluveðsetningar í lausafé eru heimil
Þar sem síst virðist ástæða til þess að íslenskum rétti að þrengja heimildir til þess að setja lausafé að sjálfsvörsluveði er við það miðað í frumvarpinu að lausafé verði hvort heldur sem er handveðsett eða það sett að sjálfsvörsluveði, sbr. 21.–23. gr. frumvarpsins. Þó er leitast við sem fyrr að haga reglunum þannig að af sjálfsvörsluveðsetningum í lausafé stafi ekki hætta og þá einkum fyrir almenna kröfuhafa veðsala. Er nánari grein gerð fyrir því í almenn
7. Um veðsetningar í heildarsafni muna.
Þótt frumvarpið miði við það að sjálfsvörsluveðsetningar í lausafé séu heimilar byggir frumvarpið eigi að síður á því eins og gert er í gildandi rétti að óheimilt sé að setja að sjálfs
Regla 2. mgr. 4. gr. gildandi veðlaga kemur óbreytt fram í 3. mgr. 3. gr. frumvarpsins. Er þar við það miðað að óheimilt sé, umfram það sem veðlög eða önnur lög heimila, að setja að sjálfsvörsluveði safn af munum sem eru samkynja eða ætlaðir til samkynja notkunar og einkenndir eru einu almennu nafni.
Frá meginreglu þessari eru þó gerðar ýmsar veigamiklar undantekningar í frumvarpinu. Koma þessar undantekningar annars vegar fram í 24., 29. gr. og 31. gr., þar sem heimilað er að setja að sjálfsvörsluveði tiltekin lausafjárverðmæti ásamt fasteign eða skipi. Fjallar 24. gr. almennt um svokallað rekstrarveð, þ.e. veðsetningu lausafjármuna, sem notaðir eru í at
Hins vegar koma þessar undantekningar fram í 28., 30., 32. og 33. gr. frumvarpsins þar sem heimilað er að setja að sjálfsvörsluveði safn muna, en þó án þess að samtímis séu veð
8. Um uppfærslurétt og útlausnarrétt.
Við setningu veðlaganna í Noregi árið 1980 var í sjálfu sér viðurkennt að þörf væri á því að setja í lög reglur um uppfærslurétt réttlægri samningsveðhafa í fasteign. Að áliti nefndar þeirrar, sem samdi frumvarp til veðlaganna, var hins vegar talið eðlilegra að slíkum ákvæð
Það þykir af ýmsum ástæðum ekki eðlilegt að skipa lagareglum um uppfærslurétt í veð
Hins vegar hefur frumvarpið að geyma í 14. gr. ákvæði um útlausnarrétt veðhafa og vísast til athugasemda við 14. gr. um efni þess réttar og skilyrðin fyrir beitingu hans.
9. Framsal einstakra muna út úr löglega veðsettu heildarsafni.
Þess er áður getið í almennum athugasemdum að möguleikar manna til þess löglega að veðsetja heildarsöfn muna aukast verulega ef frumvarp þetta verður að lögum. Óljóst er sam
Sú meginregla, sem frumvarpið byggir á, kemur fram í 1. mgr. 27. gr. þess. Þar er megin
Í 4. mgr. 27. gr. ræðir um afleiðingar þess að veðsali hefur umfram þá heimild, sem grein
Sömu reglur og hér voru raktar eiga jafnan við þegar heildarsöfn hafa samkvæmt frum
10. Sérgreining einstakra muna þegar veðsett eru heildarsöfn.
Af ákvæðum 1. og 3. mgr. 3. gr. frumvarpsins leiðir að haldið er í þá meginreglu íslensks réttar að sjálfsvörsluveð verði einungis sett í einstaklega ákveðnum munum. Verður því í veðbréfi að gera nægilega grein fyrir því, hver hin veðsetta eign er, og sé um fleiri eignir að ræða verður almennt að telja þær allar upp í veðbréfinu og auðkenna hverja einstaka þeirra nægilega.
Þess er hins vegar áður getið að frumvarp þetta mun, ef að lögum verður, auka mjög möguleika manna til þess að veðsetja heildarsöfn muna, ýmist ein sér eða saman með fast
Þannig kemur fram í athugasemdum við 26. gr. frumvarpsins að þegar veðsett eru rekstr
VIII.
