Ferill 120. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: Word Perfect.



1994. – 1064 ár frá stofnun Alþingis.
118. löggjafarþing. – 120 . mál.


125. Fyrirspurn



til félagsmálaráðherra um málefni sumarhúsaeigenda.

Frá Petrínu Baldursdóttur.



1.      Hvernig hyggst ráðherra skilgreina hvaða þjónustu sveitarfélögum er skylt að sinna með því að innheimta fasteignagjöld af sumarhúsaeigendum?
2.      Finnst ráðherra koma til greina að sveitarfélög „eyrnamerki“ þann hluta fasteignaskatts sem greiddur er af sumarhúsaeigendum og að sá sjóður yrði notaður í þágu þeirra sérstaklega?