Ferill 123. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: Word Perfect.
1994. – 1064 ár frá stofnun Alþingis.
118. löggjafarþing. – 123 . mál.
128. Frumvarp til laga
um breytingar á lögum um náttúruvernd, nr. 47/1971, ásamt síðari breytingum.
(Lagt fyrir Alþingi á 118. löggjafarþingi 1994.)
1. gr.
Í stað II. kafla laganna, Stjórn náttúruverndarmála, 2.–8. gr., koma 13 nýjar greinar svohljóðandi:
a. (2. gr.)
Umhverfisráðuneytið fer með yfirstjórn náttúruverndarmála. Við mótun stefnu í nátt
b. (3. gr.)
Landvarsla ríkisins er ríkisstofnun undir yfirstjórn umhverfisráðuneytisins.
c. (4. gr.)
Landvarsla ríkisins hefur umsjón með þjóðgörðum og öðrum friðlýstum svæðum, svo og öðrum náttúruverndarsvæðum, skv. 3. gr. laga þessara. Stofnuninni er heimilt með samþykki ráðherra að semja um að taka að sér umsjón með öðrum svæðum sem sérstök þykja sakir landslags, gróðurfars eða dýralífs.
Landvarsla ríkisins skal gæta þess að umferð ferðamanna á svæðum í umsjón hennar valdi ekki raski né spjöllum á náttúru og getur m.a. takmarkað umferð eða lokað svæðum í því skyni.
Landvarsla ríkisins skal árlega gefa umhverfisráðherra skýrslu um ástand svæða í um
Landvarsla ríkisins skal sjá til þess í samráði við embætti skipulagsstjóra ríkisins og sveitarstjórnir að gerðar verði skipulagsáætlanir fyrir þjóðgarða, friðlýst svæði og önnur náttúruverndarsvæði í umsjón hennar.
Landvarsla ríkisins skal hafa forgöngu um fræðslu á svæðum í umsjón hennar, m.a. með útgáfu á fræðsluefni um náttúrufar.
Landvörslu ríkisins er heimilt að setja á stofn og reka gestastofur í þjóðgörðum og á öðrum náttúruverndarsvæðum eftir því sem ákveðið er í fjárlögum hverju sinni. Í gesta
Landvarsla ríkisins skal einnig leitast við að efla áhuga á náttúruvernd með útgáfu á fræðsluefni fyrir skóla, fjölmiðla og almenning í samráði við umhverfisráðuneytið. Stofnunin skal hafa samvinnu við sveitarstjórnir, yfirvöld ferðamála og skóla um kynn
Landvarsla ríkisins skal hafa samstarf við Náttúruverndarráð og samtök áhugamanna um náttúruvernd, m.a. með því að stuðla að héraðsfundum um náttúruvernd í samráði við náttúruverndarnefndir.
d. (5. gr.)
Landvarsla ríkisins skal fylgjast með því að náttúru landsins sé ekki spillt með athöfn
Telji Landvarslan nauðsynlegt að halda uppi sérstöku eftirliti með framkvæmd ber þeim sem framkvæmdina annast að endurgreiða stofnuninni kostnað sem hún hefur af slíku. Gera skal fyrir fram áætlun í samráði við framkvæmanda, þar sem fram komi í meginatriðum hvaða kostnaðarliði yrði um að ræða, eftir því sem við verður komið. Ef um minni háttar framkvæmd er að ræða er heimilt að fella niður slíka áætlanagerð, enda séu aðilar sammála um slíkt.
Ef ágreiningur rís á milli Landvörslunnar og framkvæmanda um þau efni sem um ræð
e. (6. gr.)
Umhverfisráðherra skipar Landvörslu ríkisins þriggja manna stjórn, þar af formann sérstaklega, til fjögurra ára í senn og ákveður stjórnarlaun. Skipa skal jafnmarga menn til vara.
Stjórnin hefur á hendi yfirstjórn Landvörslu ríkisins. Hún fjallar um starfs- og fjár
Ráðherra skipar framkvæmdastjóra Landvörslu ríkisins til 5 ára í senn að fengnum til
f. (7. gr.)
Í hverjum þjóðgarði starfar þjóðgarðsvörður sem umhverfisráðherra skipar til 5 ára í senn að fenginni tillögu stjórnar Landvörslu ríkisins. Þjóðgarðsverðir starfa í umboði Landvörslu ríkisins og annast stjórn og daglegan rekstur þjóðgarða. Þeir ráða landverði og annað starfsfólk þjóðgarðanna. Umhverfisráðherra getur, samkvæmt tillögum Land
Á vegum Landvörslunnar starfa landverðir sem sjá m.a. um eftirlit og fræðslu á svæð
g. (8. gr.)
Að fengnu áliti Landvörslu ríkisins getur umhverfisráðherra með samningum falið öðrum umsjón náttúruminja og friðlýstra svæða, að þjóðgörðum undanskildum, t.d. sveitarfélögum, ferðafélögum, áhugasamtökum um náttúruvernd og einstaklingum. Í samningum skal kveðið á um réttindi og skyldur samningsaðila hvað varðar umsjón með svæði, mannvirkjagerð þar og aðrar framkvæmdir, landvörslu og menntun starfsmanna, móttöku ferðamanna og fræðslu og ráðstöfun tekna af gjaldtöku, ef hún er leyfð, og ákveðin skv. 17. gr. laganna.
Eftirlit með framkvæmd slíkra samninga er á hendi Landvörslu ríkisins.
h. (9. gr.)
Í hverri sýslu, kaupstað og bæ skal starfa þriggja til sjö manna náttúruverndarnefnd. Héraðsnefndir og bæjarstjórnir ákveða fjölda nefndarmanna og kjósa þá til fjögurra ára í senn og ákveða formann. Varamenn skulu kosnir jafnmargir til sama tíma.