Tengsl veðreglna við reglur um aðför.
Þess er áður getið að ákveðið samspil er á milli efnisreglna um veðréttindi og reglna um aðför. Þarf t.d. að samræma reglur veðlaganna og reglur aðfararlaganna varðandi fram
Athugasemdir við einstakar greinar frumvarpsins.
Um I. kafla.
Í I. kafla frumvarpsins, þ.e. 1.–14. gr. er gert ráð fyrir lögfestingu ýmissa almennra reglna á sviði veðréttar. Eiga reglur kaflans við um allar samningsveðsetningar, hvert svo sem veðandlagið er. Sumar þessara reglna hafa gilt hér á landi lögfestar, t.d. 1. mgr. 3. gr. frumvarpsins um bann við allsherjarveðsetningu (svokallað generalpant), sem er sama efnis og 1. mgr. 4. gr. veðlaganna frá 1887 og 3. mgr. 3. gr. frumvarpsins um bann við því að setja að sjálfsvörsluveði safn samkynja muna (heildarsöfn muna), en sú grein er sama efnis og 2. mgr. 4. gr. gildandi laga.
Þá hafa aðrar reglur I. kafla verið taldar gilda hér á landi ólögfestar, t.d. að nokkru leyti ákvæði 7. gr. um afnotarétt, viðhalds- og vátryggingarskyldu, og ákvæði 8. gr. frumvarpsins um áhættu og ábyrgð vegna tjóns á hinu veðsetta. Enn eru í kaflanum settar fram reglur, sem óljóst er, að hve miklu leyti hafa gilt hér á landi, sbr. t.d. 14. gr. frumvarpsins um útlausnar
Í íslenskum rétti er ekki til að dreifa settum lagaákvæðum um skipti á veðskuldum og um uppfærslurétt réttlægri samningsveðhafa, þegar veðréttindi rétthærri veðhafa falla niður eða þrengjast. Þegar samningsákvæðum sleppir, hefur verið talið, að réttarstaðan hvað upp
Um 1. gr.
Í 1. gr. er að finna skilgreiningar á nokkrum grundvallarhugtökum, sem fyrir koma í frum
Í veðlögunum frá 1887 er ekki að finna skilgreiningu á hugtakinu veðréttur. Í fræðiritum (t.d. Gaukur Jörundsson, Um veðréttindi, bls. 13) eru það talin megineinkenni veðréttinda, að þau heimili veðhafa að krefja veðþola um fjárgreiðslu og forgangsrétt til þess að taka fullnustu þeirrar greiðslu, sé hún ekki innt af hendi, af verðmæti tiltekinnar eignar, veðsins. Ólafur Lárusson (Fyrirlestrar um veðréttindi, bls. 16) skilgreinir hugtakið á svipaðan hátt. Hann segir, að veðréttindi séu réttindi, sem veiti heimild til þess að krefja um fjárgreiðslu og til þess að taka fullnustu þeirrar greiðslu, sé hún ekki innt af hendi, af peningaverði ákveðinnar eignar, og gangi þessi réttur veðhafa fyrir rétti almennra kröfuhafa.
Hugtakið veðréttur í 1. mgr. 1. gr. frumvarpsins er skilgreint með svipuðum hætti. Þar kemur fram, að með veðrétti í frumvarpinu sé átt við forgangsrétt til þess að leita fullnustu fyrir kröfu (veðkröfu) í tilteknu fjárverðmæti eða fjárverðmætum (veðinu). Hugtaksskil
Veðsetning fasteignar, þar sem eigandi (veðþoli) býr á eigninni og hefur áfram not henn
Dæmi um handveðsetningu er það hins vegar, þegar einstakir lausafjármunir eru afhentir veðhafa til umráða, sbr. 2. mgr. 22. gr. frumvarpsins. Einnig þegar viðskiptabréf er afhent banka til tryggingar endurgreiðslu láns, sbr. ákvæði 43. gr. frumvarpsins. Það einkennir veð
Ef frumvarp þetta verður að lögum aukast að miklum mun möguleikar manna til þess að setja lausafjárverðmæti að sjálfsvörsluveði, og á það sérstaklega við um sjálfsvörsluveð í hinum svokölluðu heildarsöfnum muna, sbr. 28., 30., 32. og 33. gr. frumvarpsins. Þar sem ýmsar hættur geta verið slíkum veðsetningum samfara, er nauðsynlegt að búa svo um hnút
Um 2. gr.
