Ferill 127. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: Word Perfect.
1994. – 1064 ár frá stofnun Alþingis.
118. löggjafarþing. –
127
. mál.
132. Frumvarp til laga
um framhaldsskóla.
(Lagt fyrir Alþingi á 118. löggjafarþingi 1994.)
I. KAFLI
Gildissvið.
1. gr.
Lög þessi taka til skólastarfs á framhaldsskólastigi er tekur við af skyldunámsstigi og allt til háskólastigs, sbr. 2. gr. laga nr. 55/1974, um skólakerfi. Framhaldsskólar er sam
nefni þeirra skóla er undir lög þessi falla. Þeir eru: fjölbrautaskólar, iðn- og verkmennta
skólar, menntaskólar, svo og skólar sem veita sérhæft nám á framhaldsskólastigi. Ein
stakar skólastofnanir geta borið sérstakt nafn, t.d. tengt stað, hefð eða sérstöku hlutverki. Setja skal reglugerð um sérskóla sem starfa samkvæmt lögum þessum.
II. KAFLI
Hlutverk.
2. gr.
Hlutverk framhaldsskóla er að stuðla að alhliða þroska allra nemenda svo að þeir verði sem best búnir undir að taka virkan þátt í lýðræðisþjóðfélagi. Framhaldsskólinn býr nem
endur undir störf í atvinnulífinu og frekara nám.
Framhaldsskólinn skal leitast við að efla ábyrgðarkennd, víðsýni, frumkvæði, sjálfs
traust og umburðarlyndi nemenda, þjálfa þá í öguðum og sjálfstæðum vinnubrögðum og gagnrýninni hugsun, kenna þeim að njóta menningarlegra verðmæta og hvetja til stöðugrar þekkingarleitar.
III. KAFLI
Starfstími.
3. gr.
Árlegur starfstími nemenda í framhaldsskólum skal vera 9 mánuðir. Þar af skulu kennsludagar ekki vera færri en 150. Menntamálaráðherra setur í reglugerð nánari ákvæði um starfstíma skóla og leyfisdaga.
IV. KAFLI
Stjórnun.
4. gr.
Menntamálaráðherra fer með yfirstjórn þeirra mála er lög þessi taka til og ber ábyrgð á aðalnámskrá, eftirliti með skólastarfi og námsefni, ráðgjöf um kennslu og þróunarstarf í framhaldsskólum, söfnun og dreifingu upplýsinga um skólastarf.
Menntamálaráðherra gerir tillögur um fjárveitingu á fjárlögum til hvers skóla og ann
ast fjárhagslegt eftirlit svo og eftirlit með því að framhaldsskólar hafi fullnægjandi að
stöðu hvað varðar húsnæði og búnað.
5. gr.
Samstarfsnefnd framhaldsskóla, skipuð skólameisturum (rektorum og skólastjórum) undir forsæti menntamálaráðherra eða staðgengils hans, fjallar um sameiginleg málefni framhaldsskóla og samræmir störf þeirra.
6. gr.
Menntamálaráðherra skipar skólanefnd við framhaldsskóla til fjögurra ára í senn. Ráðherra getur heimilað sveitarstjórn/sveitarstjórnum að tveir eða fleiri skólar sameinist um eina skólanefnd.
Í skólanefnd skulu sitja fimm menn. Tveir eru skipaðir samkvæmt tilnefningu sveitar
stjórnar/sveitarstjórna og þrír án tilnefningar og skulu þeir að jafnaði búsettir í sveitarfé
lagi sem á aðild að skólanum. Nefndin kýs sér formann til eins árs í senn. Varamenn skulu skipaðir með sama hætti. Áheyrnarfulltrúar eru tveir með málfrelsi og tillögurétt, annar tilnefndur af kennurum skólans, hinn tilnefndur af nemendafélagi skólans. Áheyrn
arfulltrúar skulu tilnefndir til eins árs í senn. Skólameistari situr fundi skólanefndar með málfrelsi og tillögurétt. Hann er framkvæmdastjóri nefndarinnar.
7. gr.
Skólanefnd markar áherslur í starfi skólans. Hún gerir árlega starfs- og fjárhagsáætlun fyrir skólann til þriggja ára sem háð er samþykki menntamálaráðherra. Skólanefnd gerir í upphafi hvers árs fjárhagsáætlun í samræmi við niðurstöður fjárlaga og fylgist með að henni sé framfylgt. Skólanefnd skal gera menntamálaráðuneytinu grein fyrir rekstrar
stöðu skólans a.m.k. tvisvar á ári, þ.e. í febrúar og ágúst.
Skólanefnd ákveður upphæð gjalda er nemendum er gert að greiða við innritun í fram
haldsskóla, svo sem innritunargjöld, efnisgjöld, pappírsgjöld og hlut nemenda í efnis
kostnaði vegna verklegrar kennslu í samræmi við reglur er menntamálaráðherra setur. Halda skal bókhald um fjárreiður þessar. Um endurskoðun gilda sömu reglur og um ann
an rekstur.
Gjöld til nemendasjóða eru ákveðin af nemendafélögum skóla sem sjá um innheimtu og meðferð fjárins. Bókhald nemendafélags skal háð sömu endurskoðun og aðrar fjár
reiður skólans.
Heimilt er skólanefnd að stofna sérstaka sjóði við framhaldsskóla. Skal um þá sett skipulagsskrá, leitað staðfestingar á henni og hún birt í Stjórnartíðindum.
Menntamálaráðherra setur reglugerð um skipan og störf skólanefnda.
8. gr.
Skólameistari veitir skólanum forstöðu. Hann stjórnar daglegum rekstri og starfi framhaldsskóla og gætir þess að skólastarfið sé í samræmi við lög, reglugerðir, aðal
námskrá og önnur gildandi fyrirmæli á hverjum tíma. Hann ber ábyrgð á að fylgt sé fjár
hagsáætlun skólans og hefur frumkvæði að gerð skólanámskrár og umbótastarfi innan skólans.
Skólaráð skal vera skólameistara til aðstoðar við stjórn skóla. Skólameistari er oddviti skólaráðs sem auk hans skal skipað fulltrúum kennara og nemenda svo og aðstoðarskóla
meistara og áfangastjóra, starfi þeir við skólann. Heimilt er að setja í reglugerð nánari ákvæði um skipan skólaráðs, verksvið þess, starfstíma og starfshætti.
9. gr.
Almennur kennarafundur í framhaldsskóla fjallar um stefnumörkun í starfi skólans, um námsskipan, kennsluhætti, þar með talið námsmat, og aðra starfsemi. Kennarafund skal halda eigi sjaldnar en fjórum sinnum á hverju skólaári. Skylt er skólameistara að halda kennarafund ef fulltrúar kennara í skólaráði eða þriðjungur fastra kennara skólans krefjast þess.
10. gr.
Í hverjum framhaldsskóla skal starfa nemendaráð sem er fulltrúi nemenda í hagsmuna
málum þeirra. Nemendaráð hefur tillögu- og umsagnarrétt um markmið náms, námsefni og kennslutilhögun í skóla sínum. Almenn samtök nemenda í hverjum skóla, nemendafé
lög, setja reglur um skipan, starfssvið og starfshætti nemendaráðs.
V. KAFLI
Starfsfólk.
11. gr.
Um fjölda starfsmanna og skiptingu starfa fer eftir stærð og gerð skóla og fjárveitingu hverju sinni.
Menntamálaráðherra ræður skólameistara til fimm ára í senn að fenginni tillögu hlut
aðeigandi skólanefndar. Kennari sem ráðinn er skólameistari skal fá leyfi frá kennara
starfi sínu þann tíma er hann gegnir starfi skólameistara.
Skólameistari ræður kennara, námsráðgjafa, skólasafnverði og aðra starfsmenn skól
ans að höfðu samráði við skólanefnd. Skólameistari ræður aðstoðarskólameistara til fimm ára í senn og áfangastjóra til allt að fjögurra ára og deildarstjóra til tveggja ára að höfðu samráði við skólanefnd.
Um skilyrði þess að vera ráðinn skólameistari eða kennari við framhaldsskóla fer eftir ákvæðum gildandi laga um lögverndun á starfsheiti og starfsréttindum framhaldsskóla
kennara. Setja skal í reglugerð ákvæði um menntun og starfssvið námsráðgjafa og skóla
safnvarða. Setja má í reglugerð ákvæði um menntun og starfssvið annarra starfsmanna.
Menntamálaráðherra setur skólameistara og kennurum erindisbréf svo og öðrum starfsmönnum skóla eftir því sem við á.
12. gr.
Hafi kennari starfað a.m.k. í fimm ár og óski að fá sérstakt námsorlof til að efla þekk
ingu sína og kennarahæfni skal hann senda skólanefnd og menntamálaráðuneyti beiðni um námsorlof ásamt greinargerð um hvernig hann hyggst verja námsorlofstímanum. Ráðuneytið getur veitt honum námsorlof allt að einu ári á föstum embættislaunum.
Menntamálaráðherra getur veitt kennara, er nýtur námsorlofs, styrk til að standa straum af kostnaði við ferðalög og námsdvöl í sambandi við námsorlofið ef hann ver því til að stunda reglulegt nám við viðurkennda menntastofnun eða til námsferðar njóti hann ekki sambærilegs styrks frá öðrum. Beiðni um námsorlof skal hafa borist menntamála
ráðuneytinu fyrir 1. október ár hvert. Að loknu námsorlofi er kennurum skylt að senda ráðuneytinu skýrslu um störf sín á námsorlofstíma.
Ákvæði þessarar greinar taka einnig til skólameistara og annarra stjórnenda skóla. Menntamálaráðherra setur reglugerð um framkvæmd námsorlofs kennara.
13. gr.
Í öllum framhaldsskólum skal rækja heilsuvernd. Sé heilsugæslustöð starfandi í ná
grenni skólans skal fela henni að annast heilsuverndina.
Héraðslæknar hafa umsjón með þessari starfsemi undir yfirstjórn heilbrigðisstjórnar og líta eftir að aðbúnaður og aðstaða nemenda og starfsmanna sé viðhlítandi. Starfsfólk við heilsuvernd í skólum skal hafa náið samstarf við skólameistara um framkvæmdina.
14. gr.
Nemendum í framhaldsskóla skal standa til boða ráðgjöf og leiðsögn um náms- og starfsval og persónuleg mál er snerta nám þeirra og skólavist. Slíka þjónustu veita náms
ráðgjafar, kennarar og annað starfsfólk eftir því sem við á.
VI. KAFLI
Inntökuskilyrði.
15. gr.
Allir sem lokið hafa grunnskólanámi eða hlotið jafngilda undirstöðumenntun skulu eiga kost á að hefja nám í framhaldsskóla.
Inntaka nemenda á einstakar námsbrautir framhaldsskólans ákvarðast af þeim kröfum sem gerðar eru í viðkomandi námi. Í reglugerð skal kveðið á um lágmarkskröfur um námsárangur í einstökum greinum og greinaflokkum við lok grunnskóla og starfsþjálfun þar sem hennar er krafist. Heimilt er skólameistara að undangengnu mati að veita nem
anda sem orðinn er 18 ára gamall inngöngu í einstakar námsbrautir framhaldsskóla þótt hann uppfylli ekki lágmarkskröfur um námsárangur við lok grunnskóla.
Nemendum sem ekki hafa náð tilskildum árangri við lok grunnskóla skal standa til boða fornám eða nám í sérstökum deildum á framhaldsskólastigi. Inntaka nemenda í framhaldsskóla er á ábyrgð skólameistara.
VII. KAFLI
Námsskipan.
16. gr.
Námsbrautir framhaldsskóla skiptast í starfsnámsbrautir, bóknámsbrautir, og almenna námsbraut. Af öllum námsbrautum skulu vera leiðir til frekara náms, annaðhvort beinar eða með skilgreindri viðbót náms.
Á starfsnámsbrautum er nám í löggiltum iðngreinum og annað starfsnám sem lýkur með skilgreindum prófum. Þeir sem lokið hafa sveinsprófi eða öðru starfsnámi, sem nán
ar er tilgreint í reglugerð, skulu eiga kost á viðbótarnámi til stúdentsprófs. Iðnsveinar skulu eiga kost á námi til meistaraprófs í grein sinni. Í reglugerð skal kveða á um hverjar skuli vera löggiltar iðngreinar.