Náttúruverndarnefndirnar hafa það hlutverk að stuðla að náttúruvernd hver á sínu svæði, m.a. með ábendingum og tillögugerð til umhverfisráðuneytis, sveitarstjórna og Náttúruverndarráðs.
i. (10. gr.)
Náttúruverndarþing kemur saman annað hvert ár. Náttúruverndarráð boðar þingið, undirbýr og leggur fyrir það skýrslu um störf sín. Formaður ráðsins setur þingið og stýrir því uns það hefur kosið forseta. Þingið setur sér þingsköp.
Hlutverk náttúruverndarþings er að fjalla um náttúruvernd landsins og kjósa fulltrúa í Náttúruverndarráð. Náttúrverndarþing er vettvangur frjálsra félagasamtaka, sem sinna náttúruverndarmálum, stofnana, fræðimanna og annarra sem málið varða. Seta á náttúru
Náttúruverndarráð skal semja reglur fyrir hvert náttúruverndarþing, þar sem kveðið er á um hverjir eiga rétt til setu á þinginu og kjörgengi og kosningarrétt þingfulltrúa. Reglurnar skal senda umhverfisráðuneytinu sem auglýsir þær í Stjórnartíðindum í síðasta lagi fjórum vikum áður en náttúruverndarþing hefst.
Verði deilur um seturétt, kjörgengi og kosningarrétt á þinginu skal vísa slíkum málum til úrskurðar á þinginu sjálfu.
j. (11. gr.)
Náttúruverndarráð skal skipað 7 mönnum, kosnum óbundinni kosningu á náttúru
Náttúruverndarráð hefur skrifstofu og ræður framkvæmdastjóra til að veita henni for
Ríkissjóður greiðir laun framkvæmdastjóra og veitir framlag til reksturs skrifstofu eftir því sem ákveðið er í fjárlögum hverju sinni. Ríkissjóður greiðir einnig fasta þóknun til ráðsmanna fyrir setu í Náttúruverndarráði.
Fyrir lok marsmánaðar ár hvert semur Náttúruverndarráð og sendir umhverfisráðu
k. (12. gr.)
Hlutverk Náttúruverndarráðs er að stuðla að almennri náttúruvernd í landinu og vera stjórnvöldum til ráðgjafar. Náttúruverndarráð skal marka sér sjálfstæða stefnu í náttúru
Náttúruverndarráð skal fjalla ítarlega um náttúruminjaskrá áður en hún er gefin út hverju sinni og getur gert tillögur um friðlýsingar og aðrar verndunaraðgerðir.
Náttúruverndarráð og umhverfisráðherra hafa fund með sér tvisvar á ári eða oftar ef þurfa þykir, um stefnu og ákvarðanir stjórnvalda er varða náttúruvernd.
l. (13. gr.)
Náttúruverndarráð annast vörslu friðlýsingarsjóðs. Tilgangur sjóðsins er að fjármagna einstök verkefni í þágu náttúruverndar, sbr. skipulagsskrá þjóðhátíðarsjóðs. Stjórn sjóðs
Í stjórn sjóðsins sitja formaður Náttúruverndarráðs, sem jafnframt er formaður stjórn
Að fengnum tillögum stjórnar setur ráðherra í reglugerð nánari fyrirmæli um starfsemi friðlýsingarsjóðs.
m. (14. gr.)
Umhverfisráðuneytið skal ásamt Landgræðslu ríkisins vinna að gróðurvernd og hafa eftirlit með ástandi gróðurs. Getur ráðuneytið falið gróðurverndarnefndum slíkt eftirlit.
Umhverfisráðuneytið skal ásamt Skógrækt ríkisins vinna að verndun og eftirliti með náttúrulegum birkiskógum og skógum til útivistar.
Umhverfisráðherra getur í samráði við landbúnaðarráðherra ákveðið friðunar- og upp
2. gr.
Í stað III. kafla laganna, Greiðsla kostnaðar af framkvæmd laganna, 9.–10. gr. koma tvær nýjar greinar svohljóðandi:
a. (15. gr.)
Kostnaður af framkvæmd laganna skal greiddur úr ríkissjóði, eftir því sem fé er til þess veitt í fjárlögum.
b. (16. gr.)
Umhverfisráðherra er heimilt, að fengnum tillögum Landvörslu ríkisins, að ákveða gjald fyrir veitta þjónustu í þjóðgörðum og friðlöndum.
Umhverfisráðherra er einnig heimilt, að fenginni tillögu Landvörslunnar, að ákveða tímabundið gjald fyrir aðgang að náttúruverndarsvæðum. Heimild þessi nær þó aðeins til svæða þar sem spjöll hafa orðið af völdum ferðamanna eða hætta er á slíkum spjöllum.
Um ráðstöfun tekna sem aflast skv. 1. og 2. mgr. gildir sú almenna regla að tekjunum skuli varið til eftirlits, lagfæringar eða uppbyggingar á sama svæði og þeirra er aflað. Umhverfisráðherra er þó heimilt að veita undanþágu frá þessari reglu að því tilskildu að tekjunum sé varið til náttúruverndar í friðlöndum og þjóðgörðum.
3. gr.
