Ferill 74. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: Word Perfect.



1994. – 1064 ár frá stofnun Alþingis.
118. löggjafarþing. – 74 . mál.


92. Nefndarálit



um frv. til lánsfjáraukalaga fyrir árið 1994.

Frá meiri hluta efnahags- og viðskiptanefndar.



    Nefndin hefur fjallað um málið. Á fund hennar komu frá fjármálaráðuneyti Magnús Pétursson ráðuneytisstjóri, Þórhallur Arason skrifstofustjóri og Jón Ragnar Blöndal deildarstjóri, Ingi Valur Jóhannsson, deildarstjóri í félagsmálaráðuneyti, Grétar J. Guðmundsson rekstrarstjóri og Sigurður Geirsson, forstöðumaður verðbréfadeildar, frá Húsnæðisstofnun og frá Seðlabanka Íslands Eiríkur Guðnason bankastjóri.
    Útgáfa húsbréfa hefur verið mun meiri á þessu ári en gert var ráð fyrir. Líklegustu ástæðurnar eru taldar hagstæðir vextir og lítil afföll af bréfunum. Nú er svo komið að það fjármagn, sem áætlað var til útgáfu húsbréfa í lánsfjárlögum fyrir árið 1994, er uppurið og hafa viðskipti með fasteignir nánast stöðvast af þessum sökum. Meiri hluta nefndarinnar er ljós nauðsyn þess að leyst verði úr þessum vanda sem fyrst. Þá gerir meiri hlutinn ekki athugasemdir við 1. gr. frumvarpsins um auknar lántökur ríkissjóðs. Meiri hlutinn mælir því með samþykkt frumvarpsins.

Alþingi, 17. okt. 1994.



Rannveig Guðmundsdóttir,

Sólveig Pétursdóttir.

Ingi Björn Albertsson.


frsm.



Hjálmar Jónsson.

Árni R. Árnason.