Ferill 91. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: Word Perfect.
1994. – 1064 ár frá stofnun Alþingis.
118. löggjafarþing. –
91
. mál.
93. Tillaga til þingsályktunar
um kennslu í iðjuþjálfun.
Flm.: Kristín Einarsdóttir, Einar K. Guðfinnsson, Margrét Frímannsdóttir,
Guðmundur Bjarnason, Sigbjörn Gunnarsson.
Alþingi ályktar að fela menntamálaráðherra að hefja undirbúning að því að koma á námi í iðjuþjálfun hér á landi.
Greinargerð.
Iðjuþjálfun er starfsgrein innan heilbrigðisþjónustunnar sem hefur verið í örri þróun síðustu áratugi. Iðjuþjálfun er fólgin í því að hæfa og endurhæfa fatlaða einstaklinga og í forvörnum gegn sjúkdómum og vanlíðan.
Iðjuþjálfar vinna með fólk sem á í erfiðleikum í sínu daglega lífi. Orsakir erfiðleikanna geta verið af ýmsum toga. Þar getur verið um að ræða líkamlega fötlun vegna slysa eða veikinda, andlega erfiðleika vegna geðrænna truflana eða röskunar á heilastarfsemi, frávik í þroska, bæði líkamlegs og andlegs eðlis, eða erfiðleika vegna öldrunar. Meginviðfangs
efni iðjuþjálfunar eru greining og mat, þjálfun, fræðsla, umhverfisaðlögun, hjálpartækja
þjónusta og húsnæðisbreytingar. Meðferð iðjuþjálfa miðar að því að sjúklingarnir öðlist eins mikla starfshæfni og unnt er miðað við aðstæður. Iðjuþjálfinn þjálfar einstaklinginn í þeim athöfnum daglegs lífs sem hann ræður ekki við og samhliða því býður iðjuþjálfun upp á möguleika til að þjálfa þætti eins og samhæfingu, vöðvastyrk og úthald. Iðjuþjálfinn metur hvers konar búsetuform og starf hentar hverjum og einum og hve mikinn stuðning fólk þarf í daglegu lífi. Forvarnastarfið beinist oft að vinnuumhverfi fólks með áherslu á atriði eins og húsgögn og innréttingar, loftræstingu, lýsingu, streitu og félagsleg samskipti á vinnustað.
Iðjuþjálfar starfa m.a. á sjúkrahúsum, öldrunardeildum, geðdeildum, endurhæfingar
stöðvum, við heilsugæslustöðvar og í skólum. Einnig starfa iðjuþjálfar á vegum sveitarfé
laga, svæðisstjórna og ýmissa stofnana sem veita þjónustu innan heilbrigðis- og félags
mála. Iðjuþjálfar veita þjónustu inni á stofnunum og á heimilum fólks. Erlendis gegna iðju
þjálfar stóru hlutverki í heimaþjónustu.
Fyrsti iðjuþjálfinn á Íslandi lærði í Danmörku og kom til starfa á Kleppsspítala árið 1945. Nú eru starfandi iðjuþjálfar hér á landi 50 talsins. Iðjuþjálfafélag Íslands var stofnað árið 1976 og árið 1977 voru sett lög um iðjuþjálfun. Flestir iðjuþjálfar hér á landi hafa lært annars staðar á Norðurlöndum, langflestir í Danmörku. Námið er á háskólastigi og tekur 3–4 ár. Árið 1973 var skipuð nefnd til að athuga möguleika á námi í sjúkraþjálfun og iðjuþjálfun hér á landi og skilaði hún áliti tveimur árum síðar. Niðurstaða hennar var að hefja bæri þá þegar kennslu í sjúkraþjálfun og 5–10 árum síðar í iðjuþjálfun.
Árið 1988 skipaði þáverandi menntamálaráðherra, Birgir Ísleifur Gunnarsson, nefnd til þess að kanna möguleika á kennslu í iðjuþjálfun hér á landi og hvernig slíku námi yrði hagað. Nefndin kynnti sér fyrirkomulag kennslu í iðjuþjálfun erlendis, svo og skilgreining
ar og lágmarkskröfur Alþjóðasamtaka iðjuþjálfa. Einnig kannaði nefndin aðstæður hér á landi og átti m.a. viðræður við fulltrúa námsbrautar í sjúkraþjálfun við Háskóla Íslands. Nefndin skilaði áliti í maí 1989 með þeirri niðurstöðu að tímabært væri að hefja kennslu í iðjuþjálfun á Íslandi og að náminu yrði best fyrir komið í Háskóla Íslands. Tillögur um hugsanlegt skipulag námsins miða við að námið taki fjögur ár við Háskóla Íslands og verði bæði bóklegt og verklegt. Gert er ráð fyrir að unnt verði að samnýta að miklu leyti kennslu í öðrum heilbrigðisgreinum, ekki síst sjúkraþjálfun, þar sem um mörg sameiginleg nám
skeið gæti verið að ræða fyrstu 1–2 árin.
Ekki hefur verið gerð nákvæm könnun á líklegri eftirspurn eftir iðjuþjálfun á næstu ár
um, en samkvæmt lauslegri áætlun Iðjuþjálfafélags Íslands gæti orðið þörf fyrir a.m.k. 170 iðjuþjálfa hér á landi á næstu árum til viðbótar þeim sem nú eru í starfi. Þrátt fyrir ein
dregna niðurstöðu nefndarinnar frá 1989 og brýna þörf fyrir fleiri iðjuþjálfa er enn ekki hafin kennsla í greininni hér á landi en tilgangur þessarar tillögu er að tryggja að svo verði hið fyrsta.