Eftirfarandi breytingar verða á IV. kafla laganna, Aðgangur almennings að náttúru landsins og umgengni:
a . Í stað orðsins „Náttúruverndarráði“ í 3. mgr. 12. gr. kemur: Umhverfisráðherra.
b . Í stað 2. mgr. 13. gr. kemur ný málsgrein sem hljóðar svo:
Umhverfisráðherra skal setja reglur um akstur ökutækja og umgengni ferðamanna í óbyggðum, þar á meðal um merkingu vega og slóða. Þar sem hætta er á náttúru
c . Við síðasta málslið 1. mgr. og við 2. mgr. 17. gr. bætist: og Landvörslu ríkisins.
d . Í stað orðsins „Náttúruverndarráð“ í 2. málsl. 18. gr. kemur: Landvarsla ríkisins.
e . Í stað orðsins „Náttúruverndarráðs“ í upphafi 3. mgr. 19. gr. kemur: Umhverfisráðherra.
f . 21. gr. laganna fellur niður.
g . Greinartölur 11.–20. gr. laganna breytast og verða 17.–26. gr.
4. gr.
Eftirfarandi breytingar verða á V. kafla laganna, Friðlýsing náttúruminja og stofnun útivistarsvæða:
a . Í stað orðsins „Náttúruverndarráð“ í upphafi 1. mgr. 22. gr. kemur: Umhverfisráðherra.
b . Við 1. mgr. 22. gr. bætist: að mati Náttúruverndarráðs, Landvörslu ríkisins eða Náttúrufræðistofnunar Íslands.
c . Í 4. mgr. 22. gr. falla brott orðin „nema eftir fyrirmælum Náttúruverndarráðs“.
d . 23. gr. laganna hljóðar svo:
Umhverfisráðherra getur að fenginni tillögu Náttúrufræðistofnunar Íslands frið
Friðunin getur ýmist verið staðbundin eða tekið til landsins alls.
Um lífsvæði fugla og dýra, sem friðuð eru samkvæmt lögum um vernd, friðun og veiðar á villtum fuglum og villtum spendýrum, skal fara með sama hætti ef brýnt þykir að mati Náttúrufræðistofnunar Íslands til að viðhalda tegundinni.
e . Í stað orðanna „Náttúruverndarráð friðað í heild“ í 1. mgr. 24. gr. kemur: umhverfisráðherra friðað í heild að fenginni umsögn Náttúruverndarráðs, Landvörslu ríkisins eða Náttúrufræðistofnunar Íslands.
f . Í stað orðsins „Náttúruverndarráð“ í 3. mgr. 24. gr. kemur: Umhverfisráðherra.
g . 1. og 2. mgr. 25. gr. orðast svo:
Ef landsvæði er sérstætt um landslag, gróðurfar eða dýralíf eða á því hvílir sérstök helgi, þannig að ástæða sé til að varðveita það með náttúrufari sínu og leyfa almenn
Þjóðgarðsverðir fara með stjórn þjóðgarða í umboði Landvörslu ríkisins, sbr. 6. gr. Umhverfisráðherra setur reglur um meðferð og rekstur þjóðgarða og umgang al
h . Í stað orðsins „Náttúruverndarráðs“ í 1. mgr. 26. gr. kemur: umhverfisráðuneytis.
i . Í stað orðanna „Náttúruverndarráð getur á tillöguna fallist“ í 2. mgr. 26. gr. koma orðin: umhverfisráðherra getur á tillöguna fallist að fenginni umsögn Náttúruvernd
j . Í stað orðsins „Náttúruverndarráð“ í 3. og 4. mgr. 26. gr. kemur: Landvarsla ríkisins.
k . Í stað orðsins „Náttúruverndarráð“ í 6. mgr. 26. gr. kemur: umhverfisráðuneyti.
l . Í stað orðsins „Náttúruverndarráð“ í 8. mgr. 26. gr. kemur: Landvörslu ríkisins.
m . Í 9. mgr. 26. gr. falla niður orðin „Náttúruverndarráð úr, en skjóta má úrskurði þess til fullnaðarákvörðunar ráðherra“. Í þeirra stað kemur: umhverfisráðherra úr um mál
n . Í 1. mgr. 27. gr. fellur orðið „Náttúruverndarráð“ niður en í þess stað kemur: „Landvarsla ríkisins“.
o . Greinartölur 22.–27. gr. laganna breytast og verða 27.–32. gr.
p . Við kaflann bætist ný grein sem verður 33. gr. og hljóðar svo:
Staðir og svæði sem búið er að friðlýsa samkvæmt ákvæðum þessara laga eða eru á náttúruminjaskrá nefnast náttúruverndarsvæði. Til náttúruverndarsvæða teljast einnig afmörkuð svæði á landi og sjó sem njóta sérstakrar verndar samkvæmt öðrum lögum vegna náttúru eða landslags.
Gera skal vörsluáætlun fyrir hvert náttúruverndarsvæði þar sem fram kemur hvernig ná skuli markmiðum sem sett eru með vernd svæðisins.
5. gr.
Eftirfarandi breytingar verða á VI. kafla laganna, Framkvæmd friðlýsingar:
a . Við kaflann bætist ný grein sem verður 34. gr. og hljóðar svo:
Umhverfisráðuneytið skal gefa náttúruminjaskrá út þriðja hvert ár og auglýsa hana í Stjórnartíðindum. Á náttúruminjaskrá skulu vera upplýsingar um öll náttúru
Í náttúruminjaskrá skal að auki telja upp náttúrumyndanir, sem æskilegt er að friðlýsa, svo og lönd þau sem ástæða kann að verða að lýsa friðlönd, leggja til þjóð
Í skránni skulu vera ítarlegar upplýsingar um hvert svæði og rökstuðningur fyrir verndun þeirra eða friðun, m.a. skal færa í skrána þær upplýsingar um minjar og lönd sem nauðsynlegar eru vegna varðveislu eða friðlýsingar, svo sem um beinan og óbeinan eignarrétt, mörk svæðis, náttúruverndargildi, aðsteðjandi hættur og æski
Í náttúruminjaskrá skal einnig vera listi yfir örverur, jurtir, dýr og vistkerfi, sem æskilegt þykir að vernda, m.a. til að tryggja varðveislu líffræðilegrar fjölbreytni. Fram skal koma rökstuðningur fyrir verndun, markmið með henni, hvernig þeim verði best náð og til hvaða staða á landinu hún nái.