Í 2. gr. eru almenn ákvæði um gildissvið frumvarpsins, þ.e. að hvaða marki ákvæði þess, ef að lögum verða, eru frávíkjanleg og um stöðu þeirra gagnvart sérlögum.
Rétt þykir, að það komi fram í almennu veðlögunum, hvort og að hvaða marki lögin eru frávíkjanleg. Samkvæmt 1. mgr. 2. gr. er heimilt að víkja frá ákvæðum laganna með samn
Samkvæmt 2. mgr. 2. gr. verður veðréttur einungis stofnaður, þannig að gildi hafi að lög
Í 3. mgr. 2. gr. frumvarpsins segir, að ákvæði laganna víki fyrir sérákvæðum um samn
Um 3. gr.
Í 1. og 3. mgr. 3. gr. frumvarpsins kemur fram hin svokallaða sérgreiningarregla, sem nánar er vikið að í almennum athugasemdum með frumvarpinu.
Regla 1. mgr. er sama efnis og regla 1. mgr. 4. gr. gildandi laga um bann við allsherjar
Þótt segja megi, að efni 2. mgr. 3. gr. leiði af almennum reglum, þykir rétt að orða slíka reglu í veðlögum. Veðsetning, sem brýtur gegn ákvæðinu, getur verið ógildanleg í heild eða að hluta, en niðurstaða í þeim efnum ræðst af efni þeirrar lagareglu eða þess samnings
Regla 3. gr. frumvarpsins hefur, eins og áður segir, að geyma fyrirmæli, er varða gildis
Um 4. gr.
Með frumvarpsgrein þessari, sem er að nokkru sama efnis og 23. gr. þinglýsingalaga, nr. 39/1978, er lagt til, að lögfest verði í íslenskum rétti hin svokallaða tilgreiningarregla, sem nánar er vikið að í almennum athugasemdum.
Ákvæði 23. gr. laga nr. 39/1978 hafa verið skilin þannig, að tilgreina verði, þegar um veðskjöl er að ræða, í ákveðinni gjaldgengri mynt, hvert sé verðmæti aðalgreiðslu samkvæmt þeirri skuldbindingu, sem veðið á að tryggja, en í tryggingarbréfum megi þó láta sitja við há
Í Danmörku hefur 3. mgr. 10. gr. þinglýsingalaganna, sem er fyrirmynd 23. gr. íslensku þinglýsingalaganna, verið túlkuð svo, að hámarksfjárhæð í tryggingarbréfi sé heildargreiðsla (sjá t.d. Lene Pagter Kristensen. Tinglysningsloven, bls. 150). Til þess að veðbréfi verði þinglýst þar í landi, verður veðbréfið annaðhvort að greina ákveðna fjárhæð eða ábyrgðin að vera takmörkuð við ákveðið hámark. Í síðastnefnda tilvikinu er ekki hægt að áskilja sér tryggingu fram yfir hámarksfjárhæðina, hvorki fyrir vöxtum né kostnaði við innheimtu kröfu (sjá t.d. Knud Illum, Tinglysning, bls. 100, og W.E. von Eyben, Panterettigheder, bls. 124).