Bóknámsbrautir veita undirbúning að námi á háskólastigi og lýkur með stúdentsprófi. Bóknámsbrautir eru þrjár: tungumálabraut, félagsfræðabraut og náttúrufræðabraut.
Almenn námsbraut er bóklegt og verklegt nám og lýkur með framhaldsskólaprófi. Al
menn námsbraut veitir undirbúning fyrir nám á bók- og starfsnámsbrautum og er jafn
framt hluti af því námi.
Við ákvörðun um stofnun námsbrauta skal tekið mið af eðlilegri sérhæfingu og verka
skiptingu framhaldsskólanna.
Menntamálaráðherra setur reglugerð um framkvæmd ákvæða þessarar greinar.
17. gr.
Námsbrautir framhaldsskóla skulu skipulagðar í samræmi við lokamarkmið námsins. Þær skiptast í brautarkjarna, kjörsvið og frjálst val. Hlutfall milli þessara þátta er ákveðið í aðalnámskrá og getur verið mismunandi eftir brautum.
Brautarkjarni er skyldunám brautar. Þar eru sérgreinar brautarinnar og námsgreinar sem stuðla að almennri menntun og undirbúa nemendur undir þátttöku í samfélaginu. Áherslur í almennum greinum skulu miðast við lokamarkmið námsbrautar.
Kjörsvið er frekari sérhæfing á brautinni. Það er skipulagt sem heild, ýmist með sam
röðun námsáfanga eða í stórum heildstæðum áföngum með áherslu á fræðileg viðfangs
efni. Starfsnám eða viðurkennt listnám á framhaldsskólastigi má meta til kjörsviðs í námi á bóknámsbrautum að uppfylltum skilyrðum sem tilgreind eru í aðalnámskrá.
Frjálst val námsgreina, sem skilgreindar eru í aðalnámskrá framhaldsskóla og kenndar eru í viðkomandi skóla, gefur nemendum kost á að kynnast list-, verk- og fræðasviðum að eigin vali.
18. gr.
Menntamálaráðherra getur heimilað stofnun og starfrækslu fornáms við framhalds
skóla. Fornám er skipulagt sem eins árs nám fyrir nemendur sem ekki hafa náð tilskildum árangri á grunnskólaprófi. Menntamálaráðherra setur nánari reglur um fornám og skilyrði fyrir stofnun þess.
19. gr.
Á framhaldsskólastigi skal veita fötluðum nemendum samkvæmt skilgreiningu á hug
takinu fatlaður í 2. gr. laga nr. 59/1992, um málefni fatlaðra, kennslu og sérstakan stuðn
ing í námi. Látin skal í té sérfræðileg aðstoð og nauðsynlegur aðbúnaður eftir því sem þörf krefur að mati menntamálaráðuneytisins. Fatlaðir nemendur skulu stunda nám við hlið annarra nemenda eftir því sem kostur er.
Menntamálaráðherra getur heimilað stofnun sérstakra deilda við framhaldsskóla fyrir fatlaða nemendur. Menntamálaráðherra setur reglugerð með nánari ákvæðum um kennslu og nám fatlaðra nemenda í framhaldsskólum.
20. gr.
Nemendur sem hafa annað móðurmál en íslensku eiga rétt á sérstakri kennslu í ís
lensku sem öðru tungumáli. Menntamálaráðherra getur heimilað að stofnað verði til sér
staks grunnnáms í íslensku við framhaldsskóla fyrir þessa nemendur. Í reglugerð skal kveðið nánar á um rétt nemenda, tilhögun og mat á íslenskukennslu fyrir nemendur af er
lendum uppruna í framhaldsskólum.
VIII. KAFLI
Námskrár og mat.
21. gr.
Aðalnámskrá, er menntamálaráðherra setur, er meginviðmiðun skólastarfs. Í henni eru útfærð markmið framhaldsskóla og skilgreind markmið einstakra námsbrauta og námsgreina. Í aðalnámskrá skulu vera almennar reglur um réttindi og skyldur nemenda.
Í aðalnámskrá skal kveðið á um uppbyggingu einstakra námsbrauta, samhengi í námi og meðallengd námstíma á hverri braut. Þar er ákveðinn lágmarksfjöldi kennslustunda í einstökum námsgreinum, inntak í megindráttum, stígandi í náminu og kennsluskipan.
Í aðalnámskrá skal mælt fyrir um námsmat, þar með talin próf og vitnisburð. Þar komi fram hvaða kröfur nemandi þarf að uppfylla til þess að hann teljist hafa lokið einstökum áföngum náms með fullnægjandi árangri og lágmarkskröfur til þess að standast tiltekin lokapróf. Þar skal kveðið á um hversu oft nemandi má endurtaka próf og birtar reglur um rétt nemenda til að sjá prófúrlausnir sínar.
Í aðalnámskrá eru ákvæði um mat á starfsþjálfun sé hún hluti námsins, mat á námi þegar nemendur flytjast milli skóla og skilyrði þess að flytjast milli námsbrauta. Í aðal
námskrá skal setja viðmiðunarreglur um skólanámskrár og mat á skólastarfi.
22. gr.
Í hverjum skóla skal gefa út skólanámskrá þar sem gerð er grein fyrir námsframboði, lengd og innihaldi námsáfanga og skiptingu námsgreina á námsannir og/eða námsár. Þar skal einnig gerð grein fyrir kennsluháttum, námsmati og stjórnunarháttum, svo sem gæðastjórnun.
Í skólanámskrá geri skólar grein fyrir hvernig ná skuli því markmiði framhaldsskóla að námið stuðli að alhliða þroska nemenda svo þeir verði sem best búnir undir að taka virkan þátt í lýðræðisþjóðfélagi. Skólanámskrá skal samþykkt af skólanefnd sem fylgist með framkvæmd hennar.
23. gr.
Sérhver framhaldsskóli skal innleiða aðferðir til að meta skólastarfið, þar á meðal kennslu og stjórnunarhætti, samskipti innan skólans og tengsl við aðila utan skólans. Á fimm ára fresti skal utanaðkomandi aðili gera úttekt á sjálfsmatsaðferðum skóla.
24. gr.
Almennt námsmat í framhaldsskóla er í höndum kennara og deildarstjóra. Matið byggir á markmiðum skólastarfs sem kveðið er á um í aðalnámskrá og skólanámskrá.
Lokapróf úr framhaldsskóla er veitt geta rétt til frekara náms eða réttindi til starfa skulu vera samræmd í tilteknum greinum sem nánar er kveðið á um í reglugerð. Rann
sóknastofnun uppeldis- og menntamála hefur umsjón með gerð samræmdra prófa fyrir framhaldsskóla og úrvinnslu samræmdra lokaprófa. Í reglugerð skal kveðið nánar á um framkvæmd samræmdra prófa í framhaldsskólum.
IX. KAFLI
Starfsnám.
25. gr.
Starfsnám skal stuðla að almennri menntun nemenda, veita þeim undirbúning til til
tekinna starfa og innsýn í hlutverk fyrirtækja og starfsfólks í atvinnulífi. Náminu er jafn
framt ætlað að hvetja nemendur til að viðhalda þekkingu sinni og bæta við hana með end
urmenntun eða áframhaldandi námi.
Starfsnám skiptist á skóla og vinnustað eða fer fram eingöngu í skóla. Námið er bók
legt og verklegt og skal mynda sem samfelldasta heild svo að nemendur fái betur skilið tengsl fræðilegra og hagnýtra þátta. Áhersla skal lögð á að innihald starfsnáms taki mið af þörfum starfsgreina fyrir fagmenntun starfsfólks til einstakra starfa á hverjum tíma.
26. gr.
Menntamálaráðherra skipar samstarfsnefnd um starfsnám á framhaldsskólastigi til fjögurra ára í senn. Nefndin skal skipuð 18 fulltrúum, þar af 12 tilnefndum af eftirtöldum aðilum atvinnulífs: 5 frá Alþýðusambandi Íslands, þar af skal 1 vera fulltrúi nema, 1 frá Bandalagi starfsmanna ríkis og bæja, 5 frá Vinnuveitendasambandi Íslands og 1 frá Vinnumálasambandi samvinnufélaga. Leitast skal við að fulltrúar atvinnulífsins komi úr sem flestum atvinnugreinum. Auk þess sitja í nefndinni 1 fulltrúi frá Sambandi ís
lenskra sveitarfélaga og 5 fulltrúar skipaðir án tilnefningar og skal a.m.k. 1 þeirra vera starfsmenntakennari og 1 stjórnandi starfsmenntaskóla. Menntamálaráðherra skipar for
mann nefndarinnar.
Samtök atvinnurekenda, launþega og sveitarfélaga greiða kostnað af störfum fulltrúa sinna í samstarfsnefndinni en menntamálaráðuneytið greiðir kostnað af störfum fulltrúa menntamálaráðherra og leggur nefndinni til skrifstofuþjónustu.
27. gr.
Samstarfsnefnd um starfsnám á framhaldsskólastigi stuðlar að tengslum skóla og at
vinnulífs og er menntamálaráðherra til ráðuneytis um stefnumótun í starfsnámi og setn
ingu almennra reglna um skipan og framkvæmd starfsnáms. Nefndin gerir tillögur um skipan starfsgreina í starfsgreinaflokka í samráði við samtök atvinnurekenda og launþega í viðkomandi greinum, forgangsröðun verkefna í starfsnámi svo og sérstakar tilraunir og þróunarverkefni. Nefndin setur sér starfsreglur sem öðlast gildi við staðfestingu mennta
málaráðherra.
28. gr.
Menntamálaráðherra skipar til fjögurra ára í senn starfsgreinaráð fyrir starfsgreina
flokka eða starfsgreinar. Í starfsgreinaráði skulu eiga sæti fulltrúar tilnefndir af samtök
um atvinnurekenda og launþega í viðkomandi starfsgreinum og einn fulltrúi mennta
málaráðherra. Varamenn skulu skipaðir með sama hætti. Allar starfsgreinar sem njóta fræðslu á framhaldsskólastigi skulu eiga kost á fulltrúaaðild að starfsgreinaráði og skal gætt jafnræðis milli fulltrúa atvinnurekenda og launþega. Formaður skal kjörinn úr hópi fulltrúa til tveggja ára í senn. Ef ekki tekst að skipa starfsgreinaráð er menntamálaráð
herra heimilt að skipa tímabundið sérstaka starfshópa til að sinna verkefnum starfsgreina
ráðs.
Samtök atvinnurekenda og launþega greiða kostnað af störfum fulltrúa sinna í starfs
greinaráði og menntamálaráðuneytið greiðir kostnað af fulltrúa menntamálaráðherra og af sérfræðilegri vinnu við námskrárgerð.
29. gr.
Starfsgreinaráð skilgreinir þarfir starfsgreina fyrir kunnáttu og hæfni starfsmanna og setur fram markmið starfsnáms.
Starfsgreinaráð gerir tillögur um uppbyggingu starfsnáms og námskrá í sérgreinum viðkomandi starfsnáms svo og um tilhögun námsmats og eftirlit með gæðum kennslu og námsefnis. Það gerir einnig tillögur að skiptingu náms í skóla og á vinnustað svo og regl
um um vinnustaðanám, viðurkenningu á vinnustöðum til að taka nema í starfsþjálfun eða á námssamning og aðstöðu, búnað og kennarakost skóla sem annast starfsnám.
Starfsgreinaráð skal hafa frumkvæði að tillögugerð um breytta skipan náms og vera stjórnvöldum til ráðuneytis í málum er varða menntun í starfsgreinum er undir ráðið heyra.
Að fengnum tillögum starfsgreinaráðs gefur menntamálaráðherra út námskrá í sér
greinum starfsnáms sem hluta af aðalnámskrá framhaldsskóla og reglur um framkvæmd starfsnáms í einstökum starfsgreinum.
30. gr.
Til að stuðla að sem bestu samstarfi skóla og atvinnulífs er skólanefnd heimilt að setja á fót eina eða fleiri ráðgjafarnefndir við skóla með fulltrúum atvinnulífs í viðkomandi byggðarlagi og skal gætt jafnræðis milli fulltrúa atvinnurekenda og launþega. Skólar leiti til starfsgreinaráða um tilnefningar fulltrúa í ráðgjafarnefndir í byggðarlagi.