Landvarsla ríkisins og Náttúrufræðistofnun Íslands skulu með aðstoð náttúru
Leita skal eftir áliti Náttúruverndarráðs á öllum tillögum annarra áður en á þær er fallist.
Heimilt er með reglugerð að setja reglur um skráningu náttúruminja og verka
b . 1. mgr. 28. gr. fellur niður.
c . 2. mgr. 28. gr. hljóðar svo: Ef umhverfisráðherra telur ástæðu til friðlýsingar eða annarra náttúruverndaraðgerða samkvæmt lögum þessum, skal fela Landvörslu rík
d . 29. gr. fellur brott.
e . 1. mgr. 30. gr. orðast svo:
Ákveði Náttúruverndarráð friðlýsingu og liggi ekki þegar fyrir samþykki eig
f . Í stað orðsins „Náttúruverndarráðs“ í 2. mgr. 30. gr. kemur: Landvörslu ríkisins.
g . Í stað orðsins „Náttúruverndarráð“ í 31. gr. kemur: Landvarsla ríkisins í umboði ráðherra.
h . 32. gr. orðast svo:
Áður en ráðherra tekur ákvörðun um friðun og friðunarákvæði skal leita eftir áliti Náttúruverndarráðs. Gefa skal ráðinu 6 vikur til að gera athugasemdir.
i . Í 1. mgr. 33. gr. fellur niður: skv. 32. gr.
j . Í stað orðsins „Náttúruverndarráðs“ í 2. mgr. 33. gr. kemur: Landvörslu ríkisins.
k . Greinartölur 28.–33. gr. laganna breytast og verða 35.–39. gr.
6. gr.
Eftirfarandi breyting verður á VII. kafla laganna, Ýmis ákvæði:
a . Á undan 1. mgr. 37. gr. kemur ný málsgrein:
Fái starfsfólk Landvörslu ríkisins, eða annarra aðila sem falin hefur verið umsjón svæða með samningi, vitneskju í starfi sínu um að brot hafi verið framið gegn lögum þessum eða reglum, settum samkvæmt þeim, ber þeim að tilkynna það lögreglu svo skjótt sem auðið er. Yfirmaður svæðisins skal gera eða láta gera skýrslu um atvikið og afhenda hana lögreglu. Ráðherra setur í reglugerð frekari ákvæði um framkvæmd skýrslugerðar.
b . Greinartölur 34.–38. gr. laganna breytast og verða 40.–44. gr.
7. gr.
Lög þessi öðlast þegar gildi.
Þegar lög þessi hafa öðlast gildi skal fella þau að lögum nr. 47/1971 og samræma greinartölur og gefa lögin út svo breytt.
Ákvæði til bráðabirgða.
Þrátt fyrir ákvæði 7. gr. situr núverandi Náttúruverndarráð uns náttúruverndarþing hefur verið haldið. Umhverfisráðherra boðar til 9. náttúruverndarþings eigi síðar en í árs
Athugasemdir við lagafrumvarp þetta.
Lög um náttúruvernd, nr. 47/1971, eru að stofni til frá árinu 1956. Þessi lög hafa reynst vel en tímabært þykir að endurskoða þau vegna breytinga sem orðið hafa á skipan náttúruverndarmála í stjórnkerfinu og löggjöf á sviði umhverfismála. Sérstakt ráðuneyti umhverfismála var stofnsett árið 1990 og tekur að verulegu leyti við því hlutverki sem Náttúruverndarráði er falið að gegna í gildandi lögum um náttúruvernd. Eftir stofnun ráðuneytisins er eðlilegt að það hafi yfirumsjón með stefnumótun stjórnvalda í náttúru
Unnið hefur verið að endurskoðun laga um náttúruvernd um langt skeið. Menntamála
Á tímabilinu 1988–90 var lítið rætt um endurskoðun náttúruverndarlaga vegna umræðu um stofnun umhverfisráðuneytis. Eftir stofnun þess var þráðurinn tekinn upp að nýju og snemma árs 1991 ákvað Náttúruverndarráð að endurskoða verksvið sitt í ljósi breyttra aðstæðna og semja tillögu um nýja náttúruverndarstefnu. Í framhaldi af því kynnti Náttúruverndarráð drög að stefnu í náttúruvernd á 8. náttúruverndarþingi í október 1993 ásamt ítarlegri greinargerð.
