Ferill 144. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: Word Perfect.



1993–94. – 1063 ár frá stofnun Alþingis.
117. löggjafarþing. – 144 . mál.


151. Fyrirspurn



til dómsmálaráðherra um framkvæmd jafnréttisáætlunar.

Frá Önnu Ólafsdóttur Björnsson.



    Á hvern hátt hefur dómsmálaráðuneytið framfylgt þeim markmiðum í „framkvæmdaáætlun til að ná fram jafnrétti kynjanna“ sem samþykkt var á Alþingi í maí 1993, að „markvisst verði unnið að því að ráða fleiri konur í störf rannsóknarlögreglumanna hjá Rannsóknarlögreglu ríkisins“?