31. gr.
Menntamálaráðherra getur, að fenginni umsögn starfsgreinaráðs og stofnaðila, gert framhaldsskóla eða deild í framhaldsskóla að kjarnaskóla um lengri eða skemmri tíma. Í samráði við starfsgreinaráð hefur kjarnaskóli forgöngu um að þróa námsefni, námsskip
an og kennsluaðferðir í starfsnámi og aðstoðar aðra skóla og fyrirtæki við umbætur í kennslu og þjálfun á viðkomandi sviði.
Í samningi er menntamálaráðherra gerir við þá stofnun er tekur að sér hlutverk kjarna
skóla skal verkefnið skilgreint, stjórnun þess, lengd samningstíma og hvernig úttekt þess skuli háttað. Hagsmunaaðilar á vinnumarkaði geta átt aðild að slíkum samningi.
32. gr.
Verknám og starfsþjálfun á vinnustað byggir á ákvæðum aðalnámskrár og reglum um vinnustaðanám í viðkomandi starfsgrein. Um vinnustaðanám skal gera sérstakan starfs
þjálfunarsamning milli skóla og vinnustaðar eða námssamning milli nema og vinnuveit
anda.
Námssamningur skal undirritaður við upphaf vinnustaðanáms og staðfestur innan eins mánaðar. Þar skal tilgreindur reynslu- og gildistími samningsins. Ákvæði um laun og önnur starfskjör skulu vera í samræmi við gildandi kjarasamninga að því er varðar nema í viðkomandi starfsnámi.
Í reglugerð, sem menntamálaráðherra setur, skulu vera ákvæði um starfsþjálfunar
samninga. Þar skal einnig kveðið á um form, staðfestingu og skráningu námssamninga, svo og samningsslit og meðferð ágreiningsefna er upp kunna að koma varðandi fram
kvæmd samnings. Áður en reglugerð þessi er sett skal leitað umsagnar aðila vinnumark
aðar og samtaka nemenda.
X. KAFLI
Fullorðinsfræðsla og endurmenntun.
33. gr.
Menntamálaráðherra getur heimilað framhaldsskóla að bjóða nám í öldungadeildum fyrir nemendur 20 ára og eldri. Nám í öldungadeildum skal vera jafngilt námi á einstök
um námsleiðum framhaldsskólans, en skipulagning náms og kennsluhættir taki mið af því að um fullorðna nemendur er að ræða.
Fyrir kennslu í slíku námi skulu nemendur greiða gjald sem nemur sem næst þriðjungi kennslulauna og kennslugögn. Menntamálaráðherra setur reglur um hlutdeild öldunga
deildarnemenda í efniskostnaði. Nánari ákvæði um þessa starfsemi skulu sett í reglugerð.
34. gr.
Framhaldsskóla er heimilt með samþykki menntamálaráðherra að starfrækja endur
menntunarnámskeið eða annars konar nám í samráði eða samvinnu við faggreinafélög, stéttarfélög, atvinnurekendur eða aðra hagsmuna- eða áhugahópa, t.d. með farskólasniði.
Halda skal kostnaði vegna þessara námskeiða aðgreindum frá öðrum rekstri skólans og skal hann greiddur að fullu af þeim aðilum er að námskeiðum standa með skólanum eða með þátttökugjöldum.
Gera skal samning milli samstarfsaðila og skólans þar sem gengið er frá fyrirkomulagi og full greiðsla kostnaðar tryggð.
XI. KAFLI
Skólasafn.
35. gr.
Í öllum framhaldsskólum skal vera skólasafn. Hlutverk þess er að vera upplýsinga
miðstöð fyrir nemendur og kennara. Það skal búið bókum og nýsigögnum auk annars safnkosts sem tengist kennslugreinum skóla. Í tengslum við húsnæði skólasafns skal vera lesaðstaða með aðgangi að upplýsingaritum á skólasafni.
Í starfsemi skólasafns skal leggja áherslu á að þjálfa nemendur í sjálfstæðri leit upp
lýsinga og notkun gagnabanka.
XII. KAFLI
Stofnun og bygging framhaldsskóla.
36. gr.
Ríki eða sveitarfélög, eitt eða fleiri, geta haft frumkvæði að stofnun nýs framhalds
skóla en skóli verður þó eigi stofnaður nema með samþykki Alþingis. Ákvæði þetta á þó ekki við um skóla sem stofnaðir kunna að verða samkvæmt ákvæðum 40. gr.
Standi ríki og sveitarfélag/félög sameiginlega að stofnun framhaldsskóla skal gera samning milli aðila um nýframkvæmdir, stofnbúnað og endurbyggingu húsnæðis, sem ríki og sveitarfélög samþykkja að standa að, vegna framhaldsskóla. Þar skulu m.a. vera ákvæði um stjórn framkvæmda, byggingarhraða og greiðslustreymi. Heimilt er að fela sveitarfélögum, sem aðild eiga að framhaldsskóla, að fara með undirbúning og umsjón með byggingarframkvæmdum.
Samningar um framkvæmdir skulu undirritaðir af menntamálaráðherra og fjármála
ráðherra annars vegar og hlutaðeigandi sveitarstjórn eða sveitarstjórnum hins vegar. Fjár
málaráðherra skal kynna fjárlaganefnd slíka samninga.
Kostnaður við byggingarframkvæmdir, aðrar framkvæmdir á lóð og stofnbúnað fram
haldsskóla og heimavista við þá, skiptist þannig að ríkissjóður greiðir 60% áætlaðs kostnaðar samkvæmt viðmiðunarreglum (normkostnaður) þegar sveitarfélag eða sveitar
félög annast undirbúning og verkframkvæmd. Hlutur sveitarfélags eða sveitarfélaga er þá sá hluti kostnaðar sem ríkissjóður greiðir ekki. Lóðir undir framhaldsskóla skulu sveitarfélög leggja til án kvaða eða gjalda. Þegar ríkissjóður ber ábyrgð á undirbúningi verks og stjórnar framkvæmdum, án íhlutunar sveitarfélags eða sveitarfélaga, greiðir sveitarfélag eða sveitarfélög 40% miðað við normkostnað en ríkissjóður hinn hlutann. Heimilt er ráðuneytinu að semja um aðra kostnaðaraðild þegar um búnað verknámshús
næðis er að ræða að fengnu samþykki fjárlaganefndar.
Ákveði Alþingi að stofna skóla án aðildar sveitarfélags eða sveitarfélaga greiðist allur stofnkostnaður úr ríkissjóði.
Þar sem heimavistir verða reistar í tengslum við framhaldsskóla má gerð húsnæðis og búnaðar miðast við að nýta megi aðstöðuna til gistihúsarekstrar utan reglulegs skólatíma. Um umframkostnað, sem af því kann að leiða, skal samið sérstaklega milli byggingaraðila. Um notkun heimavistarhúsnæðis utan skólatíma skal gerður sérstakur samningur og hann staðfestur af menntamálaráðuneytinu.
Menntamálaráðherra skal í samráði við Samband íslenskra sveitarfélaga setja viðmið
unarreglur um stærð og gerð húsnæðis fyrir framhaldsskóla og málsmeðferð varðandi undirbúning framkvæmda samkvæmt þessari grein. Menntamálaráðuneytið skal að höfðu samráði við Samband íslenskra sveitarfélaga setja reglur um viðmiðun stofnkostn
aðar og búnaðar (norm) er skipting áætlaðs byggingarkostnaðar miðist við.
37. gr.
Skólamannvirki þau, sem lög þessi taka til, skulu vera eign ríkis og sveitarfélaga í sömu hlutföllum og stofnkostnaður er greiddur eða hefur verið greiddur sé um eldra hús
næði að ræða.
Verði húsnæði framhaldsskóla ráðstafað til annarra nota en framhaldsnáms skulu eignaraðilar gera með sér samkomulag þar um. Verði eign seld öðrum hvorum eignarað
ila skal hún metin af dómkvöddum mönnum.
XIII. KAFLI
Rekstur framhaldsskóla.
38. gr.
Ríkissjóður greiðir samkvæmt lögum þessum rekstrarkostnað framhaldsskóla. Hver skóli er sjálfstæð rekstrareining og hefur sérstaka fjárveitingu á fjárlögum. Menntamála
ráðherra gerir tillögur til fjárveitingar á fjárlögum til hvers skóla á grundvelli samþykktr
ar kennslu- og fjárhagsáætlunar skólans til þriggja ára. Áætlun þessi skal endurskoðuð árlega með tilliti til nemendafjölda skólans.
Ríkissjóður greiðir allan launakostnað vegna kennslu, stjórnunar og annarra starfa. Menntamálaráðherra skal gefa út reglugerð þar sem settar eru fram reglur (reiknilíkan) til að reikna út kennslukostnað skóla. Við útreikninga þessa skal miðað við fjölda nem
enda, lengd og tegund náms, fjölda kennslustunda á viku samkvæmt aðalnámskrá, kostn
að sem leiðir af kjarasamningum og annað sem kann að skipta máli. Í reglugerð þessari skulu einnig vera viðmiðunarreglur um framlög til annarra starfa en kennslu.
Auk launakostnaðar greiðir ríkissjóður annan rekstrarkostnað skóla, svo og viðhald húsa og tækja. Rekstrarframlag er greitt til skóla samkvæmt ákvæðum í samningi er gerð
ur skal við menntamálaráðuneytið. Heimilt er skólanefnd, ef þörf krefur, að millifæra fé af rekstrarlið fjárlaga til launaliðar og af launalið til rekstrarliðar.
Meiri háttar viðhald framhaldsskóla í eigu ríkissjóðs skal greitt af sérstakri fjárveit
ingu til þessa verkefnis sem ákveðin er í fjárlögum í samræmi við sérstaka viðhaldsáætl
un til þriggja ára í senn sem menntamálaráðherra gerir. Um undirbúning viðhaldsfram
kvæmda og umsjón með þeim fer með sama hætti og aðrar slíkar framkvæmdir á vegum ríkisins.
Heimilt er að ráða sérstakan fjármálafulltrúa til þess að annast fjárreiður skóla og bók
hald og starfar hann undir stjórn skólameistara.
39. gr.
Þar sem talið er nauðsynlegt að reka heimavist við framhaldsskóla er ríkið rekur, greiðir ríkissjóður kostnað við umsjón og almennan rekstur. Nemendur bera sjálfir hluta sérgreinds kostnaðar í heimavistum og rekstri mötuneyta samkvæmt sérstökum reglum sem menntamálaráðherra setur.
Skólameistari hefur umsjón með rekstri heimavistar og mötuneytis nemenda.
XIV. KAFLI
Ýmis ákvæði.
40. gr.
Einkaaðilar og/eða samtök geta stofnað skóla á framhaldsskólastigi enda uppfylli þessir skólar ákvæði laga og reglugerða um námsframboð, kennsluskipan og eftirlit og hafi hlotið starfsleyfi menntamálaráðuneytis. Alþingi ákveður framlag ríkissjóðs til þess
ara skóla. Ekki eiga einkaskólar kröfu til styrks af almannafé.
41. gr.
Samtök atvinnurekenda og launþega geta gerst aðilar að stofnun og/eða rekstri fram
haldsskóla eða hluta hans. Um slíka aðild skal gerður samningur milli aðila er kveði á um framlög og aðild að stjórnun hans ef um slíkt á að vera að ræða.
42. gr.
Samvinnuskólinn og Verslunarskóli Íslands hafa rétt til þess að reka áfram það fræðslustarf sem þeir hafa annast og auka það og sérhæfa eftir því sem aðstæður leyfa og þörf krefur.
Um fjárveitingu úr ríkissjóði gilda sömu ákvæði og um aðra framhaldsskóla varðandi rekstrar- og stofnkostnað, sbr. 36. og 38. gr., enda hafi menntamálaráðuneytið samþykkt áætlun um rekstur skólanna og fé verið veitt í fjárlögum fyrir stofnkostnaði. Framlög rík
isins samkvæmt þessari grein miðast við að skólar þessir starfi í samræmi við megin
stefnu þessara laga og samkvæmt námskrám og reglugerðum sem settar verða.