Í Noregi gildir á hinn bóginn sú regla, að þótt tryggingarbréf greini hámarksfjárhæð, er ekkert því til fyrirstöðu, að veðið standi að auki til fullnustu vöxtum og kostnaði við inn
Sú tilhögun, sem gildir í Danmörku og hér var lýst, hefur ýmsa kosti og helstan þann, að viðsemjendur veðþola geta þá treyst því, þegar um tryggingarbréf með hámarksfjárhæð er að ræða, að veðið standi einvörðungu til fullnustu þeirri hámarksfjárhæð, sem tilgreind er, og ekki öðrum greiðslum. Til þess er hins vegar að líta, að framkvæmd hér á landi virðist hafa verið með öðrum hætti, og verður ekki séð, að af þeirri framkvæmd hafi skapast vand
Áskilnaður 1. mgr. 4. gr. um, að geta verði fjárhæðar aðalkröfu í veðsamningi eða hámarks hennar, lýtur að skilyrðum þess, að afla veðsamningi réttarverndar gagnvart þriðja manni. Samningur, sem fullnægir ekki skilyrði 1. mgr. 4. gr., getur í sjálfu sér verið gildur milli aðilanna, en samningurinn nýtur hins vegar takmarkaðrar réttarverndar gagnvart þriðja manni.
Regla 1. mgr. 4. gr. á einungis við, þegar um er að ræða samningsveð, sem öðlast réttar
Í 2. mgr. 4. gr. er lagt til, að fjárhæð veðkröfu megi tilgreina hvor heldur sem er í íslensk
Fræðimenn hafa skýrt 23. gr. þinglýsingalaga, nr. 39/1978, sem vikið er að hér að fram
Í 3. mgr. 4. gr. er lagt til, að sérstaklega verði tiltekið, að heimilt sé í veðbréfi að binda fjárhæðir við hækkun samkvæmt vísitölu eða gengi, enda sé fyrirmælum um tilgreiningu á gengi eða tegund og grunntölu verðtryggingar fylgt.
Talið hefur verið í íslenskum rétti, að slík ólögfest heimild sé fyrir hendi (Gaukur Jör
Um 5. gr.
Í þessari frumvarpsgrein er gert ráð fyrir því, að lögfestar verði ákveðnar undantekningar frá þeirri meginreglu 4. gr. frumvarpsins, að það sé skilyrði réttarverndar veðréttinda, að fjárhæð veðkröfu þurfi að vera tilgreind eða hámark þeirrar kröfu, sem veðið á að tryggja.
Sjónarmið þau, sem búa því að baki að undanskilja ákveðnar kröfur frá áskilnaði 1. mgr. 4. gr. um tilgreiningu fjárhæðar eða hámarksfjárhæðar, eru mismunandi. Í fyrsta lagi má nefna, að um er að ræða kröfur, sem að jafnaði fylgja aðalkröfu sem viðbót, eins og t.d. vext
Þýðing 5. gr. felst ekki í því, að hún sé heimild þess, að veðrétturinn nái til þeirra krafna, sem þar eru upptaldar, heldur í hinu, að þegar umræddar kröfur fylgja tiltekinni aðalkröfu, er það ekki nauðsynlegt skilyrði réttarverndar að tilgreina tiltekna fjárhæð eða tiltekna há
Um a-lið.
Í a-lið 5. gr. kemur fram, að krafa veðhafa vegna kostnaðar við innheimtu veðkröfu fellur utan áskilnaðar 1. mgr. 4. gr. um tilgreiningu fjárhæðar eða hámarksfjárhæðar. Skal í þessum efnum minnt á þá reglu 2. mgr. 1. gr. aðfararlaga, nr. 90/1989, að aðför til fullnustu þeim kröfum, sem um getur í 1. mgr. 1. gr. aðfararlaga, verður, eftir því sem við á, einnig gerð fyr
Í því orðalagi a-liðar, að um sé að ræða kostnað af innheimtu veðkröfu, felst ákveðin tak
Um b-lið.
Samkvæmt reglum, sem taldar eru gilda hér á landi ólögfestar, er veðréttur talinn ná til aukagreiðslna eins og vaxta og dráttarvaxta, þótt ekki sé við samningsákvæði að styðjast (Gaukur Jörundsson, Um veðréttindi, bls. 28, og Ólafur Lárusson, Fyrirlestrar um veðrétt
Þótt það sé meginregla samkvæmt gildandi rétti, að veðréttur nái til aukagreiðslna eins og vaxta, sætir sá veðréttur ákveðnum takmörkunum hvað forgangsrétt varðar. Í lögum nr. 23/1901, um forgangsrétt veðhafa fyrir vöxtum, segir að sé skuldunauti veittur gjaldfrestur á vöxtum af skuld, sem fasteignaveð er fyrir, eftir að þeir eru komnir í gjalddaga, þá haldist ekki forgangsréttur veðhafa fyrir vöxtunum gagnvart síðari veðhöfum lengur en í eitt ár frá því þeir komu í gjalddaga. Er tilgangur reglu þessarar sá að koma í veg fyrir, að veðhafi geti veitt skuldara óhæfilega gjaldfresti á kostnað annarra veðhafa. Þeir vextir, sem umfram eru árið, færast aftar í veðröðinni.