Umhverfisráðherra skipaði nefnd í janúar 1992 til að endurskoða þá þætti náttúru
Í ræðu sem Össur Skarphéðinsson umhverfisráðherra flutti við setningu 8. náttúru
Á grundvelli þessara tillagna var á 117. löggjafarþingi 1993–1994 lagt fram frumvarp til laga um breytingar á lögum um náttúruvernd, nr. 47/1971, ásamt síðari breytingum. Frumvarpið hlaut ekki afgreiðslu og er hér endurflutt með nokkrum breytingum. Ákveðið var að tvískipta endurskoðun náttúruverndarlaganna og leggja áherslu í þessum fyrri áfanga á breytingar á þeim lagaákvæðum sem lúta að stjórnkerfi náttúruverndarmála, verkaskiptingu stofnana og hlutverki Náttúruverndarráðs. Jafnframt skyldi leita leiða til að styrkja friðlýsingarþátt laganna með hliðsjón af aðild Íslands að alþjóðasamningnum um vernd líffræðilegrar fjölbreytni sem umhverfisráðherra undirritaði fyrir Íslands hönd í Rio de Janeiro 12. júní 1992. Í síðari áfanga er stefnt að endurskoðun á öðrum ákvæðum laganna, sérstaklega þeim kafla náttúruverndarlaganna sem fjallar um aðgang almenn
Frumvarp það, sem hér liggur fyrir, tekur mið af stefnumörkun ráðherra varðandi stjórnsýsluþátt náttúruverndarlaga sem kynnt var á 8. náttúruverndarþingi, drögum Nátt
1 . að laga stjórn þessa málaflokks að stofnun umhverfisráðuneytisins,
2 . að skilja ríkisrekstur frá annarri starfsemi Náttúruverndarráðs og tryggja sjálfstæði þess gagnvart Stjórnarráðinu,
3 . að skapa grundvöll fyrir sjálfstætt og virkt Náttúruverndarráð,
4 . að samræma verksvið umhverfisráðuneytis og stofnana þess,
5 . að samræma lög um náttúruvernd nýjum lögum um mat á umhverfisáhrifum, lögum um Náttúrufræðistofnun Íslands og náttúrustofur og löggjöf á sviði mengunarvarna,
6 . að styrkja stefnu um friðlýsingar og framkvæmd friðlýsinga.
Samkvæmt frumvarpinu mun Náttúruverndarráð ekki sinna stjórnsýslu á vegum ríkis
Lagt er til að sérstök stofnun, Landvarsla ríkisins, sem að stofni til er núverandi skrif
Eftirlit með framkvæmdum hefur verið veigamikill þáttur í starfi Náttúruverndarráðs. Með bættri löggjöf á sviði mengunarmála og með lögum um mat á umhverfisáhrifum er slíkt eftirlit sett í nýjan farveg, sem óhjákvæmilega breytir því hlutverki sem Náttúru
Í frumvarpinu er gert ráð fyrir því að náttúruminjaskrá verði efld sem stefnumarkandi þáttur. Umhverfisráðuneytið mun gefa skrána út en undirbúningur hennar mun verða á vegum Landvörslu ríkisins og Náttúrufræðistofnunar Íslands sem annast mun öflun grunnupplýsinga. Náttúruverndarráð skal fjalla ítarlega um skrána áður en hún er út gefin og gerir tillögur um breytingar.
Helstu breytingarnar, sem gerðar hafa verið á frumvarpinu frá því að það var fyrst lagt fram á Alþingi, eru á fyrstu grein þess. Við breytingarnar var tekið nokkurt mið af athuga
Athugasemdir við einstakar greinar frumvarpsins.
Um 1. gr.
Í nýrri 2. gr. er kveðið á um samráð umhverfisráðuneytis við Náttúruverndarráð, bændur og aðra landnotendur, sveitarstjórnir og samtök áhugamanna um náttúruvernd við mótun stefnu í náttúruvernd og framkvæmdir og fræðslu á því sviði. Ákvæði þetta er í samræmi við þá stefnu, sem staðfest var á ráðstefnu Sameinuðu þjóðanna um umhverfi og þróun í Rio de Janeiro 1992, að veita almannasamtökum aðild að stefnumörkun á sviði umhverfismála þar sem því verður við komið.
Í b–g-liðum 3.–8. gr., er fjallað um Landvörslu ríkisins sem verður ný ríkisstofnun byggð á gömlum grunni. Hér er um að ræða skrifstofu Náttúruverndarráðs sem nú er kostuð af ríkissjóði, en fær nýtt hlutverk við aðskilnað frá ráðinu og betur skilgreinda stöðu innan ríkiskerfisins. Landvarsla ríkisins verður undir yfirstjórn umhverfisráðuneytisins, sbr. nýja 3. gr.
Samkvæmt nýrri 4. gr. skal Landvarsla ríkisins hafa umsjón með rekstri og fram
Í samræmi við umsjónarhlutverk Landvörslunnar er henni gert skylt skv. 3. mgr. nýrr
Landsvæði, sem vernduð eru sakir sérstaks landslags, gróðurfars eða dýralífs, laða til sín ferðamenn. Mikill fjöldi ferðamanna á takmörkuðu svæði hefur í för með sér hættu á umhverfisspjöllum sem nauðsynlegt er að draga úr. Í 2. mgr. nýrrar 4. gr. er kveðið á um eftirlitsskyldu Landvörslu ríkisins með ferðamönnum á svæðum í hennar umsjá og heimild veitt til að takmarka umferð og loka svæðum til að koma í veg fyrir spjöll á landi. Í 4. mgr. nýrrar 4. gr. er það nýmæli að áhersla er lögð á gerð skipulagsáætlana fyrir þjóð
Fræðsla er undirstaða virkrar náttúruverndar. Í 5. og 7. mgr. nýrrar 4. gr. er kveðið á um skyldu Landvörslu ríkisins til að hafa forgöngu um fræðslu á svæðum í hennar umsjá og um útgáfu á fræðsluefni fyrir skóla, fjölmiðla og almenning í samráði við umhverfis
Í 8. mgr. nýrrar 4. gr. er kveðið á um samstarf Landvörslu ríkisins við Náttúruverndar
Verulegur hluti af starfi Náttúruverndarráðs hefur verið að framfylgja 29. gr. gildandi laga um náttúruvernd. Með nýjum lögum um mat á umhverfisáhrifum flyst þessi starfsemi hins vegar að miklu leyti til embættis skipulagsstjóra ríkisins, sem hefur lögum samkvæmt umsjón með matinu.