Verði skólar þessir lagðir niður eða húsnæði þeirra eigi nýtt til kennslu eða heimavist
ar fær ríkissjóður eignarráð yfir hlutaðeigandi húsnæði í samræmi við stofnkostnaðar
framlög sín. Ríki ágreiningur um eignaskiptingu skal dómkveðja þrjá óvilhalla menn til þess að kveða á um skiptingu og er úrskurður þeirra endanlegur.
Skólanefndir skulu starfa við Samvinnuskólann og Verslunarskóla Íslands. Skal einn skólanefndarmaður tilnefndur af menntamálaráðherra en eignaraðilar skipa hina. Hafa þær með höndum fjárreiður skólanna og eignaumsýslu í umboði eigenda. Skólanefndir ráða skólameistara svo og kennara í samráði við hann. Nefndin kýs sér sjálf formann og varaformann.
43. gr.
Heimilt er að nýta skólahúsnæði til félagsstarfsemi utan reglulegs skólatíma enda greiðist fyrir leiga sem nemur a.m.k. kostnaði fyrir rafmagn, hita, ræstingu og vörslu. Skólanefnd setur almennar reglur um slíka ráðstöfun skólahúsnæðis.
Hagnaði af leigu skólahúsnæðis og heimavista, sbr. 39. gr., skal verja til viðhalds og endurnýjunar húsnæðis og búnaðar.
44. gr.
Menntamálaráðherra getur heimilað framhaldsskóla að gera tilraunir með ákveðna þætti skólastarfs með undanþágu frá ákvæðum laga þessara og reglugerðum er settar kunna að verða samkvæmt þeim.
Um fjárframlög til tilraunastarfs af þessu tagi fer samkvæmt ákvörðun Alþingis hverju sinni. Slíkum tilraunum skulu ávallt sett eðlileg tímamörk og í leyfi kveðið á um úttekt að tilraun lokinni.
45. gr.
Árlega skal veita fé á fjárlögum til þróunarsjóðs framhaldsskóla og heyrir hann undir menntamálaráðherra sem setur reglur um styrkveitingar úr sjóðnum.
46. gr.
Menntamálaráðherra gerir Alþingi grein fyrir framkvæmd skólastarfs í framhalds
skólum landsins á þriggja ára fresti.
XV. KAFLI
Gildistaka, brottfallin lög o.fl.
47. gr.
Lög þessi öðlast gildi þann 1. ágúst 1995 og skulu komin að fullu til framkvæmda í upphafi skólaársins 1999–2000.
48. gr.
Við gildistöku laga þessara falla úr gildi lög um framhaldsskóla, nr. 57/1988, með áorðnum breytingum.
XVI. KAFLI
Ákvæði til bráðabirgða.
I.
Ákvæði í 23. gr. um samræmd lokapróf úr framhaldsskóla skulu ekki komin að fullu til framkvæmda fyrr en skólaárið 1999–2000.
II.
Ákvæði um starfsnám í 25.–32. gr. skulu vera komin til fullra framkvæmda innan fjögurra ára frá gildistöku laga þessara. Menntamálaráðherra setur í reglugerð áætlun um framkvæmd ákvæða greina þessara að höfðu samráði við samstarfsnefnd um starfsnám á framhaldsskólastigi, sbr. 26. gr. Ef þörf þykir skal fara fram endurskoðun þessara laga
greina í kjölfar úttektar á framkvæmd þeirra.
III.
Næstu fjögur ár frá gildistöku laganna getur menntamálaráðherra veitt heimild til að umsækjandi gangi undir verklegt sveinspróf í löggiltri iðngrein án undangengins skóla
náms enda liggi fyrir: (a) vottorð um að viðkomandi hafi unnið við iðnina í 10 ár undir stjórn meistara; (b) vottorð iðnmeistara um að hann telji umsækjanda hæfan til að ganga undir sveinspróf og (c) umsagnir viðkomandi sveinafélags og starfsgreinaráðs. Standist umsækjandi prófið öðlast hann sveinsbréf sem veitir þó ekki rétt til inngöngu í meistara
skóla.
Athugasemdir við lagafrumvarp þetta.
Frumvarp þetta var samið af nefnd sem Ólafur G. Einarsson menntamálaráðherra skip
aði hinn 11. mars 1992 til að endurskoða lög um grunn- og framhaldsskóla og móta menntastefnu. Nefnd um mótun menntastefnu skilaði áfangaskýrslu í janúar 1993 og voru þar reifaðar helstu hugmyndir hennar um áherslur í skólastarfi. Var skýrslan víða kynnt og send fjölmörgum aðilum til umsagnar. Frumvarpið var unnið á grundvelli áfangaskýrslunnar, umsagna um hana og viðræðna við fjölmarga aðila. Í lokaskýrslu nefndarinnar er sett fram heildstæð skólastefna fyrir grunn- og framhaldsskóla. Nefnd um mótun menntastefnu skipuðu: Sigríður Anna Þórðardóttir alþingismaður, formaður nefndarinnar, Arnar Þórisson viðskiptafræðingur, Árni Sigfússon borgarfulltrúi, Björn Búi Jónsson, kennari við Menntaskólann í Reykjavík, Björn L. Halldórsson lögfræðing
ur, Halldóra J. Rafnar, menntamálafulltrúi VSÍ, Haukur Helgason, skólastjóri Öldutúns
skóla í Hafnarfirði, Helgi Jónasson, fræðslustjóri Reykjanesumdæmis, Ingibjörg Guð
mundsdóttir, fræðslufulltrúi MFA, Ingimundur Sigurpálsson, bæjarstjóri í Garðabæ, Linda Rós Mikaelsdóttir, kennari í Álftamýrarskóla í Reykjavík, María Þ. Gunnlaugs
dóttir, aðstoðarskólameistari Flensborgarskóla í Hafnarfirði, Ólafur H. Jóhannsson, end
urmenntunarstjóri Kennaraháskóla Íslands, Sigurveig Sæmundsdóttir, kennari í Hof
staðaskóla í Garðabæ, Sólrún Jensdóttir, skrifstofustjóri í menntamálaráðuneytinu, Stef
án Baldursson, skrifstofustjóri í menntamálaráðuneytinu, Trausti Þorsteinsson, fræðslu
stjóri Norðurlandsumdæmis eystra, Þórleifur Jónsson, viðskiptafræðingur hjá Samtökum iðnaðarins.
Með nefndinni störfuðu Guðrún Hrefna Guðmundsdóttir, ráðgjafi menntamálaráð
herra í skólamálum, Kristrún Ísaksdóttir og Margrét Harðardóttir, deildarsérfræðingar í menntamálaráðuneytinu. Þá starfaði Guðríður Sigurðardóttir ráðuneytisstjóri með nefndinni til loka janúar 1993. Auk þess veittu Hörður Lárusson, deildarstjóri framhalds
skóladeildar, og fleiri starfsmenn skrifstofu menntamála og vísinda nefndinni ýmis góð ráð og ábendingar.
Tillaga að frumvarpi til laga um framhaldsskóla var samþykkt samhljóða á fundi nefndarinnar þann 15. febrúar 1993. Björn Búi Jónsson og María Þ. Gunnlaugsdóttir skil
uðu séráliti um 3. gr. og 3. efnisgr. 16. gr. og Björn Halldórsson tók ekki afstöðu til þá
verandi 37. gr.
Frumvarpsdrög nefndarinnar voru kynnt helstu hagsmunaaðilum í febrúar og mars
mánuði 1994. Gerðar voru breytingar á frumvarpinu með hliðsjón af ábendingum þessara aðila og það síðan lagt fyrir til kynningar á Alþingi á 117. löggjafarþingi 1993–94. Með hliðsjón af opinberri umræðu frá þeim tíma hafa enn verið gerðar nokkrar breytingar á frumvarpinu. Fallið hefur verið frá fyrirhugaðri lengingu á skólaárinu úr 9 mánuðum í 10 og lágmarksfjöldi kennsludaga lækkaður úr 160 í 150. Jafnframt er fallið frá fækkun námsára til stúdentsprófs og öll ákvæði um lengd námstíma tekin út (16. gr.). Auk þess er kveðið á um það í 16. gr. að nám á almennri námsbraut skuli metið sem hluti af námi á bók- og starfsnámsbrautum. Í frumvarpið var bætt við nýrri grein um rétt nemenda, sem hafa annað móðurmál en íslensku, til sérstakrar íslenskukennslu (20. gr.). Einnig hefur verið bætt inn ákvæði um að sveitarfélög skuli leggja til lóðir fyrir framhaldsskóla, án kvaða eða gjalda (36 gr.), ásamt því að í grein um rekstur framhaldsskólans hefur verið bætt inn heimildarákvæði um að skólanefnd geti fært fé á milli rekstrar- og launaliða fjár
laga (38. gr.).
Heildarendurskoðun grunn- og framhaldsskólalaga.
Síðastliðin tvö ár hefur verið unnið að heildarendurskoðun á lögum um grunn- og framhaldsskóla á vegum menntamálaráðuneytis. Við endurskoðunina var tekið mið af rannsóknum sem til eru um þessi skólastig, viðhorfum til skólastarfs innan lands og utan, svo og reynslu kennara, skólastjórnenda, aðila atvinnulífs og almennings af skólastarfi og árangri þess.
Endurskoðun grunnskólalaga felur í sér breytingu á stjórnun grunnskóla sem er afleið
ing af áætlaðri yfirfærslu grunnskólans til sveitarfélaga. Jafnframt er gert ráð fyrir að við endurskoðun námskrár fyrir grunn- og framhaldsskóla verði hugað meira að tengslum beggja skólastiga og reynt að líta á skólagöngu nemenda frá upphafi grunnskóla til loka framhaldsskóla sem heildstætt ferli þar sem nemendur þroskast og verða sjálfstæðari eftir því sem lengra dregur í náminu. Skólarnir eru uppeldis- og menntastofnanir sem gegna veigamiklu hlutverki í því að vekja ungt fólk til ábyrgrar og virkrar þátttöku í lýðræðis
þjóðfélagi.
Staða framhaldsskólans í dag.
Kröfur til framhaldsskólans hafa breyst mjög á síðastliðnum árum. Breiður hópur nemenda sækir nú nám í framhaldsskóla og lætur nærri að um 85% árgangs hefji þar nám. Hér er um að ræða alþjóðlega þróun en aukin aðsókn að framhaldsskólanámi hér á landi hófst skömmu fyrir 1970. Frá miðjum áttunda áratugnum var sú skólagerð sem nú er ríkj
andi á framhaldsskólastiginu að byrja að þróast þótt ekki væri nein heildarlöggjöf til um þetta skólastig. Víða um land voru stofnaðir fjölbrautaskólar eða aðrir framhaldsskólar sem ætlað var að bjóða fjölbreyttar námsleiðir á sviði bók- og starfsnáms. Markmið með stofnun fjölbrautaskóla var að tengja saman námshefðir bóknáms og starfsnáms með það að leiðarljósi að gera báðum jafnhátt undir höfði. Óhætt er að fullyrða að þessu marki hafi ekki verið náð því að vægi bóknáms hefur í raun stóraukist og mikil áhersla verið lögð á nám á bóknámsbrautum til stúdentsprófs. Tölur um brottfall nemenda benda til þess að stór hluti nemendahópsins fái ekki nám við hæfi í framhaldsskólum. Í skýrslunni „Námsferill í framhaldsskóla“ kemur t.d. fram að í árgangi nemenda sem fæddir eru 1969 hafa 58% pilta og 50% stúlkna ýmist ekki farið í framhaldsskóla, hætt námi eða ekki tekist að ljúka því við 22 ára aldur, þ.e. sex árum eftir að þeir luku grunnskóla
.