Samkvæmt forsögu sinni og upphaflegum tilgangi tekur umrætt lagaákvæði til samnings
Um c-lið.
Í c-lið 5. gr. kemur fram, að áskilnaður 1. mgr. 4. gr. nær ekki til kröfu, sem þannig er til komin, að veðhafi hefur samkvæmt heimild í veðbréfi greitt iðgjöld brunatryggingar eða ann
Brunatryggingar og aðrar skaðatryggingar gegna þýðingarmiklu hlutverki í flestum veð
Af ákvæðum c-liðar leiðir, að veðhafi, sem greitt hefur vátryggingariðgjald, nýtur sama forgangsréttar hvað varðar þá fjárhæð, sem hann hefur greitt í iðgjald, og veðréttur hans varðandi aðalkröfu nýtur. Þetta getur að sjálfsögðu leitt til þess, að tryggingarréttindi ann
Óeðlilegt er, að unnt sé að safna upp iðgjaldagreiðslum þeim, sem um ræðir í c-lið. Því gildir sú takmörkun, að undanþáguheimildin nær til iðgjaldagreiðslna fyrir eitt ár fram að því tímamarki, sem nefnt er í b-lið. Í því felst, að það eru aðeins iðgjöld í eitt ár, reiknað fram að því tímamarki, sem um ræðir í b-lið, sem njóta forgangsréttar án sérstaks áskilnaðar eða tilgreiningar.
Í 5. gr. frumvarpsins kemur fram sú skýringarregla, að kröfur þær, sem nefndar eru í ákvæðinu, fylgja aðalkröfu og njóta sama forgangsréttar og hún, svo fremi sem önnur niður
Um 6. gr.
Talið er samkvæmt gildandi rétti, að það fari fyrst og fremst eftir samningi aðila, hvernig háttað sé afstöðu veðréttinda til arðs af veðsettri eign, og gildir það bæði um borgaralegan arð og náttúrulegan arð. Með borgaralegum arði er venjulega átt við endurgjald fyrir afnot og hagnýtingu, sem eigandi hefur heimilað öðrum af veðsettri eign, t.d. leigugjald og vextir. Með náttúrulegum arði er venjulega átt við verðmæti, sem við hagnýtingu eignar eru frá henni skilin, svo sem ull af fé, hey af túni, möl úr námu, svo nokkur dæmi séu nefnd.
Ekki er ávallt unnt að komast að niðurstöðu um það á grundvelli skýringa á veðsamningi, hvernig háttað sé afstöðu veðréttinda til arðs af veðsettri eign. Hafa í því sambandi ýmsar viðmiðunarrreglur verið orðaðar, bæði hvað varðar sjálfsvörsluveðsetningar og handveð
Um 1. mgr.
Ákvæði 1. mgr. 6. gr. frumvarpsins byggir á því, að eigandinn eigi, þegar um sjálfsvörslu
Ekki þykir ástæða til að setja í frumvarpið sérstakar reglur um töku arðs af handveðsettri eign. Er í fyrsta lagi erfitt að setja fram reglu, sem átt getur við í öllum tilvikum, auk þess sem þau tilvik eru afar fátíð, þar sem reynir á rétt til töku arðs af handveðsettu lausafé. Er eðlilegast, að úr slíkum álitaefnum leysi aðilar í samningum sínum, t.d. þannig að veðhafi eigi rétt til arðs af veðsettri eign á meðan hann hefur vörslur hennar. Rétt er þó að vekja á því athygli, að ákvæði 2. mgr. eiga samkvæmt orðalagi sínu bæði við um sjálfsvörsluveð
Um 2. mgr.