Landvörslu ríkisins ber skv. nýrri 5. gr. að fylgjast með því, að náttúru landsins sé ekki spillt með athöfnum sem brjóti í bága við lög. Rétt þykir að fela Landvörslunni þetta almenna eftirlitshlutverk, auk eftirlits með framkvæmdum. Nýtt og óháð Náttúruvernd
Eftirlitsmenn hafa starfað um langt skeið í hlutastörfum á vegum Náttúruverndarráðs og hefur verkefni þeirra verið eftirlit með almennum framkvæmdum og sérstaklega þeim sem falla undir ákvæði 29. gr. gildandi laga og 33.–40. gr. reglugerðar um náttúruvernd (nr. 205/1973). Kostnaður af störfum þeim hefur oftast verið greiddur af þeim sem fram
Í nýrri 5. gr. er Landvörslu ríkisins falið þetta hlutverk og er framkvæmanda gert að bera kostnað af eftirliti samkvæmt fyrir fram gerðri áætlun þegar um er að ræða fram
Samkvæmt nýrri 6. gr. skipar ráðherra stjórn Landvörslunnar án tilnefninga til fjög
Í hverjum þjóðgarði skal vera þjóðgarðsvörður samkvæmt nýrri 7. gr. sem starfar í umboði Landvörslu ríkisins og annast stjórn og daglegan rekstur garðsins. Þjóðgarðs
Á svæðum í umsjá Landvörslu ríkisins starfa landverðir samkvæmt nýrri 2. mgr. 6. gr. og skulu þeir m.a. annast eftirlit og fræðslu. Ákvæði þetta er efnislega samhljóða 3. mgr. 7. gr. gildandi laga um náttúruvernd, sbr. reglugerð nr. 61/1990 um landverði.
Ný 8. gr. tekur mið af þeirri breytingu sem lögð er til í frumvarpinu á starfsemi skrif
Í nýrri 9. gr. er fjallað um náttúruverndarnefndir. Ákvæði þetta er samhljóða 3. gr. laga um náttúruvernd frá 1971.
Ný 10. gr. fjallar um náttúruverndarþing. Lagt er til að náttúruverndarþing komi sam
Í nýrri 11. gr. er fjallað um skipan Náttúruverndarráðs og kostnað sem ríkissjóður ber af starfsemi þess. Eins og verið hefur er gert ráð fyrir að Náttúruverndarráð verði skipað sjö mönnum. Lagt er til að á öðru hverju þingi verði formaður og varaformaður kosnir til fjögurra ára og tveir aðrir ráðsmenn til sama tíma. Á öðrum þingum verði þrír ráðsmenn kosnir til fjögurra ára. Tillaga þessi er gerð til að tryggja samfellu í starfi ráðsins og eðli
Í nýrri 12. gr. er áhersla lögð á sjálfstæði Náttúruverndarráðs skv. 1. mgr. og er kveðið á um að ráðið skuli marka sér sjálfstæða stefnu í náttúruverndarmálum og gera náttúru
Í 2. mgr. nýrrar 12. gr. er kveðið á um lögbundið umsagnarhlutverk Náttúruverndar
Samkvæmt nýrri 13. gr. annast Náttúruverndarráð vörslu friðlýsingarsjóðs. Í 3. gr. skipulagsskrár þjóðhátíðarsjóðs segir að fjórðungur af árlegu ráðstöfunarfé sjóðsins skuli renna til friðlýsingarsjóðs til náttúruverndar á vegum Náttúruverndarráðs. Auk árlegs framlags þjóðhátíðarsjóðs hefur friðlýsingarsjóður haft tekjur af gjöfum og af sérstökum verkefnum sem Náttúruverndarráð hefur gengist fyrir til tekjuöflunar fyrir sjóðinn. Umhverfisráðuneytið samþykkti formlega stofnun sjóðsins í apríl 1991 en þá hafði hann ver
Ný 14. gr. er efnislega samhljóða 5., 6. og 7. mgr. 7. gr. gildandi laga. Eina breytingin er að í stað Náttúruverndarráðs mun umhverfisráðuneytið vinna að gróðurvernd ásamt Landgræðslu ríkisins og að skógvernd ásamt Skógrækt ríkisins. Þetta verkefni ráðuneyt
Um 2. gr.
Lagt er til að í stað 9. og 10. gr. laganna, sem falla brott, komi tvær nýjar greinar sem verða 15. og 16. gr.
Ný 15. gr. er samhljóða 10. gr. gildandi laga og þarfnast ekki skýringa.
Í nýrri 16. gr. verður umhverfisráðherra heimilt, að fengnum tillögum Landvörslu rík
Ferðamenn þurfa nú víða að greiða fyrir veitta þjónustu á friðlýstum svæðum og nægir þar að nefna greiðslur fyrir tjaldstæði og aðgang að hreinlætisaðstöðu. Slík gjöld eru t.d. innheimt í þjóðgörðunum, sem eru ríkisreknir, og á svæðum þar sem ferðafélög hafa komið upp aðstöðu fyrir ferðamenn. Gjaldtaka þessi er ekki nema að litlu leyti samræmd og í sumum tilfellum hafa gjöld verið hærri en nauðsyn krafði til að standa straum af kostnaði. Eðlilegt er að tekjum sé varið til framkvæmda og rekstrar á sama svæði og þær eru innheimtar en fyrir því er engin trygging nú. Áhöld hafa einnig verið um hvort laga
Um 3. gr.
a . Breyting þessi er lögð til í samræmi við þá meginstefnu sem tekin er með frumvarpi þessu að Náttúruverndarráð sinni ekki stjórnsýslu á vegum ríkisins.
b . Lagt er til að í stað 2. mgr. 13. gr. gildandi laga komi ný málsgrein um sama efni. Kveðið er á um að umhverfisráðherra skuli setja reglur um akstur ökutækja og umgengni ferðamanna í óbyggðum í stað Náttúruverndarráðs. Þetta er í samræmi við breytt hlutverk ráðsins.