Í skýrslu OECD frá árinu 1987 um menntastefnu á Íslandi er bent á að framhaldsskól
inn sé það stig íslenska skólakerfisins þar sem mest skortir ákveðna og formlega stefnu. Þar segir m.a. að framhaldsskólar hafi ekki „verið skuldbundnir til að fylgja afmarkaðri stefnu“
og að aðstandendur framhaldsskólanna „greini enn á um í hverju framhaldsmenntun skuli vera fólgin og hver skuli vera markmið hennar og skipulag“
. Nú sjö árum síðar á þessi gagnrýni enn við rök að styðjast þrátt fyrir að sett hafi verið lög um fram
haldsskóla. Gildandi lög um framhaldsskóla voru samþykkt árið 1988 og þeim síðan breytt árið 1989. Þar voru m. a. afnumin öll inntökuskilyrði á einstakar brautir framhalds
skóla. Afnám inntökuskilyrða samkvæmt þessum lögum og fækkun samræmdra prófa við lok grunnskóla hefur fært grunnskólanemendum þau skilaboð að námsárangur í grunnskóla skipti litlu um námsmöguleika og árangur á síðari skólastigum. Framhalds
skólakennarar hafa kvartað yfir ónógum undirbúningi nemenda úr grunnskólum og því að stór hluti nemenda sem skráður er á lengri bók- og starfsnámsbrautir sé ekki fær um að takast á við settar námskröfur. Að öðru leyti var gildandi framhaldsskólalögum fyrst og fremst ætlað að setja ramma utan um það skólastarf sem þegar fór fram í framhalds
skólum og hafa því haft lítil mótandi áhrif á innihald þess og skipan.
Skýr stefna um markmið, skipulag og framkvæmd náms.
Það frumvarp sem nú er lagt fram felur í sér breytingu frá gildandi lögum þar sem nú er mörkuð skýr stefna um skólastarf á framhaldsskólastigi, hlutverk þess, skipulag og starfshætti. Í hlutverkagrein frumvarpsins (2. gr.) er lögð aukin áhersla á almennt mennt
unarhlutverk framhaldsskólans, auk þess sem honum er áfram ætlað að búa nemendur undir störf í atvinnulífi og áframhaldandi nám. Þau námsmarkmið framhaldsskólans sem einkum eiga að stuðla að almennri menntun nemenda og búa þá undir virka þátttöku í lýð
ræðissamfélagi eru sameiginleg á öllum námsbrautum. Þau skulu skilgreind í aðal
námskrá en skólum ætlað að útfæra þau eftir aðstæðum, bæði í sérstökum námsáföngum og sem hluta af námi í einstökum námsgreinum.
Markmiðum og skipulagi framhaldsmenntunar eru gerð mun nákvæmari skil í frum
varpi þessu (VI. og VII. kafli) en í gildandi lögum. Lögð er áhersla á skýrari námsupp
byggingu í framhaldsskólum og breyttar áherslur í námsframboði. Frumvarpið kveður á um að öllum nemendum sem lokið hafa grunnskólanámi skuli tryggður aðgangur að námi í framhaldsskóla en sett eru ákveðin inntökuskilyrði á námsbrautir hans (15. gr.). Kveðið er á um mismunandi tegundir námsbrauta og hlutverk þeirra (16. gr.), lögð áhersla á að allar námsbrautir framhaldsskólans skuli skipulagðar í samræmi við loka
markmið námsins (17. gr.) en horfið frá því ákvæði gildandi laga að námsefni og kennsla hvers áfanga skuli nýtast sem hluti af námi á sem flestum námsbrautum. Nemendur, sem ekki hafa tilskilinn undirbúning til að hefja nám á námsbrautum framhaldsskóla, skulu eiga kost á eins árs fornámi (15. og 18. gr.). Loks er kveðið á um að fötluðum nemendum skuli standa til boða nám í sérstökum deildum (19. gr.) og er þar um að ræða lögfestingu á námsframboði sem hefur verið að þróast á síðustu árum.
Í VIII. kafla frumvarpsins er fjallað um framkvæmd skólastarfs í framhaldsskólum. Þar eru ákvæði um aðalnámskrá framhaldsskóla (21. gr.) sem skólastarf á framhalds
skólastigi byggist á. Í henni skal skilgreint allt nám sem í boði er í hinu opinbera fram
haldsskólakerfi, markmið einstakra námsbrauta og uppbygging þeirra, svo og markmið einstakra námsgreina og námsþátta. Skólanámskrár (22. gr.) skulu unnar í skólunum und
ir faglegri forustu skólameistara og er ætlað að útfæra nánar markmið aðalnámskrár fyrir hið daglega skólastarf svo og að marka áherslur í starfi skólans. Skólanámskrá er hvort tveggja í senn innra stjórntæki skóla og upplýsingarit fyrir nemendur og almenning um áherslur í starfi skólans, skipulag og sérstöðu. Í þessum kafla frumvarpsins er og kveðið á um að skólar skuli taka upp aðferðir til að meta innra starf sitt (23. gr.) en í nágranna
löndunum er lögð mikil áhersla á innra gæðamat sem fyrst og fremst er í höndum starfs
fólks skólanna og þykir gefa góða raun í bættu skólastarfi.
Frumvarpið felur einnig í sér nýja stefnumörkun um starfsnám á framhaldsskólastigi, stjórnun þess og framkvæmd (IX. kafli). Þar er gert ráð fyrir mun virkari þátttöku aðila atvinnulífs í tillögugerð og stefnumótun og skapaður vettvangur fyrir samstarf aðila at
vinnulífs og skólamanna um framkvæmd starfsnáms.
Tengsl skóla og samfélags.
Í skýrslu OECD kom fram að einangrun skólanna var talin mikið vandamál í íslensku skólakerfi. Í henni fólst ábending til íslenskra stjórnvalda um að efla bæri tengsl mennt
unar við samfélagið í heild, „þ.e. tengsl við fjölskylduna, vinnumarkaðinn og menninguna“
. Nefnd OECD taldi nám í framhaldsskólum vera yfirborðskennt, þar væri „lítið tillit tekið til þarfa sérhvers einstaklings eða þarfa hins íslenska vinnumarkaðar“ og samráð skorti milli háskóla og framhaldsskóla.
Í frumvarpi til laga um framhaldsskóla eru skapaðar forsendur til að auka tengsl fram
haldsskólans við það þjóðfélag sem hann þjónar. Stefnt er að því að gera skólastarfið sýnilegra og vinna þannig að auknum skilningi á starfi skólanna, m.a. með aukinni upp
lýsingamiðlun til almennings. Skólar skulu gefa út skólanámskrá sem veitir upplýsingar um áherslur skólans og starfshætti (22. gr.) en menntamálaráðuneyti er falið að dreifa upplýsingum um skólastarf í framhaldsskólum (4. gr.). Einnig eru tengsl skólanna við nánasta umhverfi aukin verulega með breyttu hlutverki skólanefnda. Skólanefnd skipa fimm fulltrúar úr sveitarfélögum sem að skólanum standa, tilnefndir af sveitarstjórn og menntamálaráðherra. Nefndin fær nú það hlutverk að ákveða áherslur í starfi skólans og fylgjast með því að stefnumótuninni sé framfylgt. Þannig eru ákvarðanir um innra starf skólanna ekki teknar einhliða af skólafólki heldur ber því á hverjum tíma að rökstyðja stefnumörkun skólans fyrir fulltrúum þess samfélags sem skólinn þjónar. Tengsl fram
haldsskólans við atvinnulífið eru einnig stóraukin með aukinni aðild fulltrúa þeirra að stefnumótun, stjórnun og framkvæmd starfsnáms. Þá eru skapaðar forsendur til betri tengsla framhaldsskóla og háskóla með tilkomu samræmdra lokaprófa úr framhalds
skóla. Gert er ráð fyrir að val á greinum til samræmdra stúdentsprófa og prófkröfur verði ákvarðaðar m.a. í samráði við fulltrúa háskólastigsins.
Ábyrgð og stjórnun: aukið sjálfstæði skóla.
Stefnt er að því að auka sjálfstæði skólanna um ákvarðanatöku í eigin málefnum. For
senda fyrir auknu sjálfstæði skólanna er að stjórn þeirra verði styrkari. Í frumvarpinu er þess freistað að tengja betur völd og ábyrgð en hingað til hefur verið gert og afmarka eins og kostur er hlutverk og ábyrgð skólameistara og skólanefndar en völd skólanefndar eru aukin frá því sem nú er.
Skólameistarar eru forstöðumenn skóla og bera ábyrgð á faglegri stjórnun og dagleg
um rekstri (8. gr.). Ráðningarvald skólameistara er aukið þar sem ráðning starfsmanna er nú að öllu leyti á þeirra ábyrgð (11. gr.). Hins vegar er æviráðning skólameistara af
numin og gert ráð fyrir að þeir verði ráðnir eingöngu til 5 ára í senn (11. gr.). Skólameist
urum til stuðnings við stjórnun skóla eru skólaráð sem einkum er ætlað að fjalla um innri málefni skólans og mál einstakra nemenda, og skólanefndir.
Skólanefndir fá aukna ábyrgð á stjórnun skóla. Þeim er ætlað að marka áherslur í starfi skólans m.a. með því að samþykkja skólanámskrá sem unnin er af fagfólki skólans. Þær gera árlega starfs- og fjárhagsáætlanir til þriggja ára og senda menntamálaráðuneyti til samþykkis og fylgjast með að skólahald sé í samræmi við faglega stefnumörkun, þ.e. skólanámskrá, og samþykktan fjárhagsramma sem skólanum er ætlað að starfa eftir (7. gr. og 21. gr.). Þannig má segja að núverandi valdsvið ráðuneytis sé að hluta til sett í hendur skólanefndar. Skólameistari er framkvæmdastjóri skólanefndar, undirbýr fundi hennar og fylgir eftir ákvörðunum hennar. Nýmæli er að skólanefndir skili árlega starfs- og fjárhagsáætlun til ráðherra til þriggja ára í senn. Þess er vænst að aukin festa náist í starfi skólanna þegar starfsáætlanir eru unnar nokkur ár fram í tímann þó svo að þær kunni að verða endurskoðaðar ef forsendur breytast milli ára.
Gert er ráð fyrir aukinni verkaskiptingu framhaldsskóla og að þeir sérhæfi sig í framboði tiltekinna námsbrauta og kjörsviða (16. gr.). Verkaskipting er talin forsenda þess að unnt verði að halda uppi í landinu framhaldsskólanámi sem stenst alþjóðlegar kröfur um gæði, ekki síst þá kröfu að kennslan sé í höndum kennara sem hafa sérhæfða menntun til kennslu í viðkomandi námsgreinum. Menntamálaráðuneytið veitir skólum heimild til að halda uppi tilteknu námi með því að samþykkja starfs- og fjárhagsáætlun skóla.
Í frumvarpinu er nýjung er varðar fjárveitingar til skóla þar sem gert er ráð fyrir að menntamálaráðherra setji sérstaka reglugerð er kveði á um hvernig kennslukostnaður skóla skuli reiknaður (38. gr.). Þar með er horfið frá því að setja fastar viðmiðanir í lög. Þess í stað er reynt að nálgast kennslukostnað einstakra skóla með hjálp reiknilíkans. Þróun hlutlægra aðferða við að reikna út fjárveitingar til skóla og aukin stjórnunarábyrgð í skólum er forsenda þess að unnt verði að auka sjálfstæði skóla og koma á valddreifingu í skólakerfinu.
Öflugra innra skólastarf.
Innra starf framhaldsskóla er fyrst og fremst mótað af skólameisturum, kennurum og öðru starfsfólki skólanna. Brýnt er að skólafólk fái hvatningu til að leggja sitt af mörkum til að skólastarfið verði sem metnaðarfyllst. Fulltrúum OECD þótti sem andrúmsloft í ís
lenskum framhaldsskólum væri óþvingað og notalegt, en að námi og kennsluháttum væri í ýmsu ábótavant.
Í frumvarpi þessu eru ákvæði sem miða að því að auka frumkvæði og ábyrgð skóla
fólks á mótun innra starfs skólanna og hvetja til umbótastarfs í skólum. Ber þar fyrst að nefna ákvæði um skólanámskrá (22. gr.) sem unnin skal af starfsfólki skólanna undir fag
legri forustu skólameistara. Vinna við gerð skólanámskrár er mikilvægur þáttur í gæða
stjórnun hvers skóla. Í öðru lagi eru í frumvarpinu ákvæði um reglulegt sjálfsmat starfs
fólks á starfsháttum skóla (23. gr.) sem gerir skólastjórnendur, kennara og annað starfs
fólk ábyrgt fyrir því að fram fari stöðug endurskoðun á innra starfi skólans. Í þriðja lagi er í frumvarpinu lögð áhersla á stöðugt þróunar- og tilraunastarf til að efla skólastarf á framhaldsskólastigi. Gert er ráð fyrir að stofnaður verði sérstakur þróunarsjóður fyrir framhaldsskóla (45. gr.) þar sem skólar geti sótt um styrki og er þannig hvatt til ný
breytnistarfa í skólum. Einnig er ákvæði um að menntamálaráðherra geti veitt skólum heimild til að gera tilraunir með ákveðna þætti skólastarfs með undanþágu frá ákvæðum laga (44. gr.). Skilyrði fyrir slíkri heimild er að tilraunin sé takmörkuð við tiltekinn tíma og að úttekt verði gerð á árangri hennar.