Regla 2. mgr. 6. gr. um veð í viðskiptabréfum, innlausnarbréfum og almennum fjárkröfum er sérregla, sem gengur framar reglu 1. mgr. í þeim tilvikum, þar sem krafa er sett að sjálfs
Ef innleysa ber handveðsett skjal eða kröfu, er aðstaðan hins vegar önnur. Veðtryggingin fellur brott við innlausn, og því verður veðhafi að geta haldið hjá sér innlausnarfjárhæðinni, einnig til tryggingar ógjaldföllnum hlutum veðkröfunnar. Því er orðuð sérregla um innlausn
Hækkun hlutafjár í hlutafélagi með útgáfu svonefndra jöfnunarhlutabréfa verður án þess að greitt sé nýtt fé inn til félagsins. Þar sem til verða fleiri hlutir í félaginu en áður, er sú hætta fyrir hendi, að verðmæti hlutanna minnki. Því getur verið nauðsynlegt, að veðréttur í hlutabréfum nái einnig til hins hækkaða hlutafjár, hvort sem gefin hafa verið út ný hlutabréf eða ekki, ef veðhafi á að njóta þess öryggis, sem hann mátti reikna með í upphafi. Þykir eðli
Hvað varðar veð í kröfum þá skal hér til samanburðar minnt á ákvæði 3. mgr. 44. gr. að
Um 7. gr.
Ákvæði 1. mgr. er í samræmi við gildandi rétt, en veðþoli hefur verið talinn hafa heimild til þess að hafa umráð og afnot veðandlagsins, þrátt fyrir veðsetninguna. Við það er miðað, að aðilar geti samið á annan veg. Þá geta ákvæði aðfararlaga takmarkað heimild veðþola til þess að hafa umráð veðsetts verðmætis, sbr. t.d. 56. og 57. gr. aðfararlaganna nýju, sem tak
Ákvæði 2. og 3. mgr. eru í samræmi við ólögfestar reglur, sem hér á landi hafa verið tald
Í 4. mgr. er lögð sú skylda á herðar veðsala að vátryggja veðið vegna brunatjóns og ann
Þótt ekki sé við lagaskyldu að styðjast, hefur sú venja víða myndast í ákveðnum lögskipt
Um 8. gr.
Eins og rakið er í almennum athugasemdum, hefur skort skýrar reglur um það í íslenskan rétt, hver eigi að bera áhættuna af því, að veðsettur hlutur ferst eða skemmist af tilviljun. Er, eins og þar kemur fram, ekki öðrum almennum ákvæðum til að dreifa en 2. gr. veðlaganna, og áhöld hafa verið um það, hvernig skýra ber það ákvæði. Með ákvæðum 8. gr. frumvarps
Í 1. mgr. er fjallað um skiptingu áhættu milli eiganda og veðhafa, þegar veðandlagið ferst eða skemmist af tilviljun. Er reglan sú, að eigandinn ber sitt tjón, og veðtrygging veðhafa skerðist að sama skapi. Inntak reglunnar er það, að það er veðtryggingin en ekki veðkrafan, sem skerðist eða fellur brott. Af því leiðir, að þótt veðsettur hlutur farist eða skemmist af til
Í 2. mgr. ræðir um það, hvenær veðhafi og veðþoli geta orðið skaðabótaskyldir hvor gagnvart öðrum. Samkvæmt ákvæðinu geta þeir í fyrsta lagi orðið bótaskyldir samkvæmt al
Um 9. gr.
Nauðsynlegt er, að veðlög hafi að geyma reglur um það, hvenær veðskuld gjaldfellur eða heimilt er að líta á hana sem gjaldfallna. Er um það fjallað í 9. gr. frumvarpsins, þ.e. hvenær heimilt er við ákveðnar aðstæður að líta svo á, að veðskuld sé gjaldfallin, þótt eigi sé kominn gjalddagi kröfu.