c . Eðlilegt þykir að leitað sé eftir umsögn Landvörslu ríkisins auk umsagnar frá Náttúruverndarráði þar sem um getur verið að ræða svæði eða náttúruminjar í umsjá stofnunarinnar.
d . Í samræmi við þá breytingu að Náttúruverndarráð sinni ekki lengur stjórnsýslu á vegum ríkisins er lagt til að Landvarsla ríkisins setji fyrirmæli samkvæmt greininni og ákveði tímamörk. Rétt þykir að Landvarslan setji þessi fyrirmæli til að gefa þolendum kost á áfrýjun til æðra stjórnvalds.
e . Eðlilegt þykir að umhverfisráðherra setji reglur um auglýsingar og leiðbeiningar samkvæmt greininni og úrskurði vafaatriði.
f . Lagt er til að 21. gr. gildandi laga falli brott. Grein þessi á ekki lengur við þar sem öll sveitarfélög eru nú skipulagsskyld, sbr. 1. gr. laga nr. 31/1978 sem breyttu gild
g . Liðurinn þarfnast ekki skýringa.
Um 4. gr.
a . Eðlilegt er að umhverfisráðherra fari með heimild til friðlýsingar í stað Náttúruverndarráðs eftir stofnun ráðuneytis umhverfismála.
b . Lagt er til að ákvörðun umhverfisráðherra um friðlýsingu skuli byggjast á mati Náttúruverndarráðs, Landvörslu ríkisins eða Náttúrufræðistofnunar Íslands, sem annast fræðilegar rannsóknir á jarðfræði landsins og verður fræðilegur bakhjarl Landvörsl
c . Óeðlilegt þykir að Náttúruverndarráð geti gefið fyrirmæli um að breyta, spilla eða eyða friðlýstum náttúruvættum.
d . Eðlilegt er að umhverfisráðherra fari með heimild til að friðlýsa jurtir og örverur í stað Náttúruverndarráðs. Náttúrufræðistofnun Íslands ber samkvæmt lögum um stofnunina (nr. 60/1192) að leiðbeina um verndargildi vistkerfa og náttúruminja og því eðlilegt að fela stofnuninni tillögugerð um verndun jurta og örvera. Jafnframt er mið tekið af því að ráðgert er að Náttúrufræðistofnun Íslands sjái um framkvæmd al
Friðlýsing einstakra tegunda dugir skammt ef þess er ekki jafnframt gætt að varð
e . Á sama hátt og um getur í skýringum við a- og d-liði þykir rétt að umhverfisráðherra fari með heimildir til að friðlýsa landsvæði í stað Náttúruverndarráðs, jafnframt að leita skuli umsagnar Náttúruverndarráðs, Landvörslu ríkisins eða Náttúrufræði
f . Vísað er til skýringa við e-lið.
g . Á sama hátt og um getur í skýringum við a-, d- og e-liði þykir rétt að umhverfisráðherra hafi heimild til að lýsa landsvæði þjóðgarð í stað Náttúruverndarráðs. Samkvæmt greininni skulu þjóðgarðar að jafnaði vera í ríkiseign en það er nýmæli að svo þurfi ekki nauðsynlega að vera náist samkomulag um það milli umhverfis
Lagt er til að þjóðgarðsverðir fari með stjórn þjóðgarða í umboði Landvörslu rík
h . Með vísun til aðskilnaðar Náttúruverndarráðs frá stjórnsýslu á vegum ríkisins þykir rétt að óskir um stofnun fólkvanga verði bornar fram til umhverfisráðherra í stað Náttúruverndarráðs og að ráðherra taki ákvarðanir um stofnun þeirra.
i . Vísað er til skýringa við h-lið.
j . Eðlilegt þykir að Landvarsla ríkisins annist framkvæmd friðlýsinga fyrir hönd ráðherra, þar á meðal undirbúning að stofnun fólkvanga.
k . Vísað er til skýringa við h-lið.
l . Í samræmi við það meginverkefni Landvörslu ríkisins að hafa umsjón með friðlýstum svæðum skv. 1. gr. frumvarpsins er lagt til að Landvarslan hafi samráð við sveit
m . Liðurinn þarfnast ekki skýringa.
n . Breyting þessi er lögð til í samræmi við þá verkaskiptingu sem lögð er til í 1. gr. frumvarpsins á milli Landvörslu ríkisins og Náttúruverndarráðs.
o . Liðurinn þarfnast ekki skýringa.
p . Nauðsynlegt þykir að lögfesta samheiti yfir staði og svæði sem njóta sérstakrar verndar samkvæmt lögum vegna náttúru eða landslags og svæði sem ekki njóta slíkr
Um 5. gr.