Brýnt er að auka endurmenntun kennara í framhaldsskólum þar sem öflug og skipuleg endurmenntun er mikilvæg leið til að innleiða nýja starfshætti í skólum. Huga þarf að því hvernig tengja megi betur endurmenntun kennara við þarfir skólans á hverjum tíma.
Eftirlit með skólastarfi.
Á síðustu árum hafa aukist mjög kröfur um eftirlitsskyldu stjórnvalda með skólahaldi þannig að tryggt verði að allir skólar uppfylli lágmarksgæðakröfur. Frumvarpið gerir ráð fyrir að eftirlit með skólastarfi verði aukið á öllum stigum framhaldsskólakerfisins. Skól
um er gert skylt að veita skólanefnd, nemendum og aðstandendum þeirra reglulega upp
lýsingar um skólastarfið, m.a. með útgáfu skólanámskrár (22. gr.). Einnig skulu þeir taka upp viðurkenndar aðferðir til að meta skólastarfið innan frá en slíkt mat verður m.a. hægt að tengja aðferðum altækrar gæðastjórnunar eða innleiðslu vottunarhæfra gæðakerfa (23. gr.). Úttekt skal gerð á sjálfsmatsaðferðum skóla á fimm ára fresti af utanaðkomandi að
ila. Nánar er kveðið á um eftirlitsskyldu menntamálaráðuneytis, en það ber ábyrgð á ytra eftirliti með skólastarfi og námsefni, svo og dreifingu upplýsinga um skólastarf (4. gr.). Gert er ráð fyrir samræmdum lokaprófum í framhaldsskólum (24. gr.) en það er sjálfsagt réttlætismál fyrir nemendur, foreldra, viðtökuskóla og atvinnulíf að lokapróf allra fram
haldsskóla séu jafngild. Loks er í frumvarpinu kveðið á um að menntamálaráðherra geri Alþingi grein fyrir framkvæmd skólastarfs í framhaldsskólum landsins á þriggja ára fresti (46. gr.) en brýnt er að Alþingi fylgist reglulega með framkvæmd skólahalds í land
inu. Reglubundið eftirlit með skólastarfi og árangri þess miðar að því að tryggja að nám í framhaldsskólum sé í samræmi við lög, reglugerðir og aðalnámskrá.
Réttur allra nemenda til náms — samræmdar námskröfur.
Nokkuð virðist skorta á að nemendum framhaldsskólans sé tryggt nám við hæfi þrátt fyrir að gildandi lög kveði á um rétt allra nemenda til náms. Lögin hafa verið túlkuð á þann veg að nemendur eigi rétt á að hefja hvaða nám sem er á framhaldsskólastigi óháð árangri í grunnskóla. Skólar hafa ekki verið í stakk búnir til að veita stórum hópi nem
enda viðhlítandi þjónustu, mikið fall er við upphaf framhaldsskóla, nemendur eru oft mun lengur að ljúka námi en námskrá segir til um og margir hverfa frá námi án formlegra námsloka. Meðfylgjandi tafla
sýnir hlutfall þeirra nemenda sem ekki hafa lokið námi sex árum eftir grunnskólapróf. Þar kemur fram að íslenskir nemendur virðast skila sér álíka
LÍNURIT
(Línurit er ekki til tölvutækt.)
vel inn í framhaldsskóla og í nágrannalöndum, Danmörku og Noregi. Hins vegar ljúka hlutfallslega mun færri nemendur skilgreindum prófum í framhaldsskóla hér á landi. Þessi vandi hefur að sumu leyti ekki verið sýnilegur í íslensku samfélagi því að ungu fólki hefur reynst auðvelt að fá vinnu þótt það hafi ekki haft formlegt lokapróf sem býr það undir ákveðin störf á vinnumarkaðnum. Með samdrætti á vinnumarkaði hefur orðið breyting í þessu efni og kröfur um árangur af skólastarfi hafa aukist.
Það er sjálfsagður réttur nemanda að innritast í nám sem hæfir undirbúningi hans og áhugasviði og sem líklegt er að hann geti lokið á eðlilegum námstíma. Talið er að helst megi koma til móts við námsþarfir þeirra nemenda sem nú hverfa frá námi með aukinni fjölbreytni í starfsnámi og stefna ber að því að efla verulega námsframboð framhalds
skólans á því sviði. Til að gera námsval markvissara eru sett inntökuskilyrði á námsbrautir framhaldsskólans (15. gr.). Þau skulu vera sveigjanleg og í samræmi við kröfur sem gerðar eru á viðkomandi braut þannig að hægt verði að taka tillit til mismunandi undir
búnings nemenda í einstökum námsgreinum. Einnig er gert ráð fyrir að nemendum standi til boða námsráðgjöf til að auðvelda námsval í upphafi náms og á síðari stigum þess (14. gr.). Með inntökuskilyrðum, námsráðgjöf og aukinni áherslu á náms- og starfsfræðslu í unglingadeildum grunnskóla skapast forsendur fyrir því að nemendur velji sér nám í framhaldsskóla sem hentar námsundirbúningi þeirra og áhugasviði.
Það er einnig sjálfsagður réttur nemenda að nám sé sambærilegt að gæðum milli fram
haldsskóla og að lokapróf úr framhaldsskólum séu jafngild hvar sem þau eru tekin. Gagn
rýnt hefur verið að það skorti á samræmingu í námsframboði og námskröfum milli fram
haldsskóla og jafnvel innan sama skóla. Markmiðssetning, kennsla, próf og námsmat er að öllu leyti í höndum einstakra kennara án þess að þessu frelsi skóla og kennara sé fylgt eftir með virku ytra eftirliti. Til að tryggja jafnan rétt nemenda til sambærilegs náms, óháð því hvar það er stundað, gerir frumvarpið ráð fyrir að lokapróf úr framhaldsskólum verði samræmd í tilteknum námsgreinum (24. gr.). Samræmt námsmat felur í sér virkt ytra eftirlit með því að nám og kennsla byggi á ákvæðum aðalnámskrár (21. gr.) en gert er ráð fyrir að ásamt skólamönnum komi ýmsir aðrir aðilar þjóðfélagsins, svo sem úr há
skóla og atvinnulífi, að ákvörðun námsmarkmiða fyrir framhaldsskóla. Skýr markmiðs
setning í aðalnámskrá og skólanámskrám skólanna veitir nemendum og foreldrum upp
lýsingar um innihald náms á hverri námsbraut svo og um starfshætti einstakra skóla. Þannig er tryggður réttur nemanda til að fá upplýsingar um það nám sem hann hyggst leggja stund á. Ákvæði um sjálfsmat skólanna og utanaðkomandi úttekt á þeim aðferðum sem skólinn beitir eiga að tryggja að almenningur fái upplýsingar um hvernig faglegum vinnubrögðum innan skólanna er háttað (23. gr.).
Aukin fjölbreytni í námsframboði.
Eitt af meginmarkmiðum frumvarpsins eru breyttar áherslur í námsframboði fram
haldsskólans. Framhaldsskólinn er opinn öllum nemendum sem ljúka grunnskóla og stefnt að því að nemendum standi til boða námsleiðir við hæfi. Uppbygging framhalds
skólans samkvæmt frumvarpinu (16. gr.) er á mynd á hér á eftir.
Námsleiðir framhaldsskólans verða:
(1) Námsbrautir framhaldsskólans: bóknám, starfsnám, almennt nám. (a) Bóknáms
brautum til stúdentsprófs er fækkað úr þrettán í þrjár að grunni til. Nemendur hafa þó talsvert val milli kjörsviða og geta þannig sérhæft sig á síðari stigum námsins á svipaðan hátt og gerist í núverandi kerfi. (b) Starfsnámsbrautir eru fjölmargar, mislangar og ólíkar að uppbyggingu. Auk hefðbundins starfsnáms á lengri námsbrautum er gert ráð fyrir mik
illi uppbyggingu á einnar til fjögurra anna starfsnámi. Slíkt nám er ætlað nemendum sem vilja skjót námslok og komast sem fyrst út í atvinnulífið. Í styttra starfsnámi verða mjög hagnýtar áherslur en jafnframt þarf að tryggja að námið nýtist nemendum ef þeir ætla að halda áfram skólagöngu þótt síðar verði. Á sumar stuttar starfsnámsbrautir geta nemend
ur jafnvel innritast án þess að uppfylla inntökuskilyrði á aðrar námsbrautir framhalds
skólans. (c) Almenn námsbraut til framhaldsskólaprófs er ný braut, ætluð nemendum sem eru óráðnir í vali á námsbraut eða skortir undirbúning til að innritast á þá námsbraut sem þeir kjósa. Nám á almennri námsbraut er að hluta til metið inn á aðrar brautir fram
haldsskólans. Viðfangsefni á almennri námsbraut er að stórum hluta val og því má tengja nám á brautinni við stutt starfsnám þannig að nemendur ljúki hvoru tveggja í senn.
(Línurit er ekki til tölvutækt.)
(2) Fornám er eins árs nám, ætlað nemendum sem koma úr grunnskóla með mjög slak
an undirbúning og þurfa mikinn stuðning og persónulega ráðgjöf. Að loknu fornámi geta nemendur tekið stutt starfsnám eða þreytt á ný samræmt lokapróf úr grunnskóla til að geta hafið nám á námsbrautum framhaldsskóla.
(3) Nám í sérstökum deildum er ætlað fötluðum nemendum sem ekki geta nýtt sér námsframboð framhaldsskólans. Um er að ræða nám sem þegar er fyrir hendi í skólakerf
inu en hefur ekki fengið formlega viðurkenningu.
Inntökuskilyrði verði sett á námsbrautir framhaldsskólans. Þau eiga að vera sveigjan
leg, mismunandi eftir brautum, og taka mið af uppbyggingu námsins og lokamarkmið
um. Til viðmiðunar verði einkunnir á samræmdu grunnskólaprófi og skólaeinkunnir úr grunnskóla, bæði samtala einkunna í nokkrum völdum námsgreinum og einstakar ein
kunnir tiltekinna námsgreina. Þannig verði t.d. hægt að miða við árangur í verklegri grein við inntöku á starfsnámsbrautir. Val greina og lágmarkseinkunnir skulu miðast við náms
kröfur sem gerðar eru á viðkomandi námsbraut. Nánari ákvæði um inntökuskilyrði á ein
stakar námsbrautir verða sett í reglugerð.
Inntökuskilyrði á námsbrautir framhaldsskóla auka líkur á að nemendur innritist í nám sem þeir hafa forsendur til að stunda með fullnægjandi árangri og ljúka á þeim námstíma sem kveðið er á um í námskrá. Hægt verður að miða námskröfur á einstökum námsbraut
um við undirbúning nemenda úr grunnskóla. Gera má ráð fyrir sanngjarnari starfsháttum í framhaldsskólum þegar kröfur til nemenda eru í samræmi við námsgetu þeirra og undir
búning.
Nefnd um mótun menntastefnu leggur til að fram fari endurskoðun á uppbyggingu og innihaldi náms í framhaldsskóla. Við upphaf náms á einstökum brautum þarf að gera ráð fyrir tilteknum undirbúningi nemenda. Á undanförnum árum virðist sem námsefni grunnskóla hafi í auknum mæli færst upp á fyrsta ár framhaldsskólans. Fyrir suma nem
endur er oft um hreina endurtekningu að ræða, aðrir nemendur hafa ekki forsendur til að takast á við settar námskröfur. Á þessu þarf að verða sú breyting að nám verði samfellt ferli, einnig þegar nemendur flytjast milli skólastiga.
Efling starfsnáms.