Efni greinarinnar skiptist í þrennt. Í 1. mgr. 9. gr. er að finna upptalningu atvika, sem leitt geta til þess, að heimilt er að krefjast eindögunar veðskuldar, þ.e. segja skuldinni upp vegna tiltekinna atvika, þótt eigi sé kominn umsaminn gjalddagi kröfu. Í 2. mgr. kemur fram sú tak
Í réttarframkvæmd hér á landi hafa myndast ákveðnar reglur um eindögun eftirstöðva skulda, þar með talinna veðskulda, þegar skuldari eða veðþoli vanefnir skyldur sínar. Gjald
Um 1. mgr.
Upptalninguna í 1. mgr. 9. gr. má flokka með fernum hætti. Í fyrsta lagi er um að ræða tilvik, sem flokka má til beinna vanefnda af hálfu lántaka, þ.e. a- og d-liðir, þar sem skyldan til greiðslu vaxta og afborgana hefur verið vanefnd verulega, og þegar eigandi eða veðsali misnotar í verulegum atriðum umráðarétt sinn yfir veðinu eða vanefnir með öðrum hætti skyldur sínar skv. 7. gr. frumvarpsins. Í öðru lagi eru tilvik, sem líta má á sem eins konar for
Ákvæði 1. mgr. 9. gr. frumvarpsins hefur í raun á sér einkenni frávíkjanlegrar uppsagnar
Í a-lið 1. mgr. ræðir um heimild til uppsagnar, þegar skyldan til greiðslu vaxta og afborg
Í b-lið 1. mgr. ræðir um rétt til uppsagnar, þegar ákveðin hefur verið nauðungarsala hins veðsetta, eins og það er orðað. Í veðskuldabréfum hér á landi er allmikið tíðkað að hafa ákvæði þess efnis, að heimilt sé að gjaldfella veðskuld, t.d. „ . . . ef aðrir skuldheimtumenn veðþola ganga að veðinu . . . “ eða „ . . . ef leitað er fullnægju í veðinu fyrir greiðslu, er gengur fyrir skuld þessari . . . “, svo einhver dæmi séu nefnd. Er veðhafi með slíkum ákvæðum í raun að áskilja sér rétt til uppsagnar gagnvart veðþola vegna vanefnda veðþolans við annan kröfu
Til samanburðar skal þess getið, að í Noregi er heimildin til eindögunar heldur rýmri í þessu tilviki og miðast við, að veðið hafi verið „. . . satt til tvangsauksjon . . . “, en þá er talið nægja, að beiðni um nauðungarsölu hafi verið samþykkt (Norsk Panterett, bls. 116).
Samkvæmt 42. gr. b) dönsku þinglýsingalaganna eru skilyrðin hins vegar þrengri en lagt er til í frumvarpi þessu. Þar segir, að þrátt fyrir ákvæði í veðbréfi, geti veðhafi ekki krafist eindögunar höfuðstóls af því tilefni, að 1) ógreiddir eru skattar og gjöld eða gjaldfallnar greiðslur til annarra veðhafa; 2) gert er fjárnám í eigninni; 3) veðhafi tekur veðið til afnota samkvæmt sérstakri heimild (tages til brugeligt pant); 4) tekin er fyrir í rétti beiðni um nauð
Í c-lið 1. mgr. er heimiluð eindögun skuldar, þegar bú skuldara eða eiganda veðs er tekið til gjaldþrotaskipta. Þykir ekki óeðlilegt í slíku tilviki að heimila veðhafa að beita vanefnda
Í d-lið 1. mgr. ræðir um heimild til eindögunar veðskuldar, þegar eigandi eða veðsali mis
Í e-lið 1. mgr. kemur fram sú regla, að veðhafi getur krafist eindögunar, þegar veðið eyði
Í f-lið 1. mgr. kemur fram, að veðhafi geti krafist eindögunar kröfu sinnar, þegar veðið er selt, enda hafi hann áskilið sér heimild til eindögunar í veðbréfi. Það er meginregla, að kröfuhafi þurfi ekki að sæta því, að skuldaraskipti verði að kröfunni, nema kröfuhafi sam
Um 2. mgr.
Ljóst má vera, að eindögun veðkröfu, áður en kominn er fyrir fram ákveðinn gjalddagi kröfu, getur valdið skuldara ýmiss konar erfiðleikum. Því er svo ákveðið í 2. mgr., að ein