a . Lagt er til að náttúruminjaskrá fái aukið vægi sem stefnumarkandi rit um friðlýsingar og aðrar verndunaraðgerðir. Umhverfisráðuneytið skal gefa skrána út þriðja hvert ár skv. 1. mgr. nýrrar 34. gr. og auglýsa hana í Stjórnartíðindum. Í náttúruminjaskrá skal skv. 1. mgr. telja upp náttúruminjar og lönd þau sem æskilegt er að friðlýsa eins og kveðið er á um í 1. mgr. 28. gr. gildandi laga. Hér er auk þess lagt til að í náttúru
Í skránni skulu vera ítarlegar upplýsingar um hvert svæði, rökstuðningur fyrir vernd þeirra og markmið með henni. Í þessu öllu felst að skráin verður markvissari og betur rökstudd en áður. Hér verður um að ræða opinbera stefnu framkvæmda
Gert er ráð fyrir að vinna við náttúruminjaskrá verði á verksviði Náttúrufræðistofnunar Íslands og Landvörslu ríkisins. Verkaskipting verði með þeim hætti að Náttúrufræðistofnun muni annast öflun gagna um náttúruna og setja fram tillögur um friðlýsingar og aðrar verndunaraðgerðir á grundvelli þeirra. Gagnasöfnun skal miðast við að markmið með aðgerðum verði skýr, rökstuðningur fyrir því að setja svæði á skrá fullnægjandi og að unnt sé að ganga frá ítarlegri náttúrulýsingu fyrir hvert svæði. Náttúrufræðistofnun skal gera tillögur til ráðuneytis um svæði og nátt
Landvarsla ríkisins muni hins vegar annast öflun upplýsinga sem lúta að því að hrinda friðlýsingu í framkvæmd, m.a. öflun gagna um eignarhald, og sjái um fram
Leita skal eftir áliti Náttúruverndarráðs á öllum tillögum áður en á þær er fallist skv. 6. mgr. nýrrar 34. gr. Í 4. mgr. er jafnframt kveðið á um að Náttúruverndarráð, félagasamtök eða einstaklingar geti átt frumkvæði að því að setja landsvæði, nátt
b . Liðurinn þarfnast ekki skýringa.
c . Liðurinn þarfnast ekki skýringa.
d . 29. gr. er felld niður með vísun til laga um mat á umhverfisáhrifum og nýrrar 5. gr.
e . Liðurinn þarfnast ekki skýringa.
f . Liðurinn þarfnast ekki skýringa.
g . Liðurinn þarfnast ekki skýringa.
h . Áhersla er lögð á að Náttúruverndarráð fjalli um friðlýsingar og segi álit sitt á þeim áður en til fullnaðarákvörðunar kemur.
i . Liðurinn þarfnast ekki skýringa.
j . Liðurinn þarfnast ekki skýringa.
k . Liðurinn þarfnast ekki skýringa.
Um 6. gr.
Greinin þarfnast ekki skýringa.
Um 7. gr.
a . Brot, sem hér um ræðir, eiga sér yfirleitt stað fjarri þéttbýli á landsvæðum sem hafa verið friðuð eða friðlýst sökum sérstöðu sinnar um landslag, gróðurfar, dýralíf, eða náttúrumyndanir, svo sem fossar, eldstöðvar, hellar, drangar, o.s.frv. Brotin beinast því gegn náttúruperlum og þjóðargersemum sem að öllu jöfnu hafa mikið aðdráttar
Brotin eiga sér yfirleitt stað fjarri þéttbýli og því getur liðið talsverður tími frá því að vitneskja fæst um brotið þar til lögregla kemur á vettvang. Sá tími er mjög mikil
Því er lagt til að landverðir og annað starfsfólk geri eigin skýrslu um þá vitneskju sem það hefur um brotið, gefi þar stutta lýsingu á því, upplýsingar um vitni, myndir af vettvangi, sé þess þörf, og verndi eins og kostur er brotavettvang þar til lögregla kemur. Jafnframt þarf að koma fram í skýrslunni lýsing á afleiðingum brotsins, eða tjóni. Með þessu móti ættu að fást inn í málið upplýsingar og gögn sem ella væri hætta á að glötuðust sökum fjarlægðar lögreglu frá vettvangi. Þessar upplýsingar eru síðan afhentar lögreglu.
Það er nauðsyn ef árangur á að nást í rannsókn lögbrota að frumrannsókn á brota
Starfsmenn taka hvorki skýrslur af sakborningum eða vitnum né öðrum sem mál
b . Liðurinn þarfnast ekki skýringa.
Um ákvæði til bráðabirgða.
Nýtt Náttúruverndarráð var kjörið á 8. náttúruverndarþingi sem haldið var í október 1993. Eðlilegt er að það ráð sitji fram að næsta þingi þótt lagabreytingar þær sem hér er gerð tillaga um taki gildi fyrri hluta árs 1995. Óraunhæft er að gera ráð fyrir að náttúru
Fylgiskjal.
Fjármálaráðuneyti,
fjárlagaskrifstofa:
Umsögn um frumvarp til laga um breytingar á lögum nr. 47/1971.
Frumvarpi þessu er ætlað að breyta fyrirkomulagi og áherslum í framkvæmd náttúru
Ekki hefur farið fram sérstök athugun á þeim breytingum sem gerðar yrðu á núverandi starfsemi til að framfylgja ákvæðum laganna, t.d. á fjölda starfa eða deildaskipulagi í kjölfar nýrrar verkaskiptingar. Að mati fjármálaráðuneytisins hefði gerð slíkrar starfs- og rekstraráætlunar verið nauðsynlegur þáttur í undirbúningi lagasetningarinnar. Á þessu stigi er því einungis vakin athygli á nokkrum kostnaðaráhrifum sem leiðir beint af ákvæðum frumvarpsins.
Í frumvarpinu er kveðið á um að náttúruverndarþing skuli haldin annað hvert ár í stað
Samkvæmt frumvarpinu yrði sett þriggja manna stjórn yfir Landvörslu ríkisins og eru þau útgjöld lauslega áætluð um 0,5 m.kr. Gert er ráð fyrir nokkurri fækkun í öðrum störf
Umhverfisráðuneytið fyrirhugar að standa þannig að framangreindum breytingum á framkvæmd náttúruverndar að starfsemin rúmist innan ramma núverandi fjárveitinga. Ráðuneytið hefur jafnframt ákveðið að ef lögin komi til framkvæmda verði gerð úttekt á Náttúruverndarráði og Landvörslunni sem miði að því að tryggja það markmið með endurskipulagningu og hagræðingu í rekstri.