Megináhersla er lögð á starfsnám í frumvarpinu. A.m.k. þrír af hverjum fjórum nem
endum sem nú sækja nám í framhaldsskólum skrá sig á almennar bóknámsbrautir og að
eins lítill hluti árgangs útskrifast af starfsmenntabrautum
. Breyttar áherslur í námsframboði framhaldsskólanna á næstu árum þurfa fyrst og fremst að beinast að uppbyggingu á sviði starfsnáms. Íslendingar standa frammi fyrir breyttum ytri aðstæðum í efnahags- og atvinnulífi. Aðild að samningi um Evrópskt efnahagssvæði knýr á um uppbyggingu atvinnulífs sem stenst alþjóðlega samkeppni. Menntakerfið gegnir lykilhlutverki í þeirri uppbyggingu, ekki síst starfsmenntun á framhaldsskólastigi. Stofna þarf nýjar náms
brautir í starfsnámi og aðlaga það nám sem fyrir er breyttum aðstæðum. Mikilvægt er að starfsnám verði eftirsótt, ekki síst af góðu námsfólki. Stefnt skal að því að gera róttæka endurskoðun á starfsmenntabrautum og m.a. að opna leið til stúdentsprófs fyrir nemend
ur sem ljúka starfsnámi (16. gr.).
Í frumvarpinu eru stefnumótandi ákvæði um markmið og uppbyggingu starfsnáms sem skal vera í sem bestu samræmi við kröfur sem gerðar eru á vinnumarkaði um mennt
un starfsfólks (25. gr.). Til að slíkt takist þarf að treysta tengsl atvinnulífs og skólakerfis. Því er gert ráð fyrir stóraukinni þátttöku aðila atvinnulífs í nefndum og ráðum sem ætlað er að annast stefnumörkun í starfsnámi og gera tillögur til ráðherra um tilhögun þess og framkvæmd. Sérstakri ráðgjafarnefnd, samstarfsnefnd um starfsnám á framhaldsskóla
stigi, sem í situr jafn fjöldi fulltrúa frá samtökum atvinnurekenda, samtökum launþega og hinu opinbera, er ætlað að vera menntamálaráðherra til ráðuneytis um stefnumótun á sviði starfsnáms (26. og 27. gr.). Tillögugerð um innihald og uppbyggingu starfsnáms í einstökum greinum verður í höndum svonefndra starfsgreinaráða sem er ætlað að gegna lykilhlutverki í stjórnun starfsnáms (28. og 29. gr.). Aðilar atvinnulífs eiga meirihlutaað
ild að starfsgreinaráði en um þátttöku þeirra í ákvörðunum um starfsnám í skólakerfinu er ávallt haldið þeirri reglu að jafnræðis sé gætt í fjölda fulltrúa frá samtökum atvinnurek
enda og samtökum launþega.
Gert er ráð fyrir að skólar hafi áfram sjálfstæði um framkvæmd starfsnáms en skapað
ur er möguleiki á að aðilar atvinnulífs geti haft áhrif á framkvæmdina í samvinnu við skólamenn. Þannig er gert ráð fyrir að skólar sem sinna starfsnámi geti sett á fót sérstakar ráðgjafarnefndir (30. gr.) með fulltrúum atvinnulífs en einnig geta aðilar á vinnumarkaði tekið þátt í kjarnaskólaverkefni í samvinnu við skóla og menntamálaráðuneyti. Kjarna
skóli er eins konar þróunarskóli (eða þróunardeild) fyrir tilteknar greinar starfsnáms (31. gr.). Kjarnaskóli starfar í nánum tengslum við starfsgreinaráð. Einnig er í frumvarpi þessu gert ráð fyrir að samtök atvinnurekenda og launþega geti gerst aðilar að stofnun og/eða rekstri framhaldsskóla.
Fullorðinsfræðsla.
Í frumvarpinu er áfram gert ráð fyrir öldungadeildarnámi á vegum framhaldsskóla (33. gr.) en sérstaklega tekið fram að skipulag náms og kennsla skuli sniðin að þörfum full
orðinna nemenda. Stefnt er að aukinni fjölbreytni í námsframboði öldungadeilda, einkum í starfsnámi. Einnig er gert ráð fyrir að fullorðnum nemendum sem hafa litla skólagöngu að baki verði boðið grunnnám í öldungadeildum. Með fjölbreyttara námi fær öldunga
deildarhugtakið víðari merkingu.
Hægt verður að heimila framhaldsskólum að efna til endurmenntunarnámskeiða eða annars náms og nýta þannig aðstöðu, kennarakost og tækjabúnað. Forsenda slíkrar starf
semi er að trygging fáist fyrir fullri greiðslu kostnaðar sem af hlýst (34. gr.).
Starfstími skóla.
Bæði meðal almennings og skólafólks hefur komið fram mikil gagnrýni á nýtingu starfstíma í framhaldsskólum. Bent er á að einungis sé kennt í u.þ.b. 130 daga á ári og að 6–8 vikur af árlegum starfstíma fari í prófahald og frágang prófa. Nauðsynlegt er talið að starfstími framhaldsskóla verði betur nýttur í þágu nemenda. Til að tryggja nemendum fleiri kennsludaga á ári en verið hefur er lagaákvæði í gildandi lögum breytt á þann veg að starfstími skóla er hér skilgreindur sem starfstími nemenda í skóla. Kveðið er á um að starfstími framhaldsskólanemenda skuli vera fullir níu mánuðir og tilgreindur lágmark
fjöldi kennsludaga. Þannig er réttur nemenda til náms og kennslu lagður til grundvallar skilgreiningu á starfstíma framhaldsskólans.
Ljóst er að þessi skilgreining á starfstíma skóla kallar á breytta kjarasamninga við kennara því að í gildandi kjarasamningum er einungis gert ráð fyrir 34 vinnuvikum kenn
ara á ári innan skólanna. Þörf er á að skilgreina starfstíma í kjarasamingum kennara á ný. Kennarasamtök hafa þegar lýst yfir vilja til að ganga til samninga um breyttar skilgrein
ingar á starfstíma kennara.
Athugasemdir við einstakar greinar frumvarpsins.
Um 1. gr.
Greinin er óbreytt frá gildandi lögum að öðru leyti en því að fellt er brott ákvæði um framhaldsdeildir grunnskóla. Framvegis tilheyrir allt skólahald á framhaldsskólastigi framhaldsskóla. Eðlilegt þykir að draga skörp skil á milli grunn- og framhaldsskólastigs þó af hagkvæmnisástæðum kunni í einstaka tilvikum að verða stofnað til útibúa frá fram
haldsskóla í tengslum við grunnskóla eða jafnvel stofnað til sérstaks skólahalds á fram
haldsskólastigi í húsnæði grunnskóla. Fari slík starfsemi fram í húsnæði grunnskóla verður að gera ráð fyrir sérstökum samningi um reksturinn.
Um 2. gr.
Markmiðsgrein laganna leggur grunn að almennu og sérhæfðu menntunarhlutverki framhaldsskólans. Gert er ráð fyrir að framhaldsskólinn sinni öllum ungmennum sem lokið hafa námi í grunnskóla og veiti þeim undirbúning fyrir líf, starf og frekara nám. Í aðalnámskrá skulu meginmarkmið framhaldsskólans skilgreind nánar og endurspeglast síðan í skólanámskrám og störfum einstakra skóla.
Lögð er áhersla á mikilvægt hlutverk framhaldsskólans í almennri menntun og félags
legu uppeldi nemenda auk þess sem skólinn á að vera vettvangur fyrir kynningu þjóð
legra og alþjóðlegra menningarverðmæta. Með vali viðfangsefna og starfsháttum skal stefnt að því að þroska með nemendum ábyrgðarkennd, víðsýni og umburðarlyndi, hvetja þá til sjálfstrausts og frumkvæðis og þjálfa þá í öguðum og sjálfstæðum vinnubrögðum og gagnrýninni hugsun. Loks er framhaldsskólanum ætlað að hvetja nemendur til stöðugrar þekkingarleitar eftir að formlegri skólagöngu lýkur.
Um 3. gr.
Lagt er til að hinn níu mánuða starfstími framhaldsskóla verði betur nýttur til kennslu en verið hefur. Kennsludögum verði fjölgað í 150, en prófatími jafnframt styttur.
Margoft hefur verið bent á, bæði af skólafólki og almenningi, að starfstíma í fram
haldsskólum mætti nýta betur en nú er. Gagnrýnt hefur verið hversu kennslutíminn er stuttur, prófatíminn langur og frítími nemenda kringum jól og í maímánuði langur. Í flestum framhaldsskólum er einungis kennt í um 13 vikur á önn eða í 6 mánuði á níu mán
uða starfstíma skóla og til prófahalds er varið 6–8 vikum á ári. Misræmis gætir milli gildandi lagaákvæða um starfstíma skóla og kjarasamninga fjármálaráðuneytis við kennara, en samkvæmt þeim skulu kennarar vinna í skólunum í aðeins 34 vikur á ári.
Almennt hefja framhaldsskólar starfsemi sína 1. september. Meðal skólafólks í fram
haldsskólum hefur verið gagnrýnt hversu haustönn og vorönn eru mislangar og bent hefur verið á þann kost að hefja kennslu á haustönn þegar í ágústmánuði. Samkvæmt frum
varpsgreininni er ekkert því til fyrirstöðu að skólar geti hafið kennslu t.d. 21. ágúst og að nemendur ljúki störfum fyrr að vori sem því nemur eða 20. maí. Einnig gætu skólar hald
ið áfram því fyrirkomulagi að hefja kennslu 1. september og að nemendur starfi þá til 31. maí. Jafnframt yrði nauðsynlegt að skólar gætu kallað kennara til starfa viku áður en kennsla hefst. Slík lenging á starfstíma kennara kallar á endurskoðun kjarasamninga við þá.
Gert er ráð fyrir að menntamálaráðherra setji reglugerð um starfstíma framhaldsskóla, þ.e. skóladagatal, þar sem fram komi hverjir eru leyfisdagar nemenda á starfstíma skóla.
Um 4. gr.
Greinin kveður á um ábyrgð menntamálaráðherra á yfirstjórn menntunar á framhalds
skólastigi. Þannig gefur hann út aðalnámskrá og sér um eftirlit með skólastarfi. Eftirlit með skólastarfi beinist að því að skólar framfylgi í starfi sínu ákvæðum laga, reglugerða og aðalnámskrár. Einnig þykir rétt að fylgst verði betur með gæðum námsefnis á fram
haldsskólastigi en hingað til hefur tíðkast vegna augljóss mikilvægis þess í námi og kennslu.
Bætt er inn ákvæði um söfnun og dreifingu upplýsinga um skólastarf til almennings og opinberra aðila. Þar er m.a. um að ræða útgáfu ýmiss konar upplýsingarita, t.d. með tölfræðilegum upplýsingum um skólastarf. Upplýsingakrafa á íslensk stjórnvöld erlendis frá hefur stóraukist með auknu alþjóðasamstarfi. Sem dæmi má nefna þátttöku Íslendinga í Eurydice, tölvugagnabanka um menntamál í kjölfar samnings um EES. Á vegum Eurydice er nú unnið að upplýsingaöflun um skólastarf á leik-, grunn-, framhalds- og há
skólastigi.
Menntamálaráðherra er einnig falið að hafa eftirlit með því að framhaldsskólar hafi fullnægjandi aðstöðu að því er húsnæði og búnað varðar. Í greininni er kveðið á um eftir
litsskyldu ráðuneytis varðandi fjárhag skólanna, húsnæði þeirra og búnað en þar er um nýmæli að ræða frá núgildandi lögum.
Um 5. gr.
Gert er ráð fyrir að samstarfsnefnd framhaldsskóla sé fyrst og fremst til ráðgjafar varð
andi málefni framhaldsskólastigsins og vettvangur þessara aðila til samræmingar og samstarfs.
Fellt er brott ákvæði í gildandi lögum um heimild til þess að skipta landinu í afmörkuð framhaldsskólasvæði. Gert er ráð fyrir að nemendur eigi ótvíræðan rétt á að hefja nám í framhaldsskóla óháð búsetu.
Um 6. gr.
Í skipan skólanefnda er gerð sú breyting frá gildandi lögum að fækkað er úr sjö fulltrú
um í fimm. Fulltrúar sveitarfélaga verða tveir í stað þriggja en rétt þykir að gefa sveitar
stjórn, þar sem framhaldsskóli er, möguleika til verulegra áhrifa á skólann þótt sveitar
stjórn greiði ekki rekstrarkostnað framhaldsskóla. Fulltrúar ríkisins verða nú þrír í stað eins áður og er gert ráð fyrir að þeir séu að jafnaði búsettir í sveitarfélagi sem að skólan
um standa. Reglan á að vera sú að allir fulltrúar skólanefndar komi af því svæði sem sækir nám til skólans en ekki þykir t.d. rétt að ætlast til þess að skipaður skólanefndarfulltrúi þurfi að víkja sæti ef hann flyst út fyrir bæjarfélagið. Með aukinni verkaskiptingu má gera ráð fyrir að skólar þjóni stóru svæði, jafnvel öllu landinu í einstökum greinum. Í þeim tilvikum kann að þykja rétt að skólanefndarmenn komi víðar að. Lagt er til að við skipun fulltrúa menntamálaráðherra í skólanefnd verði m.a. leitað til aðila úr atvinnulífi hlutaðeigandi sveitarfélaga. Einn fulltrúi nemenda og einn fulltrúi starfsmanna skóla verða áheyrnarfulltrúar.
Þar sem verkefni skólanefndar er m.a. að fjalla um mannaráðningar og námsframboð skólans er talið hætt við hagsmunaárekstrum með skipun fulltrúa starfsmanna í skóla
nefnd. Auk þess má telja óeðlilegt að undirmenn skólameistara séu með setu sinni í skólanefnd settir yfir hann í krafti atkvæðisréttar síns. Því þykir rétt að starfsmenn skóla hafi einungis einn áheyrnarfulltrúa í skólanefnd með málfrelsi og tillögurétti.
Kveðið er á um að ráðherra geti heimilað sveitarstjórn/sveitarstjórnum að tveir eða fleiri skólar sameinist um eina skólanefnd, en slíkt hefur verið rætt t.d. á Austurlandi.
Um 7. gr.
Gert er ráð fyrir að verkefni skólanefndar verði umfangsmeiri en gildandi lög gera ráð fyrir. Gagnrýnt hefur verið að í gildandi lögum um framhaldsskóla sé verkaskipting skólameistara og skólanefndar óljós. Í frumvarpinu er reynt að skerpa þessi skil. Skóla
nefnd gerir ár hvert starfs- og fjárhagsáætlun fyrir skólann til þriggja ára í senn og sendir hana menntamálaráðherra. Skólanefnd er ætlað að marka stefnu skólans og sérstöðu. Þannig er t.d. gert ráð fyrir að skólanámskrá, sem unnin er af starfsfólki skólans að frum
kvæði skólameistara (sbr. 8. og 21. gr.), þarfnist samþykkis skólanefndar. Skólanefnd fylgist náið með fjármálum skólans og gerir menntamálaráðuneytinu grein fyrir rekstrar
stöðu skólans tvisvar á ári, þ.e. í febrúar og ágúst.
Fagleg forusta í daglegu starfi skólans er hins vegar með öllu í höndum skólameistara, svo og starfsmannaráðningar í samráði við skólanefnd. Skólameistari er framkvæmda
stjóri skólanefndar og undirbýr tillögur að starfs- og fjárhagsáætlun og leggur fyrir skóla
nefnd.
Skólanefnd ákveður upphæð gjalda sem nemendum er gert að greiða við innritun í framhaldsskóla svo og gjaldtöku af nemendum vegna verklegrar kennslu. Gert er ráð fyrir að menntamálaráðherra setji nánari reglur um innheimtu gjalda af nemendum. Gjöld til nemendasjóðs eru ákveðin af nemendafélagi skólans sem sér um innheimtu þeirra.
Allar fjárreiður framhaldsskóla eru nú háðar endurskoðun löggilts endurskoðanda og staðfestingu Ríkisendurskoðunar. Gildir það einnig um innheimt gjöld er nemendum er gert að greiða.
Um 8. gr.
Sú breyting er frá gildandi lögum að hér er sérstaklega kveðið á um faglega forustu skólameistara. Hann hefur frumkvæði að gerð skólanámskrár og er þannig leiðandi í faglegu umbótastarfi innan skólans. Skólaráð er nýtt heiti á skólastjórn en verksvið þess er að aðstoða skólameistara við stjórn skóla, einkum þá hlið sem snýr að samskiptum nem
enda við starfsfólk skólans.
Um 9. gr.
Hér eru sett nokkuð fyllri ákvæði um kennarafundi en eru í gildandi lögum. Almennur kennarafundur er vettvangur þar sem kennarar geta haft áhrif á stefnumótun og þróun innra starfs skólans, þar með er talin þróun skólanámskrárgerðar. Því er mikilvægt að ályktanir og tillögur, sem kennarafundur samþykkir, berist skólanefnd og skólaráði til umfjöllunar. Talið er rétt að lögbinda lágmarkstíðni kennarafunda við tvo fundi á önn að jafnaði, ekki síst í ljósi þess að formleg áhrif starfsmanna í skólanefnd verða nú minni en áður. Þá er skólameistara skylt að halda kennarafund ef fulltrúar kennara í skólaráði eða þriðjungur starfandi kennara skólans krefst þess.
Um 10. gr.
Greinin er samhljóða 11. gr. gildandi laga að því undanskildu að nemendaráð gerir ekki lengur tillögu til skólanefndar um upphæð nemendasjóðsgjalda, heldur er sú ákvörð
un nú eingöngu í höndum nemendafélags skólans.
Um 11. gr.
Gert er ráð fyrir að horfið verði frá setningu og skipun í stöður við framhaldsskóla. Þess í stað verði ráðningu starfsmanna hagað með sama hætti og almennt er nú orðið um ríkisstarfsmenn, þ.e. ráðning til starfa er samkvæmt ráðningarsamningi, en skipanir í stöður ævilangt sæta vaxandi gagnrýni og ýmis vandkvæði fylgja því ráðningarformi.
Ráðningartími skólameistara miðast við fimm ár og gert er ráð fyrir að heimilt verði að endurráða í starfið að undangenginni auglýsingu. Vakin er sérstök athygli á ákvæði um rétt kennara sem ráðinn er skólameistari til að halda kennarastöðu sinni meðan hann gegnir starfi skólameistara. Þar sem ráðning er til ákveðins tíma þykir rétt að tryggja starf með þessum hætti og stuðla þannig að því að hæfir kennarar fáist til stjórnunarstarfa þar sem þeir eiga öruggt kennslustarf að ráðningartíma loknum.
Skólameistari ræður aðra starfsmenn skóla að höfðu samráði við skólanefnd. Er ráðn
ingarvald skólameistara aukið frá því sem nú er þar sem ekki þarf lengur að leita staðfest
ingar menntamálaráðherra á ráðningum við framhaldsskóla. Er þetta liður í því að efla sjálfstæði einstakra skóla. Gert er ráð fyrir að menntamálaráðherra setji skólameistara, kennurum og fleiri starfsmönnum skóla erindisbréf en tryggja þarf að erindisbréfin gefi skólum möguleika á að starfa samkvæmt aðferðum altækrar gæðastjórnunar.
Um 12. gr.
Greinin er óbreytt frá 14. gr. gildandi laga að öðru leyti en því að í stað „orlofs“ er talað um námsorlof og að frestur til þess að skila umsóknum um námsorlof er miðaður við 1. október árlega í stað 1. nóvember áður.
Um 13. gr.
Greinin kveður á um rétt nemenda til heilbrigðisþjónustu meðan þeir eru við nám í framhaldsskóla. Sú breyting er gerð frá gildandi ákvæðum að nú er ótvírætt kveðið á um að nærliggjandi heilsugæslustöð skuli annast þetta starf í umsjá viðkomandi héraðslækn
is.
Um 14. gr.
Greinin kveður á um rétt nemenda til námsráðgjafar en námsráðgjöf hefur eflst í fram
haldsskólum á undanförnum árum. Nemendur skulu eiga kost á hvoru tveggja, ráðgjöf um náms- og starfsval á ýmsum stigum námsins sem og leiðsögn og liðsinni í persónu
legum málum er snerta námið og skólann. Námsráðgjafar, kennarar og annað starfsfólk veita þessa þjónustu. Í því sambandi er brýnt að auka vægi umsjónarkennara í framhalds
skólum.
Um 15. gr.
Gert er ráð fyrir að öll ungmenni eigi kost á námi á framhaldsskólastigi að loknum grunnskóla og í boði verði nám sem henti nemendum með ólíkan undirbúning, námsgetu og áhugasvið. Möguleikar nemenda í vali á námsleiðum eru í samræmi við undirbúning og námsárangur nemenda úr grunnskóla eða undirbúning sem þeir hafa aflað sér með öðr
um hætti.
Inntökuskilyrði á einstakar námsbrautir miðast fyrst og fremst við að nemendur hafi nægilegan undirbúning til þess að takast á við nám viðkomandi brautar og geti náð loka
markmiðum hennar á eðlilegum námstíma. Inntökuskilyrði verða því breytileg eftir námsbrautum. Þau miðast við einkunnir á samræmdum prófum grunnskóla og skólaein
kunnir. Ýmist er um að ræða meðaleinkunn nokkurra tiltekinna námsgreina eða lokaein
kunn einstakra greina. Val greina, sem inntökuskilyrði eru miðuð við, verður í samræmi við áherslur á námsbrautinni. Í starfsnámi verður m.a. hægt að miða við einkunnir í verk
legum greinum.
Rétt þykir að heimila skólum, ef sérstök rök mæla með því, að veita nemanda sem orð
inn er 18 ára gamall inngöngu á einstakar námsbrautir án þess að hann fullnægi almenn
um inntökuskilyrðum. Áður en slík heimild er veitt ber að meta stöðu nemandans og skera þannig úr um það hvort hann hefur raunhæfa möguleika til að takast á við nám á viðkomandi námsbraut.
Þeim sem ekki hafa náð tilskildum lágmarksárangri við lok grunnskóla til að innritast á einstakar námsbrautir skal standa til boða fornám eða nám í sérstökum deildum sem ætlað er fötluðum nemendum.
Um 16. gr.
Gert er ráð fyrir að nám að loknu grunnskólaprófi sé skipulagt á mismunandi náms
brautum og að nemendur innritist á tilteknar brautir strax við upphaf náms í framhalds
skóla. Markmið með námi á öllum námsbrautum er að veita almenna menntun sem undir
býr nemendur undir líf í lýðræðisþjóðfélagi og sérhæfða menntun sem er markviss undir
búningur fyrir frekara nám og/eða störf í þjóðfélaginu.
Um er að ræða þrenns konar námsbrautir: bóknámsbrautir til stúdentsprófs sem veita undirbúning fyrir nám á háskólastigi, starfsnámsbrautir til skilgreindra lokaprófa sem búa nemendur undir tiltekin störf í atvinnulífinu og almenna námsbraut til framhalds
skólaprófs sem býr nemendur undir frekara nám á öðrum námsbrautum eða er skilgreind
ur hluti af námi á einstökum starfs- eða bóknámsbrautum.
Ástæða þykir að fækka að grunni til bóknámsbrautum til stúdentsprófs en í gildandi námskrá fyrir framhaldsskóla eru þrettán slíkar skilgreindar. Gert er ráð fyrir að bók
námsbrautirnar verði þrjár, þ.e. að einungis verði skilgreindir þrír brautarkjarnar í bók
námi, en kjarnanám hinna þrettán brauta er svo líkt að einföldun þykir vel möguleg. Fækkun námsbrauta auðveldar skipulagningu náms í skólum, eykur samræmi milli einstakra skóla og gefur möguleika á markvissu eftirliti með námsárangri nemenda. Á ein
stökum brautum er síðan hægt að bjóða mismunandi mörg kjörsvið. Þannig hafa nemend
ur möguleika á fjölbreytni í vali á kjörsviði og því verður í heild ekki um að ræða sam
drátt í námsframboði á framhaldsskólastigi frá því sem nú er.
Gert er ráð fyrir aukinni verkaskiptingu framhaldsskóla og að þeir sérhæfi sig í fram
boði tiltekinna námsbrauta og kjörsviða. Nemandi velur þannig skóla með tilliti til náms